Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Frosti Logason Eitt mesta ævintýri lífs míns

Frosti Logason Eitt mesta ævintýri lífs míns

„Þetta sýndi mér alveg nýja hlið á íslenskum sjáv­ar­út­vegi. Við sem erum í landi – í Reykja­vík og víðar –  þegar við heyrum orðið „útgerð“; þá er það orð sem maður tengir bara við Satan sjálfan; sér­stak­lega útgerð með kvóta. Það er í raun bara djöf­ull­inn sjálfur og fólk sem stelur pen­ingum. En svo kemur maður um borð í bát sem er gerður út af þess­ari prýði­legu fjöl­skyldu­út­gerð sem heitir Einhamar Seafood í Grinda­vík. Þarna eru hjón sem eiga útgerð­ina og mér skilst að þetta hafi byrjað bara á trillu hjá karl­inum fyrir um 20 árum og eru þau komin núna með þrjá plast­báta. Allir á kvóta og bara þrældug­legt fólk sem mokar inn tekjum í þjóð­ar­búið. Þetta er allt selt til Bret­lands og Banda­ríkj­anna minnir mig. Strang­heið­ar­leg vinna sem býr til ótrú­leg verð­mæti. Ég hef aldrei verið að búa til raun­veru­leg verð­mæti í mínum störfum þannig,“ segir Frosti Logason í við­tali við Reyni Trausta­son. Frosti er þekktur fyrir fjöl­miðla­störf en fór í sumar í sinn fyrsta túr á línu­bátnum Vésteini GK.

Það er öðru­vísi að vera fjöl­miðla­maður eða rokk­ari. Það eru öðru­vísi verð­mæti; þess má geta að Frosti var gít­ar­leik­ari í hljóm­sveit­inni Mínus á sínum tíma.

Virðing mín fyrir þess­ari atvinnu­grein hefur auk­ist veru­lega.

„Þetta eru áþreif­an­leg verð­mæti. Það er alltaf verið að tala um að það verði að vera sátt um sjáv­ar­út­veg­inn. Ég sé þetta ein­hvern veg­inn þannig að útgerðir sem eru að gera vel, eru að skaffa gjald­eyri fyrir þjóð­ina og skaffa fullt af fólki störf og eru reknar fyrir eigið fé og áhættu; ég meina – þetta er eini sjáv­ar­út­veg­ur­inn í heim­inum sem er ekki nið­ur­greiddur af rík­inu. Mér finnst þetta gleym­ast; þetta er fárán­lega vel rekið batt­erí. Þegar maður var ungur var þetta eini atvinnu­veg­ur­inn sem skaff­aði okkur gjald­eyri í raun og veru á Íslandi. Sem betur fer erum við búin að dreifa eggj­unum í fleiri körfur núna en samt sem áður er þetta ennþá einn sá stærsti. Og virð­ing mín fyrir þess­ari atvinnu­grein hefur auk­ist veru­lega eftir að hafa kynnst þessu svona frá fyrstu hendi.“

Vésteinn GK

Hvað rak Frosta á sjó­inn?

„Það er góð spurn­ing. Þetta hefur verið á þessum svo­kallað bucket-lista mínum eig­in­lega alla mína ævi en mig hefur langað til að prófa að fara á sjó­inn. Þröstur, fóst­bróðir minn í Mínus, bassa­fant­ur­inn, er mik­ill sjó­ari; hefur verið á tog­urum og var lengst af á Barðanum fyrir austan hjá Síld­ar­vinnsl­unni. Ég hef heyrt ævin­týra­legar sögur hjá honum í gegnum tíð­ina. Mig hefur alltaf langað til að prófa þetta en það hefur aldrei gef­ist neitt tæki­færi, gat eða tími í mínu lífi til þess að geta hoppað í þetta. Lífið hefur verið að ger­ast og þetta hefur aldrei verið á boðstólum. Svo atvik­að­ist það þannig að ég er í löngu fæð­ing­ar­or­lofi og það hefur ýmis­legt gengið á og margir sem héldu eflaust að ég væri orð­inn atvinnu­laus og ég fór að fá sím­töl frá fullt af góðu fólki; góðum mönnum sem voru að spyrj­ast fyrir um hvernig ég hefði það og gá hvort ég hefði áhuga á að gera hitt og þetta.“

Ég hugs­aði með mér að sum­arið 2022 væri sum­arið sem Frosti Logason færi á sjó.

Hug­myndin um að fara á sjó­inn kom upp og leist Frosta vel á. „Ég hugs­aði með mér að sum­arið 2022 væri sum­arið sem Frosti Logason færi á sjó.“

Hann tal­aði á þessum tíma við nokkra skip­stjóra og svo var það gam­all vinur hans frá Grinda­vík, Páll Hreinn Pálsson, sem í raun kom Frosta á sjó­inn. „Hann er öllum hnútum kunn­ugur í íslenskum sjáv­ar­út­vegi; er af þess­ari Vísis-fjöl­skyldu. Ég sagði honum að mig lang­aði til að prófa að fara á sjó og spurði hvort hann gæti hjálpað mér og hvort hann væri með ein­hverjar hug­myndir. Hann svar­aði um hæl að hann væri með í huga full­kom­inn bát fyrir mig með full­kominni áhöfn. Hann sagði „farðu á netið og gúggl­aðu Véstein GK“. Ég gerði það og þá kom upp þessi 30 tonna plast­bátur, trefja­línu­bátur.“

Frosti segir að einn félagi sinn hafi sagt að hann yrði klár­lega sjó­veikur um borð í svona bát en að Páll hafi sagt að ef hann ætl­aði að fara á sjó þá væri lang­best að byrja í mestu hörkunni. „Og þú finnur ekki meiri hörku en á línu­bát­unum,“ segir Frosti. „Ég hugs­aði með mér að ég skyldi bara stökkva á þetta. Eftir nokkra daga sendi hann mér skila­boð og sagði að Teddi skip­stjóri ætti von á sím­tali frá mér.“ Frosti og skip­stjór­inn, Theódór Rík­harðs­son, töl­uðu svo saman. „Hann sagð­ist ætla að gefa mér séns í byrjun ágúst. Ég var búinn að bíða allt sum­arið eftir þessu tæki­færi. Og ég sló til og flaug austur 31. júlí síð­ast­lið­inn, hitti þessa menn sem ég hafði aldrei hitt áður og úr varð eitt mesta ævin­týri lífs míns.“ Ævin­týrið átti sér stað á 30 tonna yfir­byggðum plast­báti sem var byggður árið 2018.

Veðmál í gangi

Frosti segir að margir vinir sínir hafi í gegnum tíð­ina talað um að reyna að kom­ast á sjó og þá hafi alla dreymt um að kom­ast á upp­sjáv­ar­skip: „Átta tíma vaktir og kannski þrjár millj­ónir í laun á mán­uði og bara ekk­ert mál. En ég hafði oft heyrt líka af vinum mínum sem voru að reyna að fara á sjó,“ segir Frosti og telur upp nokkur komment sem hann hefur heyrt þá segja um reynslu þeirra: „Ég fékk bara pláss á línu­báti og það er ógeð. Það er við­bjóður. Það gerir þetta eng­inn. Þetta er mesti við­bjóður sem þú getur boðið þér upp á.“ Jú, þetta seg­ist Frosti oft hafa heyrt. „Ég vissi ekk­ert út á hvað línu­sjó­mennska gengur. Ég hafði bara heyrt að þetta væri and­styggi­legt.“

Þetta er seig­drep­andi veiði­skapur. Þú ert alltaf að í stað­inn fyrir að á tog­urum þá koma tarn­irnar og svo áttu frí á milli.

„Einmitt. Það er ekk­ert svo­leiðis í boði á lín­unni.“

Ég ein­setti mér það að ég ætl­aði að fara þarna um borð og passa mig á að væla aldrei, kvarta ekki yfir neinu.

Hvernig var svo fyrir land­krabbann að leggja á haf út?

„Ég átti von á því að verða mjög sjó­veikur. Það var búið að segja við mig að í fyrsta lagi þá verði eig­in­lega allir sjó­veikir til að byrja með; sér­stak­lega á þessum bátum. Vaggið og velt­ing­ur­inn er þannig ein­hvern veg­inn að það er mjög lík­legt að maður verði sjó­veikur. En það kom fljótt í ljós að ég fann enga sjó­veiki. Svo liðu dag­arnir og það gerð­ist aldrei. Þeir voru frekar hissa á því, skips­fé­lagar mínir um borð, að ég var alveg laus við þetta. Og þeir sögðu mér eftir á að þeir hafi verið með veð­mál í gangi um hvort ég myndi end­ast í þrjá daga eða tvo. Mér er sagt að þegar menn verða sjó­veikir og það rjátl­ast ekki af þeim strax þannig að þeir verða sjó­veikir dag eftir dag þá ertu búinn að æla öllu upp sem þú átt og öll stein­efnin í lík­am­anum farin og þá hefur þú enga orku. Þú gefst upp. Ég átti eins von á því að það myndi verða mitt til­felli en það var aldeilis ekki. Ég ein­setti mér það að ég ætl­aði að fara þarna um borð og passa mig á að væla aldrei, kvarta ekki yfir neinu og gera bara eins og mér væri sagt og mér tókst að gera það eig­in­lega alveg 100%.“

Engin hvíld

Úthaldið tók 14 daga. Tvær vikur.

„Það er landað á svona tveggja daga fresti; maður nær að henda sér í koju á inns­tím­inu og það er eig­in­lega eini tím­inn sem þú færð að sofa og svo kemur þú að bryggj­unni og fyrst heldur maður kannski að maður fái eitt­hvað breik þá og geti farið að anda léttar en það er aldeilis ekki. Þá þarftu að fara að landa upp úr hel­vítis dall­inum. Það er hörku­vinna og ekki síst mesta púlið þar. Tog­ara­sjó­menn­irnir koma ekki nálægt svo­leiðis. Það er í öllum kjara­samn­ingum sjó­manna að þeir þurfa ekki að landa einu né neinu. En á lín­unni þá landar þú þessu öllu sjálfur. Svo þegar þú ert búinn að landa þá hefðir þú kannski líka haldið að þú fáir eitt­hvað breik; en, nei, nei, þá er farið beint í að ná í beitu og fylla dall­inn af beitu. Það er líka hel­vítis púl. Svo þegar þú ert búinn að fylla dall­inn af beitu þá er siglt strax aftur út.“

Þannig að þetta er ekki mikil hvíld.

„Nei, það er engin hvíld þarna. Og svo um leið og þú ert kom­inn út á miðin þá þarftu að fara að dæla út lín­unni. Þetta er 25 kíló­metra löng lína og tekur marga klukku­tíma að leggja. Og ég er bara á beitn­inga­vél­inni alveg grænn og kann eig­in­lega ekki neitt; þannig að ég er settur á beitn­inga­vél­ina sem er frekar ein­falt fyr­ir­bæri. Ég þarf að mata vél­ina með síld, heilar síldar, og hún dúndrar út lín­unni og brytjar síld­ina niður um leið og hendir henni á króka; 20.000 króka á þremur klukku­tímum. Og ég má ekki líta af; ég þarf að setja síld, síld, síld, síld.“

Og eng­inn sem leysir þig af í þrjá tíma.

„Nei, það er eng­inn. Og þú getur ekki litið frá þessu í eina sek­úndu.

Hann var að elda lamba­hrygg og lamba­fille, nauta­kjöt, fol­alda­kjöt og snit­sel.

Svo var sá háttur um borð í þessum báti að þegar við vorum búnir að leggja þá yfir­leitt var skip­stjór­inn með hátíð­ar­mál­tíð til­búna. Hann eldar þarna um borð, Theódór Rík­harðs­son. Þvílíkur kokkur. Og það er nú þannig að ég hafði ekki borðað kjöt í 10 ár. 2012 horfði ég á ein­hverja dýra­vernd­un­ar­heim­ilda­mynd og stein­hætti að borða kjöt. Það var hrylli­leg fram­koma við blessuð dýrin. En ég hugs­aði þegar ég fékk þetta pláss að ég ætl­aði ekki að fara að væla; að koma ekki um borð og segja „strákar, ég borða ekki kjöt; ég er græn­metisæta“. Það ein­hvern veg­inn var ekki að fara að ganga upp. Þannig að ég byrj­aði að borða kjöt. Og borð­aði kjöt þarna hvern ein­asta dag í 14 daga. Hátíð­ar­mál­tíð alltaf. Hann var að elda lamba­hrygg og lamba­fille, nauta­kjöt, fol­alda­kjöt og snit­sel.“

Þannig að skip­stjór­inn er líka kokkur.

