Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Segja Kópavogsbæ hygla fyrirtækinu Árkór: „Það er nauðsynlegt að rannsaka sölu á eignum bæjarins“

Segja Kópavogsbæ hygla fyrirtækinu Árkór: „Það er nauðsynlegt að rannsaka sölu á eignum bæjarins“

Bæj­ar­sjóður blæðir, fjár­festir græðir er yfir­skrift greinar þeirra Hákons Gunn­ars­sonar og Tryggva Fel­ix­sonar, sem fjallar um við­skipti Kópa­vogs­bæjar við fjár­festa­fyr­ir­tækið Árkór ehf.

Þeir félagar segja að „ef við­skipti Kópa­vogs­bæjar við fjár­festa­fyr­ir­tækið Árkór ehf. eru skoðuð vakna spurn­ingar um hverjum bæj­ar­yf­ir­völd í Kópavogi þjóna. Mán­að­ar­legar greiðslur úr bæj­ar­sjóði Kópavogs nema nú um 6,7 m.kr. til nefnds fyr­ir­tækis fyrir afnot hluta þess hús­næðis sem áður var í eigu bæj­ar­búa; hús­næði sem var selt í miklum flýti fyrir bæj­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar vorið 2018. Þá nemur afsláttur sem bæj­ar­fé­lagið veitir sama fyr­ir­tæki á fast­eigna­gjöldum á hús­eign­inni Fannborg 2, gamla félags­heim­il­inu okkar Kópa­vogs­búa, um 6 m.kr. á ári.

Árlega gerir þetta tæp­lega 90 millj­óna króna milli­færslu á fjár­munum úr sam­eig­in­legum sjóði bæj­ar­búa yfir til fyr­ir­tæk­is­ins Árkórs ehf. fyrir afnot af hús­næði sem áður var í eigu bæj­ar­fé­lags­ins.“

Að auki benda þeir Hákon og Tryggvi á að „þetta sama fyr­ir­tæki (stofnað í mars 2018 og er án reynslu í bygg­inga- eða fast­eigna­við­skiptum) hefur fengið nokkuð frjálsar hendur um gerð deiliskipu­lags á svæð­inu sem fast­eign­irnar sem félagið keypti af bænum eru stað­settar á. Það deiliskipu­lag hefur verið til­efni víð­tækrar og alvar­legrar deilu og valdið miklum sárs­auka og ang­ist íbúa á svæð­inu.

Það er því eðli­legt að spurt sé: hverjum þjóna bæj­ar­yf­ir­völd í Kópavogi? Íbúum eða fjár­festum sem vilja ávaxta sitt pund með fast­eigna­við­skiptum í hjarta bæj­ar­fé­lags­ins?“

Einnig færa þeir í tal að „um leið og Kópa­vogs­bær gerði samn­ing­inn við Árkór ehf. 10 mín­útum fyrir kosn­ingar í maí 2018 samdi bær­inn um leigu á Fannborg 6 (óbreytt starf­semi!) á 3 millj­ónir á mán­uði í 5 ár. Sú upp­hæð var verð­tryggð og nemur nú 3,7 millj­ónum og fer hækk­andi í verð­bólgu.

Árkór reiddi fram 303 millj­ónir fyrir eign­ina og hefur fram til þessa fengið 200 millj­ónir króna úr bæj­ar­sjóði sem leigu­greiðslu. Með sama fram­haldi tekur það Árkór ehf. 8 ár að borga eign­ina upp að fullu með þeim leigu­greiðslum sem koma úr bæj­ar­sjóðnum sem seldi fyr­ir­tæk­inu eign­ina, en allt við­hald á eign­inni er á kostnað Kópa­vogs­bæjar.“

Bæta við:

„Kunn­áttu­menn um slíka samn­inga hafa upp­lýst okkur að þeir þekki engin slík for­dæmi.

Hið sögu­ríka félags­heim­ili Kópa­vogs­búa að Fannborg 2 var af bæj­ar­yf­ir­völdum fært á „fok­held­is­stig“ í júní 2019 og þar með lækk­uðu útgjöld Árkórs ehf. til bæj­ar­sjóðs um 6 m.kr. á ári. Bygg­ingin var þó ekki í verra ástandi en svo að útleiga eign­ar­innar hélt áfram.

Núver­andi leigj­andi er sá sami Kópa­vogs­bær sem taldi hús­næðið vera á „fok­held­is­stigi“. Húsnæðið var leigt af Kópa­vogsbæ fyrir kennslu (Kárs­nes­skóli og Kópa­vogs­skóli) en er nú nýtt sem athvarf fyrir fötluð börn. Úr bæj­ar­sjóði eru mán­að­ar­lega yfir­færðar um 3 millj­ónir króna til Árkórs ehf. fyrir að nýta hið fok­helda „félags­heim­ili“. Þá eru ótaldar leigu­tekjur Árkórs af samn­ingum við aðra eins og verk­fræði­stofu sem þarna var og kvitt­aði upp á gögn varð­andi sama deiliskipu­lag og Árkór hafði verið afhent sam­hliða sölu eign­anna.“

Einnig:

„Þá má geta þess að hluti sjón­varps­þáttar­að­ar­innar „Verbúðin“ var tek­inn upp í þessu hús­næði og Árkór hafði vænt­an­lega af því tekjur líka. Fjöl­miðlar hafa gert raunum íbúa í Fannborg 4 nokkur skil. Þar var opnað áfanga­heim­ili fyrir fólk í vímu­efna­vanda án þess að hús­næðið stæð­ist kröfur um eld­varnir. Bæj­ar­yf­ir­völd fóru ekki að ráðum starfs­manna um grennd­ar­kynn­ingu áður en heim­ild til starf­sem­innar var veitt. Ekki liggur fyrir hve miklar leigu­tekjur Árkór hlaut fyrir þá nýt­ingu húss­ins. Hitt er víst að aðkoma bæj­ar­yf­ir­valda að mál­inu var þeim ekki til sóma og olli ómældum áhyggjum hjá íbúum.“

Að lokum benda þeir Hákon og Tryggvi á að „meiri­hluti bæj­ar­stjórnar hefur eftir bæj­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar sl. vor að stórum hluta verið skip­aður nýju fólki. Nýir vendir sópa best, segir mál­tækið. Það er nauð­syn­legt að rann­saka sölu á eignum bæj­ar­ins að Fannborg 2, 4 og 6 og hvernig bæj­ar­fé­lagið hefur staðið að samn­ingum við Árkór ehf. Örugg­lega má af því draga dýran lær­dóm. Hugs­an­lega leiðir sú rann­sókn til þess að sækja má bætur til þeirra sem bera ábyrgð á því hve illa hefur verið farið með fé í sam­eig­in­legum sjóði bæj­ar­búa í fram­an­greindum við­skiptum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð