Allsherjarástand ríkir á Akureyri. Sjór gengur yfir götur bæjarins. „Mikið af löggubílum og slökkviliðsbílum, hér er algjört havarí,“ þannig lýsir heimildarmaður Mannlífs ástandinu á Eyrinni á Akureyri. Gata hefur verið rofin til að sjórinn rati sína leið. Allt tiltækt slökkvilið hefur verið kallað að vettvangi.






Á fésbókarsíðu lögreglunnar á Norðurlandi Eyrstra kemur fram: „Sjór gengur yfir götur bæjarins á Eyrinni, sérstaklega við Norðurgötu, Gránufélagsgötu og Eiðsvallagötu. Lögreglan á Norðurlandi eystra biðlar því til vegfarenda að aka ekki um þessar götur að svo stöddu þar sem vatn hefur tekið að flæða inn í hús.“































Athugasemdir