„Já, þetta er örugg­lega besti kokk­ur­inn í flot­anum. Ég get svo­leiðis svarið það. Þetta var hrika­lega gott. Þannig að við vorum yfir­leitt að borða um fjögur um nótt­ina; þá fáum við þessa fínu kjöt­mál­tíð og þá var eins gott að næra sig vel. Og stundum fær maður að fara smá í koju eftir það og leyfa fisk­unum að bíta á krók­ana. Síðan er byrjað að draga lín­una. Og eins og ég segi; það tekur 10 klukku­tíma að draga inn 25 kíló­metra langa línu. Og þá var heldur ekk­ert stoppað. Ég er mest í því að blóðga fisk­inn. Ég kann ekk­ert á upp­stokk­ar­ann ennþá. Það eru alls konar hand­tök þar sem ég þarf að læra. Ég fékk stundum að fara aðeins á rúll­una.“

Á gogg­inn.

„Á gogg­inn. Af því að þyngd­ar­aflið er nú þannig að þegar fisk­ur­inn er dreg­inn upp og ef það er stór fiskur þá yfir­leitt dettur hann af króknum þannig að þú þarft að vera til­bú­inn að krækja hann með gogg­inum og það er svaka­legt púl. Þú þarft að taka á öllum þínum kröftum til að kasta þeim inn. Svo þegar þeir detta í sjó­inn; það fer eng­inn fiskur til spillis, þeir eru umsvifa­laust kræktir upp og sveiflað upp í bát­inn.“

Harðjaxlar

Frosti segir að þetta sé stöðug vinna.

„Þetta hljómar kannski eins og ein­hver þræl­dómur en þetta er ótrú­lega skemmti­legt. Eins og þegar Páll Hreinn sagði við mig að hann væri með full­kom­inn bát fyrir mig til að fara á og full­komna áhöfn; það reynd­ist heldur betur rétt því þessir strákar sem ég var með um borð: Ég trúði því ekki fyrstu dag­ana hvað þetta voru harðir jaxlar. Ég hef aldrei hitt eins mikla harð­jaxla á ævi minni.“

Þeir hafa verið góðir við þig.

„Já, þeir voru góðir við mig allan tím­ann.“

Oft þegar við­van­ingar eru að koma þá er verið að spila með þá.

Ein mín mesta gæfa í líf­inu var að hætta að drekka brenni­vín á sínum tíma.

„Já, þeir sögðu að þeir hafi stundum látið við­van­ing­inn taka tann­bursta til að þrífa alla krók­ana. Það eru þarna kannski 200.000 krókar. Þeir létu mig ekk­ert finna fyrir þessu. Og þeir voru líka svo skemmti­legir. Ég hef alltaf borið virð­ingu fyrir þess­ari starfs­grein og þess­ari stétt sjó­manna en að fylgj­ast með þessum strákum, það var eitt­hvað annað, og svo eru þeir svo klárir. Þetta eru strákar sem eru búnir að vera á sjó síðan þeir voru kannski 16 ára en þeir eru samt svo klárir, vel máli farnir og ofsa­lega næmir á sam­fé­lagið og orð­heppnir og ein­hvern veg­inn alveg með þetta. Þeir eru rosa­lega skemmti­legir og reyta af sér brand­ar­ana allan sól­ar­hring­inn og eru líka svo miklir vinir. Það er alveg dýrð­legt að fylgj­ast með þessu. Við eigum það líka sam­eig­in­legt að vera allir edrú­menn. Ein mín mesta gæfa í líf­inu var að hætta að drekka brenni­vín á sínum tíma og ég hef eign­ast í gegnum edrú­mennsk­una mína allra bestu vini; ótrú­lega traustan og sterkan félags­skap. Og það bara bæt­ist í hann núna. Það er eins og það sé lukku­ský yfir mér að mér finnst. Ég kynn­ist þessum þremur núna orð­inn 44 ára gam­all og þetta eru ein­hverjir merki­leg­ustu og bestu menn sem ég hef á ævi minni kynnst.“

Um 120 kílóa beinhákarl

Þeir mokveiddu í þessum túr.

