Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Neitaði að mæta: „Með því að þiggja boðið er ég að leggja blessun yfir hjónaband samkynhneigðra“

Neitaði að mæta: „Með því að þiggja boðið er ég að leggja blessun yfir hjónaband samkynhneigðra“
Mynd/sam­sett

„Með því að þiggja boðið er ég að leggja blessun yfir hjóna­band sam­kyn­hneigðra,“ sagði  fær­eyski stjórn­mála­mað­ur­inn Jenis av Rana sem neit­aði að sitja við sama borð og Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir og maki hennar, Jónína Leós­dóttir, vegna kyn­hneigðar þeirra, þar sem hann vildi meina að hjóna­bönd sam­kyn­hneigðra stríddu gegn vilja guðs. Nú eru 12 ár eru frá opin­berri heim­sókn þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra Íslands, Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur og eig­in­konu hennar Jónínu Leós­dóttur, til Færeyja. 

27. júní sama ár höfðu Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir og Jónína Leós­dóttir gengið að eiga hvor aðra í hjóna­bandi, sama dag og ný hjú­skap­ar­lög, sem veittu öllum rétt allra óháð kyn­hneigð, tóku gildi á Íslandi. 

Þing­mað­ur­inn Jenis av Rana var á þessum árum for­maður Mið­flokks­ins sem hafði það á stefnu­skrá sinni að Færeyjum skyldi stjórnað eftir lögum Bibl­í­unnar.  

Í frétt Morg­un­blaðs­ins 8. sept­em­ber 2010 var fjallað um heim­sókn for­sæt­is­ráð­herra í Færeyjum, þar sagði: „Írafár varð í Færeyjum vegna ummæla þing­manna sem sögðu heim­sókn Jóhönnu og eig­in­konu hennar, Jónínu Leós­dóttur, vera „ögrun“. Einn þeirra, Jenis af Rana, berst ákaft gegn rétt­indum sam­kyn­hneigðra. Jenis, sem er leið­togi kristi­lega Mið­flokks­ins, segir hjóna­bönd sam­kyn­hneigðra brjóta í bága við vilja Guðs. […] Haft var einnig eftir Gerhard Lognberg, þing­manni í Javn­að­ar­flokk­urin, syst­ur­flokki Sam­fylk­ing­ar­innar, á vef Nor­dlysid að hann liti á heim­sókn Jóhönnu sem ögrun.“ 

Fordæmdur af mörgum

Málið vakti víða athygli og for­dæmt af mörgum var þar á meðal lög­maður Fær­ey­inga Kaj Leo Johann­esen sem sagði: „Skammastu þín, Jenis“ í sam­tali við útvarps­stöð­ina Kringvarpið.

Í fyrr­greindi frétt Morg­un­blaðs­ins kom einnig fram að: „Högni Hoydal, for­maður Þjóð­veld­is­flokks­ins í Færeyjum, gagn­rýndi einnig Jenis harð­lega. Magni Laks­á­foss, þing­maður Sam­bands­flokks­ins, for­dæmdi skoð­anir Jenis. „Ég tel að þetta hafi ekk­ert með Jóhönnu að gera. Ég held að hann sé að hlúa að sínum eigin atkvæðum,“ sagði Laks­á­foss.“ 

Í kjölfarið var hann sjálfur sniðgenginn

Í DV 15. sept­em­ber 2010 er þess getið að Jenis hafi í kjöl­far fram­göngu sinnar og orða verið snið­geng­inn af dönskum þing­manni. 

„Danski þing­mað­ur­inn Mogens Jensen leggur til að ráð­herrar og full­trúar Norð­ur­landa­ráðs sitji ekki til borðs með fær­eyska þing­mann­inum og flokks­leið­tog­anum Jenis av Rana á mat­máls­tímum á fundum ráðs­ins. Í yfir­lýs­ingu frá Jensen sem birt er á vef jafn­að­ar­manna í Norð­ur­landa­ráði for­dæmir hann fram­komu fær­eyska þing­manns­ins gagn­vart Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í heim­sókn hennar til Færeyja á dög­unum, en Jenis av Rana, neit­aði þá að sitja til borðs með henni vegna þess að hún er sam­kyn­hneigð.“

Árni Johnsen vildi sýna umburðarlyndi

Opin­berun for­dóma Jenis skap­aði háværa umræðu um for­dóma gegn hinsegin sam­fé­lags­ins. Árni  Johnsen, þáver­andi þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafði verið í við­tali hjá Press­unni og kom því fram að hann vildi að fær­eyska þing­mann­inum yrði sýnt umburð­ar­lyndi. Þar sagði hann: „Ég vil ekki blanda mér í þessi ummæli hans. Jenis er sér­stæður per­sónu­leiki og mik­ill grund­vall­ar­maður og það ber að virða. Fær­ey­ingar eru harð­skeyttir í mein­ingum sínum og það ber að virða það þótt við vildum hafa það öðru­vísi.“ 

Í leið­ara Jóns Trausta Reyn­is­sonar rit­stjóra DV 10. sept­em­ber 2010 svarar hann ummælum Árna og segir að umburð­ar­lyndi gagn­vart kúgun sé afstaða með kúg­un­inni en ekki umburð­ar­lynd­inu. „Íslend­ingar ættu að standa þétt að baki Jóhönnu og Jónínu og mót­mæla ein­elti fær­eysku þing­mann­anna allir sem einn. Við þurfum að sýna svo ekki verði um villst að við tökum virka afstöðu gegn for­dómum en ekki óvirka afstöðu með þeim. Við sitjum ekki hjá og horfum upp á for­sæt­is­ráð­herra lands­ins lagðan í opin­bert ein­elti fyrir kyn­hneigð sína.“

Framfarir í réttindabaráttunni

Veruleg fram­farir hafa átt sér stað í fær­eysku sam­fé­lagi en 2017 eða sjö árum síðar voru hjóna­bönd sam­kyn­hneigðra sam­þykkt á fær­eyska lög­þing­inu. Sama það ár var Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur og Jónínu Leós­dóttur boðið að opna gleði­göngu Fær­ey­inga. 

Í frétt hjá RÚV 20. júlí 2017 kemur fram: „Síðan þá hafa miklar fram­farir náðst og meðal ann­ars hefur hjóna­band sam­kyn­hneigðra verið lög­fest, eins og lesa má á vefnum LGBT.fo, þar sem segir að Færeyjar voru síð­asta Norð­ur­landa­þjóðin til að leyfa hjóna­band sam­kyn­hneigðra og 23. landið til að gera það á heims­vísu.“

Í frétt frá 20. Júlí 2017 á vísi.is  segir: „Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, sem var fyrsti opin­ber­lega sam­kyn­hneigði þjóð­ar­leið­togi heims, mun opna átt­undu hinsegin göng­una í Færeyjum þann 27. júlí næst­kom­andi. Jóhönnu er meðal ann­ars boðið að taka þátt í ár til að varpa ljósi á þær fram­farir sem hafa átt sér stað í rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks í Færeyjum á síð­ustu árum. […]  Áætlað er að þús­undir muni ganga til stuðn­ings hinsegin fólki þennan dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð