Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Forsetinn segir það ósatt að Jóni Baldvini hafi ekki verið boðið: „Fékk boð sama dag og aðrir“

Forsetinn segir það ósatt að Jóni Baldvini hafi ekki verið boðið: „Fékk boð sama dag og aðrir“
Guðni Th. Jóhann­es­son, fyrrum for­seti Íslands, er alls ekki hrif­inn af ananas á pít­sur

Forseti Íslands segir það ósatt með öllu að ekki hafi staðið til að bjóða Jóni Baldvini Hanni­bals­syni á hátíð­ar­sam­komu í til­efni af þrjá­tíu ára stjórn­mála­sam­bandi Íslands við Eystra­salts­löndin.

Í for­síðu­frétt Frétta­blaðs­ins kom fram að íslensk stjórn­völd og Háskóli Íslands virt­ust hafa ákveðið að hundsa Jón Baldvin, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, við skipu­lagn­ingu sam­kom­unnar, sem er haldin í til­efni af því að þrjá­tíu ár eru liðin frá því að Ísland tók upp stjórn­mála­sam­band við Eystra­salts­löndin þrjú á ný. Samkoman er haldin nú í vik­unni, en í Frétta­blað­inu kom fram að sam­kvæmt Sighvati Björg­vins­syni, fyrrum sam­flokks­manni Jóns Baldvins, hafi Jóni ekki verið boðið fyrr en sá fyrr­nefndi gerði athuga­semd vegna máls­ins. Eftir það hafi Jón Baldvin fengið boðskortið sitt í tölvu­pósti í fyrra­dag, en hann seg­ist ekki geta þegið boðið með svo skömmum fyrr­vara, enda sé hann búsettur á Spáni.

„Ég skil ekki af hverju menn eru svo lít­il­sigldir. Ég virð­ist vera í starfs- og fram­komu­banni,“ sagði Jón Baldvin vegna máls­ins.

Gagnrýnir frétt Fréttablaðsins

Nú hefur skrif­stofa for­seta Íslands sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem kemur fram að á boðs­lista við­burð­ar­ins séu, auk sendi­nefnda Eystra­salts­ríkj­anna, ráð­herrar rík­i­s­tjórna Íslands á árunum 1988 til 1991, og 1991 til 1995, og fyrr­ver­andi sendi­herrar og ræð­is­menn frá þessum árum. „Fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra fékk boð sama dag og aðrir boðs­gestir eins og ætíð stóð til, með svip­uðum fyr­ir­vara og gengur og ger­ist um við­burði af þessu tagi,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Frétta­flutn­ingur Frétta­blaðs­ins af mál­inu er einnig gagn­rýndur í yfir­lýs­ing­unni, þar sem sagt er að auð­velt hefði verið fyrir mið­il­inn að sann­reyna málið með „einu sím­tali.“

Þá kemur fram í yfir­lýs­ing­unni að þegar ald­ur­fjórð­ungur var lið­inn frá end­ur­heimt sjálf­stæðis Eystra­salts­land­anna, árið 2016, hafi for­set­inn boðið Jóni Baldvini til við­burðar á Bessa­stöðum.

„Óhætt er að full­yrða að eng­inn annar Íslend­ingur en núver­andi for­seti (fyrir utan Jón sjálfan) hefur vakið eins oft og vel athygli á atbeina hans örlaga­árið 1991 þegar íslensk stjórn­völd studdu dyggi­lega við sjálf­stæð­is­bar­áttu Eystra­salts­þjóð­anna,“ segir að lokum í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð