Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Tvennt fórst í harmleiknum á Skarfaskeri – Jónas dæmdur í fangelsi fyrir að sigla skemmtibát á sker

Tvennt fórst í harmleiknum á Skarfaskeri – Jónas dæmdur í fangelsi fyrir að sigla skemmtibát á sker

Föstu­dags­kvöldið 9. sept­em­ber 2005 sigldi Jónas Garð­ars­son, fyrr­ver­andi for­maður Sjó­manna­fé­lags Íslands, skemmti­bátnum sínum, Hörpu, upp á sker á Við­eyj­ar­sundi. Hann var drukk­inn við stýrið og í slys­inu lét­ust tvær mann­eskjur, sam­býl­is­fólkið Friðrik Ásgeir Her­manns­son, 34 ára, og Matt­hildur Victoría Harð­ar­dóttir, 51 árs. Fyrir dómi reyndi Jónas að koma sök­inni yfir á hina látnu Matt­hildi og greiddi aðstand­endum aldrei þær bætur sem honum var dæmt að greiða, 10 millj­ónir króna. Þar að auki hlaut hann þriggja ára óskil­orðs­bund­inn fang­els­is­dóm fyrir mann­dráp af gáleysi.

Jónas var ekki við­staddur dóms­upp­kvaðn­ing­una í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í júní­mán­uði 2006. Þar var hann dæmdur í þriggja ára óskil­orðs­bundið fang­elsi fyrir mann­dráp af gáleysi og brot á sigl­inga­lögum er hann steytti bátnum á Skarfa­skeri með þeim afleið­ingum að Friðrik og Matt­hildur lét­ust.

Fimm voru í bátnum

Jónas festi kaup á skemmti­bát í Englandi og sigldi honum til lands­ins þann 20. ágúst árið 2005. Fékk bát­ur­inn heitið Harpa eftir eig­in­konu hans, Guðjónu Hörpu Helga­dóttur. Aðfara­nótt 10. sept­em­ber þetta sama ár steytti Jónas skemmti­bátnum á Skarfa­skeri á Við­eyj­ar­sundi á mik­illi ferð.

Fimm manns voru í bátnum og lét­ust tveir far­þeg­anna í slys­inu, þau Friðrik og Matt­hildur. Voru þau saman í skemmti­ferð til að fagna því að Friðrik, sem var lög­fræð­ingur, hefði flutt sitt fyrsta próf­mál fyrir Hæsta­rétti. Jónas stóð við stýri báts­ins og þótti sannað að hann hafi verið drukk­inn. Samkvæmt dómi gerði hann ekki ráð­staf­anir til að bjarga far­þegum báts­ins, þar á meðal konu sinni og barni. Jónas var ákærður fyrir mann­dráp af gáleysi og brot á sigl­inga­lögum en hann neit­aði stað­fast­lega að hafa verið við stjórn­völ­inn á bátnum þegar hann steytti á sker­inu í Kolla­firði. Við rétt­ar­höld vegna máls­ins reyndi Jónas að koma ábyrgð á slys­inu yfir á Matt­hildi. Jónas greiddi aðstand­endum þeirra Friðriks og Matt­hildar aldrei þær bætur sem hann var dæmdur til að greiða.

Vildi tryggja öryggi fjölskyldunnar

Auk þriggja ára fang­els­is­dóms­ins, sem stað­festur var fyrir Hæsta­rétti í maí 2007, var Jónasi gert að greiða aðstand­endum fórn­ar­lambanna 10 millj­ónir í bætur. Á meðan hann sæti inni sagð­ist hann hins vegar vilja tryggja fjár­hags­legt öryggis fjöl­skyldu sinnar og því ætl­aði hann ekki að borga skaða­bæt­urnar fyrr en hann væri búinn að taka út refs­ing­una. Þá bjuggu þau hjónin í ein­býl­is­húsi sem var skráð á eig­in­kon­una.

Eins og áður segir sigldi Jónas út á Kolla­fjörð föstu­dags­kvöldið 9. sept­em­ber ásamt, eig­in­konu sinni, ell­efu ára syni og vina­fólki sínu. Þegar liðið var á nótt­ina, rétt fyrir klukkan tvö, sigldi bát­ur­inn á Skarfa­sker á miklum hraða. Sonurinn var þá sof­andi í káetu báts­ins en aðrir í stýr­is­hús­inu.

Í dag starfar Jónas enn fyrir Sjó­manna­sam­bandið þar sem hann er titl­aður sem eft­ir­lits­maður.

Skemmti­bát­ur­inn var fastur á sker­inu í um það bil tutt­ugu mín­útur. Þá var bátnum bakkað í til­raun til að sigla honum skemmdum í höfn. Þegar leit út fyrir að bát­ur­inn væri að sökkva hringdi Jónas í Neyð­ar­lín­una. Eftir að hafa siglt í um fjórar mín­útur hvolfdi bátnum og ætla má að Matt­hildur, sem var í káet­unni, hafi drukknað þá.

Langt yfir mörkum

Lög­reglu­menn á gúmmí­bát fundu Hörpu meira en klukku­tíma eftir neyð­ar­kallið og var þá Jónas hang­andi utan á bátnum. Guðjóna, eig­in­kona hans, og sonur þeirra sátu á kili skemmti­báts­ins, öll með tals­verða áverka. Þá þegar hófst leitin að Friðriki og Matt­hildi. Lík hennar fannst fljót­lega en lík hans ekki fyrr en viku eftir árekst­ur­inn.

Viku eftir árekst­ur­inn voru Jónas og Guðjóna yfir­heyrð og höfðu þá rétt­ar­stöðu sak­born­inga. Talið var að þau hefðu neytt áfengis þetta kvöld en rann­sóknin beind­ist að því að kom­ast að því hver hefði verið við stýrið þegar bát­ur­inn steytti á sker­inu en rann­sókn lög­reglu leiddi í ljós að það hafi verið sjálfur eig­and­inn. Út frá rann­sókn­inni var Jónas kærður og síðar ákærður fyrir mann­dráp af gáleysi.

Fyrir dómi við­ur­kenndi Jónas að hafa drukkið áfengi hið örlaga­ríka kvöld. Um nótt­ina mæld­ust 1,07 pró­mill í blóði hans sem er vel yfir leyfi­legum mörkum. Jónas sagð­ist fyrir dómi þó ekki hafa fundið fyrir ölvun og gæti sjálfur metið það hvort hann gæti stjórnað báti ver­andi búinn að drekka. Hann hafn­aði því  að hafa verið við stýrið og sagð­ist muna atburði kvölds­ins þangað til hann lét Matt­hildi um stjórn báts­ins.

Rannsókn á áverkum þeirra sem um borð voru leiddi hins vegar í ljós að Matt­hildur hefði verið í setu­stofu báts­ins. Töldu dóm­arar að Jónas sjálfur hefði staðið við stýrið. Björg­un­ar­bátur var geymdur í tösku í vél­ar­rým­inu og virt­ist sem engar til­raunir hafi verið gerðar til að opna hann. Einnig voru hvorki neyð­ar­blys né tal­stöð báts­ins notuð.

Friðrik og Matt­hildur lét­ust í slys­inu. Blessuð sé minn­ing þeirra.

Sorgleg saga

Jónas Garð­ars­son fædd­ist í Reykja­vík þann 8. októ­ber árið 1955 og ólst upp á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Eftir gagn­fræða­próf fór hann á sjó­inn og var í sigl­ingum á skipum Eim­skipa­fé­lags­ins í tíu ár. Um tíma var hann einnig á íslenskum varð­skipum.

Árið 1982 hóf Jónas störf hjá Sjó­manna­fé­lagi Reykja­víkur, sem síðar varð að Sjó­manna­fé­lagi Íslands. Árið 1991 var Jónas orð­inn fram­kvæmda­stjóri Sjó­manna­fé­lags­ins og árið 1994 for­maður. Einnig hefur hann setið í stjórnum Sjó­manna­sam­bands Íslands, Líf­eyr­is­sjóðs sjó­manna, sam­bands­stjórnar Alþýðu­sam­bands Íslands og í sjó­manna­dags­ráði.

Jónas hefur starfað fyrir Sjó­manna­fé­lagið í næstum fjöru­tíu ár og á sér merki­lega en jafn­framt sorg­lega sögu. Í dag starfar hann enn fyrir Sjó­manna­sam­bandið en hann er titl­aður sem eft­ir­lits­maður Alþjóð­lega flutn­inga­verka­manna­sam­band­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við