Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fuck ofbeldi vettlingarnir styðja við hinsegin: „Einstök herferð á heimsvísu“

Fuck ofbeldi vettlingarnir styðja við hinsegin: „Einstök herferð á heimsvísu“

UN Women á Íslandi hefur sölu á FO vett­lingum í dag, föstu­dag­inn 2. sept­em­ber. Þetta er í átt­unda sinn sem UN Women fer af stað í FO her­ferð, nú í sam­starfi við Sjóvá. FO her­ferðin er flagg­skip UN Women á Íslandi og hafa safn­ast um 80 millj­ónir á þessum árum sem runnið hafa í að upp­ræta kyn­bundið ofbeldi á heims­vísu. Í ár verður varn­ing­ur­inn til styrktar hinsegin verk­efnum UN Women um allan heim.

UN Women er sú stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna sem berst fyrir rétt­indum og mál­efnum hinsegin fólks um allan heim, enda verður jafn­rétti ekki náð nema með jöfnum rétt­indum allra hópa. Mikið bakslag hefur orðið í rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks á síð­ustu árum, þ.m.t. innan Sam­ein­uðu þjóð­anna, þar sem aðilda­ríki takast á um þessi mál­efni. Víða býr hinsegin fólk við gríð­ar­lega mis­munun, skert rétt­indi og ofbeldi sökum kyns og kyn­hneigðar. Það er því gríð­ar­lega mik­il­vægt að UN Women standi áfram vörð um vel­ferð og rétt­indi hinsegin fólks á tímum sem þessum.

FO vettlingarnir endurlífga fjársveltan málaflokk

FO varn­ing­ur­inn í ár eru vett­lingar sem hann­aðir eru af Védísi Jóns­dóttur, prjóna­hönn­uði, og fram­leiddir af Varma. Vett­ling­arnir kosta 4.900 krónur, eru úr 100% mer­ínó ull og koma í tveimur stærðum (S/M og M/L). Hægt er að kaupa vett­ling­ana á heima­síðu sam­tak­anna, unwomen.is (https://gjafaverslun.unwomen.is/product/fo-vettlingarnir). Védís lagði mikið upp úr því að engin hlið á vett­ling­unum væri eins. Enda táknar það fjöl­breyti­leik­ann sem her­ferðin styður við.

Hinsegin verk­efni UN Women hafa verið án fjár­magns síðan í maí á þessu ári og því er fjár­stuðn­ing­ur­inn sem hlýst af sölu vett­ling­anna gríð­ar­lega mik­il­vægur. Enda verður lítið aðhafst með tómum sjóði.

97% líklegra til að verða fyrir ofbeldi

Meðal hinsegin verk­efna UN Women er þjálfun heil­brigð­is­starfs­fólks í Líberíu svo þau geti veitt hinsegin fólki við­un­andi þjón­ustu, rekstur menn­inga­set­urs fyrir konur og hinsegin fólk í Líbanon og fjöl­þætt verk­efni í Georgíu sem miðar að því að upp­ræta ofbeldi gegn hinsegin fólki.

  • 2 millj­arðar fólks býr í ríkjum þar sem hinseg­in­leiki er álit­inn glæpur
  • 84% ríkja heims banna sam­kynja hjóna­bönd og við­ur­kenna ekki til­vist þeirra. Það er því yfir­gnæf­andi meiri­hluti landa í heim­inum sem banna þau en heim­ila. Mikið bakslag hefur átt sér stað til dæmis í Banda­ríkj­unum og víða í Evrópu þar sem árangur hafði áður náðst og því standa þessi rétt­indi víða höllum fæti.
  • Hinsegin fólk er 97% lík­legra til að verða fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi en þau sem ekki skil­greina sig sem hinsegin.
  • Hinsegin fólk er hand­tekið og sett í fang­elsi fyrir að vera það sjálft. Í sumum löndum varðar það dauða­refs­ingu, í öðrum er grófum pynt­ingum og ómann­úð­legri með­ferð beitt.. Refs­ingin er mis­mikil. Í Úganda, Súdan, Zambíu og Gambíu svo dæmi séu tekin, varðar það lífs­tíð­ar­fang­elsi, í Afghanistan er hægt að dæma fólk til dauða, í Pakistan og Brunei er fólk steinað til dauða fyrir að vera hinsegin, í öðrum löndum tíðkast refs­ingar á borð við hýð­ingar, sektir eða opin­ber smánun.
  • Í 6 löndum ríkir dauða­refs­ing við sam­kyn­hneigð og sam­böndum fólks af sama kyni
  • Aðeins 37 ríki heims veita hinsegin fólki alþjóð­lega vernd/hæli á grund­velli ofsókna vegna kyn­vit­undar/kyn­hneigðar

Einstök herferð á heimsvísu

UN Women á Íslandi fékk 40 hinsegin ein­stak­linga til að sitja fyrir á öllu FO her­ferð­ar­efn­inu í ár og eru þau and­lit her­ferð­ar­innar. Þátttaka þeirra er tákn­ræn þar sem þau leggja sitt af mörkum til að vekja athygli á því bakslagi sem orðið hefur á heims­vísu, þar með talið á Íslandi og styðja þannig við þessa mik­il­vægu og sögu­legu söfnun.

Þetta er í fyrsta sinn sem lands­nefnd UNW (þær eru tólf á heims­vísu) safnar í hinseg­in­sjóð UN Women sem er hér um bil alveg tómur. Íslenska lands­nefndin ætlar að ríða á vaðið og setja mál­efni hinsegin fólks á dag­skrá hjá UN Women, enda er um að ræða einn við­kvæm­asta- og jað­ar­settasta hóp­inn á heims­vísu. Ljós­myndir tók Anna Maggý, sem hefur nú myndað FO her­ferð UN Women á Íslandi þrjú ár í röð.

Fögnuður og frumsýning varnings á Húrra í dag kl 17:00

Nýrri vöru og her­ferð verður fagnað á skemmti­staðnum Húrra við Tryggva­götu 22 á milli klukkan 17:00- 19:00 í dag, föstu­dag­inn 2. sept­em­ber. Þar verður hægt að næla sér í vett­linga og styrkja um leið afar mik­il­vægt og aðkallandi mál­efni. Fram koma DJ Dóra Júlía, Una Torfa­dóttir, Systur og dragdrottn­ing Íslands, Lady Zadude. Siggi Gunnars verður svo veislu­stjóri við­burð­ar­ins. Aðgangur er ókeypis og öll vel­komin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð