Listakonan Elísabet Ásberg hefur nú ákveðið að selja glæsilega íbúð sína hjarta Reykjavíkur.
Íbúðin, sem er öll hin glæsilegasta, er 163 fermetra íbúð í blokk sem byggð var fyrir fjórum árum.
Ásett verð er 185 milljónir króna.

Staðsetningin er ekkert að skemma fyrir sölunni; íbúð Elísabetar er í hinum vinsæla nýja miðbæ Reykjavíkur.

Undir blokkinni er flottur bílakjallari og mjög stutt á veitingastaði, í leikhús og aðra skemmtilega afþreyingu.

Óhætt er að segja að heimili Elísabetar sé vel skipulagt og með afar fallegum innréttingum; í eldhúsi eru svarbrúnar innréttingar með viðaráferð; á borðplötunum er Meganite Carrera efni sem passar vel við eldhússkápana; efnið áðurnefnda er bæði á borðplötum og upp um alla veggi, eða því sem næst.

Stórir gluggar prýða íbúðina þegar horft er út um gluggana í íbúðinni.

Glæsileg eign sem er þess virði að skoða, eða allavega skoða myndirnar.

































Athugasemdir