„Já, ég held við höfum veitt vel. Ég held að þetta hafi verið tæp 90 tonn sem við tókum. Ég hef nátt­úr­lega engan sam­an­burð, þekki það ekki, en mér skilst að við höfum verið að veiða vel og við vorum líka að fylla dall­inn nokkrum sinnum. Þá þurfum við að ná í auka­kör upp á þak. Þessir strákar eru líka búnir að mastera þá kúnst að ná hámarks­getu báts­ins ein­hvern veg­inn. Þeir troð­fylla hann; þeir fylla hann svo­leiðis af beitu að það er ekki þver­fótað fyrir beitu um borð þegar við leggjum af stað. Það er til þess að geta lagt alla­vega tvisvar sinnum og þurfa ekki að fara í land. Fisk­ur­inn er kældur með krapa til þess að halda afl­anum ferskum á meðan við erum að veiða meira. Það er ekk­ert sem getur komið fyrir um borð í bátnum sem þessir strákar geta ekki ráðið við. Við fengum tvisvar sinnum hákarl í lín­una. Strax á fyrsta degi kom um 1200 kílóa bein­hár­karl í lín­una alveg helflæktur. Og ég hugs­aði hvað gerum við nú? Risa­skepna. Ég hafði aldrei séð neitt þessu líkt og þeir náðu ein­hvern veg­inn að vefja honum út úr lín­unni og frelsa hann með ein­hverjum ótrú­legum kúnstum.“

Heldur þú að hann hafi lifað?

„Ég veit það ekki, þetta eru tign­ar­legar skepnur sem verða örugg­lega 300 ára gamlar og væri synd að þær endi ævina á lín­unni hjá Vésteini GK.“

Það væru svo­lítið snaut­leg örlög.

Frosti borðar ekki hákarl.

„Ég er hand­ó­nýtur sjó­maður. En ég hef verið að koma sjálfum mér á óvart þannig að það er aldrei að vita nema að ég fari að borða hákarl.“

Fær í flestan sjó

Sjórinn lokkar og laðar og Frosti Logason seg­ist kunna vel við sig úti á hafi.

„Skip­stjór­inn hringdi í mig í gær­kvöldi og bauð mér að fara í annað svona úthald. Það stóð ekki til; það áttu að vera þessar tvær vikur og búið. Þannig að mér þykir mér mik­ill heiður sýndur með þessu. Ég ætla að fara aftur um borð og taka aðrar tvær vikur með þeim.“

Þá færðu kannski að fara á upp­stokk­ara. Gogginn.

„Þeir töl­uðu um það að þeir myndu koma mér betur inn í kerfin hjá þeim þannig að ég færi að gera meira gagn.“

Hvað kom þér mest á óvart á sjónum?

„Í fyrsta lagi var það dugn­að­ur­inn og eljan í þessum strákum.“

Þetta eru greini­lega jaxlar.

Það stærsta sem ég tek úr þessu er að hafa kynnst þessum strákum.

„Þetta eru ótrú­legir jaxlar. Að vera að ræsa sig upp klukkan þrjú á nótt­unni til að byrja að draga lín­una; ekk­ert hægt að sofa aðeins lengur. Þeir eru grjót­harðir og á sama tíma eru þeir miklir öðlingar og almenni­legar mann­eskjur. Það stærsta sem ég tek úr þessu er að hafa kynnst þessum strákum. Svo er það bara hvað bátur eins og þessi getur aflað mikið. Það kemur á óvart. Þeir troð­fylla svona línu­bát og geta komið með í land upp í 50 tonn þegar allt er troð­fyllt. Og það kom mér á óvart hvað þetta er ótrú­lega skemmti­legt.“

Frosti seg­ist ætla að halda áfram að gera það sem hann kann best. „Það eru fjöl­miðla­störfin; blaða­mennska og fjöl­miðla­störf. En ég sé fyrir mér eins og til dæmis í vetur, að þá gera þeir bát­inn út frá Grinda­vík, frá jan­úar og fram í maí þá skilst mér að sé ver­tíð. Þá er þorsk­ur­inn að hrygna og þetta eru þá risaaular sem er verið að draga um borð og þeir fylla bát­inn í öllum veðrum. Og þá væri gaman að fá að fara einn og einn túr. Ekki úthald heldur fara kannski á sunnu­degi og koma á þriðju­degi og geta síðan unnið hin hefð­bundnu fjöl­miðla­störf með. En það er alla­vega draumur og ég ræddi það við ski­stjór­ann og hann tók vel í þá hug­mynd.“

Togarar ber­ast í tal og segir Frosti að hann myndi líka vilja prófa að fara á tog­ara en bendir á að þá séu túr­arnir lengri. Frosta hugn­ast illa að vera fjarri fjöl­skyldu sinni í of langan tíma í senn til lengri tíma.

„En ég tel nokkuð gott að hafa fengið eld­skírn­ina um borð í línu­bát. Þá er ég fær í flestan sjó.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