Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Guðmundur Hrafn fær Vorstjörnuna: „Ég er náttúrlega orðlaus, stoltur og sæll“

Guðmundur Hrafn fær Vorstjörnuna: „Ég er náttúrlega orðlaus, stoltur og sæll“
Guð­mundur Hrafn var hrærður þegar hann tók við Vor­stjörn­unni ásamt dóttur sinni, Arlet Sögu Mynd/aðsend

Vor­stjarnan, styrkt­ar­sjóður fyrir hags­muna- og rétt­læt­is­bar­áttu almenn­ings, veitti í dag Guðmundi Hrafni Arn­gríms­syni, for­manni Samtaka leigj­enda, Vor­stjörn­una, við­ur­kenn­ingu fyrir óeig­in­gjarnt starf í þágu leigj­enda.

Guð­mundur Hrafn hefur vakið athygli fyrir skel­egga fram­göngu og mál­flutn­ing á þessu ári. Hann hefur víða farið og skil­greint stöðu þeirra á þann hátt að órétt­lætið verður auð­skilið öllum. Auk greina­skrifa og við­tala hefur Guð­mundur Hrafn haldið úti þætt­inum Leigj­and­inn á Sam­stöð­inni, þar sem hann fjallar um leigu­mark­að­inn og rétt­indi leigj­enda og ræðir við leigj­endur, sér­fræð­inga og bar­áttu­fólk hér heima og erlendis. Auk þessa hefur Guð­mundur Hrafn end­ur­reist Samtök leigj­enda ásamt öðru stjórn­ar­fólki og sjálf­boða­liðum, staðið m.a. fyrir fundum og Degi leigj­enda, útbúið reikni­vél fyrir við­mið­un­ar­verð hús­leigu og safnað að félag­inu á annað þús­und félags­manna. Í haust munu sam­tökin standa fyrir nor­rænu leigu­þingi á Íslandi ásamt leigj­enda­sam­tökum á Norð­ur­lönd­unum.

„Meg­in­verk­efni Vor­stjörn­unnar er að styrkja félög og sam­tök sem berj­ast fyrir hags­muna­málum almenn­ings og þeirra hópa sem ekki standa sterkt fjár­hags­lega,“ segir Védís Guð­jóns­dóttir, for­maður stjórnar Vor­stjörn­unnar. „En þótt skipu­lags starf almenn­ings og sam­taka­máttur fjöld­ans sé lyk­il­at­riði bar­átt­unnar þá vitum við líka að ein­stak­ling­arnir skipta máli, frum­kvæði þeirra og seigla. Það er of lítið gert af því að heiðra fólk sem gefur tíma sinn, vit og dugnað til að reka rétt­læt­is­bar­áttu alþýð­unnar. Við viljum því veita Vor­stjörn­una ein­stak­lingum sem hafa haft áhrif á bar­átt­una á sama tíma og við viljum efla bar­átt­una með því að styrkja félög og sam­tök með fé.“

Védís segir að sé sann­ar­lega við hæfi að veita Guðmundi Hrafni fyrstu Vor­stjörn­una. „Málefni leigj­enda hafa verið meira í deigl­unni í ár en um langan langan tíma,“ segir hún. „Hús­næð­is­málin voru aðal­mál kosn­inga­bar­átt­unnar fyrir sveita­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í vor og það var ekki síst fyrir mál­flutn­ing Leigj­enda­sam­tak­anna og ekki síst Guð­mundar Hrafns.“

Verð­launa­grip­inn Vor­stjörn­una gerði lista­konan Hulda Hákon. Vor­stjarnan er gullin stjarna mótuð af spýtnarusli.

„Ég er nátt­úr­lega orð­laus, stoltur og sæll,“ sagði Guð­mundur Hrafn. „Mér verður hugsað til þeirra sem hafa drifið áfram bar­áttu leigj­enda í gegnum tíð­ina en fengu kannski aldrei sér­stakar þakkir fyrir. Sam­fé­lagið þakk­aði Jóni frá Pálm­holti til dæmis aldrei fyrir hans stór­kost­lega fram­lag og ekki heldur fólk­inu sem stofn­aði Samtök leigj­enda eftir hrun og vann frá­bært starf; fólk eins og Ásta Hafberg, Jóhann Már Sig­ur­björns­son og ekki síst Hólm­steinn Brekkan. Það er margt fólk sem kyndir elda bar­átt­unnar, vinnur verk sín í hljóði og án launa og fær aldrei við­ur­kenn­ingu fyrir. Ég tek við Vor­stjörn­unni fyrir hönd þessa fólks.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð