Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sigurður Jónsson kenndi við sjómannaskóla í Namibíu: „Skammtímalausn alveg fram í fingurgóma“

Sigurður Jónsson kenndi við sjómannaskóla í Namibíu: „Skammtímalausn alveg fram í fingurgóma“

Hér er brot úr frétta­máli nýjasta tölu­blaðs Mannlífs.

Þró­un­ar­sam­vinnu­stofnun Íslands eða ÞSSÍ starf­aði frá 1981 til 2015 þegar hún var lögð niður og verk­efni hennar sett undir Utan­rík­is­ráðu­neytið. Meðal verk­efna sem stofn­unin stóð fyrir var þró­un­ar­starf í Namibíu. Auk þess að útvega mann­skap til haf­rann­sókna átti stofn­unin þátt í að koma sjó­manna­skóla á lagg­irnar í afr­íku­rík­inu en hóf hann starf­semi árið 1994. Í skýrslu sem gerð var fyrir Utan­rík­is­ráðu­neytið segir að skól­inn starfi þar enn og vegni vel. Fyrr­ver­andi kenn­ari við skól­ann er á öðru máli.

Íslendingar lélegir í langhlaupi

Skólinn er enn starf­ræktur í Namibíu en starf Sigurðar og Alfreðs og fleiri starfs­manna skól­ans á sínum tíma, snéri að því að þjálfa kenn­ara, búa til náms­skrá og náms­efni og tak­markið var að sögn Sigurðar að skól­inn upp­fyllti alþjóð­lega staðla. „En það var aldrei gert. Þannig að ef skól­inn hefði verið tek­inn út af alþjóð­legu batt­eríi, þá hefði hann fallið á því prófi,“ sagði Sigurður í sam­tali við Mannlíf. Sagði hann enn­fremur að það hafi vantað tölu­vert upp á að tak­mark­inu væri náð og að lof­orðin sem gefin voru Namib­íu­mönnum varð­andi skól­ann, hafi verið upp­fyllt.

Þró­un­ar­sam­vinn­unni í Namibíu var hætt í kringum 2014 en að sögn Sigurðar kom stjórn skól­ans til Íslands til að biðja um áfram­hald­andi aðstoð. „Sem var algjör­lega nauð­syn­leg. En við höfum aldrei verið góðir í lang­hlaupi, við Íslend­ingar. Þetta var skamm­tíma­lausn alveg fram í fing­ur­góma. Þannig að þeir fóru heim án þess að fá nokkuð fyrir sína ferð,“ sagði Sigurður. Segir hann að ástandið í skól­anum í dag sé ekki gott. „Eftir að þetta fór nú að verða svona, urðu miklar manna­breyt­ingar. Það hélst illa í fólk. Og það komu þarna fólk sem við höfðum aldrei þjálfað eða kennt í kennslu­fræðum. Þannig að það hafa orðið mikil umskipti. Og það þýðir bara það að ef skól­inn yrði skoð­aður í dag fengi hann engan alþjóð­legan stimpil sem alvöru skóli. Ég hef alltaf litið svo á að það er okkar sök í þessu máli að hafa ekki staðið okkur gagn­vart því. Þetta var bara dap­urt,“ sagði Sigurður.

Skólinn uppfyllir ekki alþjóðlega staðla

Sigurður kemur aftur inn á úttekt­ina sem gerð var fyrir Utan­rík­is­ráðu­neytið: „Þú getur búið til skýrslu og látið allt líta vel út, það er ekk­ert vanda­mál. En ef það væri fólk sent þangað til að gera almenni­lega úttekt á skól­anum, hver staðan væri í dag, þá kæmi hið sanna í ljós. Nú veit ég ekki hvort að sá sem biður um skýrslu, eins og Þró­un­ar­sam­vinnu­stofn­unin í þessu til­felli, geti lagt lín­urnar um að þetta yrði að vera góð skýrsla. En svo má alveg segja það að miðað við stöð­una eins og hún var árið 1995 þá hafa orðið fram­farir þarna en þær leiddu ekki til þess sem við lögðum upp með á sínum tíma. Að þarna yrði skóli sem yrði sam­þykktur af alþjóð­legum stofn­unum.“ Segir kenn­ar­inn fyrr­ver­andi að þeir skip­stjórar sem lært hafa í skól­anum yrðu beðnir um papp­íra í ein­hverri höfn­inni út í heimi, gætu þeir lent í vand­ræðum. „Í dag er þetta þannig að ef þú ert yfir­maður á skipi og ferð í erlenda höfn, þá get­urðu átt von á því að þurfa að sýna þína papp­íra. Og þeir papp­írar þurfa að hafa gildi fyrir alþjóð­leg trygg­ing­ar­svæði. Því ef að það er ekki verður bara þitt skip stöðvað.“ Segir Sigurður að skír­teini úr Sjó­manna­skól­anum í Namibíu sé svipað og punga­prófið hér á landi: „Þú mátt sigla innan þinnar land­helgi en þú ferð raun­veru­lega ekk­ert út fyrir hana.“

„Við eyddum alveg ofboðs­legum pen­ing í þetta,“ sagði Sigurður og bætti við að Norðmenn hafi einnig hent í þetta miklum fjár­hæðum. „Þeir keyptu til dæmis svona sigl­inga­hermi og Víðir var að kenna mönnum að nota þann hermi. Þessi hermir sam­an­stóð af fjórum PC-tölvum og þetta var meira svona eins og tölvu­leikur. Ég veit ekk­ert hver er að kenna á þetta núna en þetta er löngu orðið úrelt.“ Segir Sigurður að það hafi verið eytt í ýmis­legt á borð við herm­inn án þess að hugsa út í lang­tíma­mark­miðin og án þess að upp­færa reglu­lega. „En það var ekk­ert óeðli­legt að settur væri í þetta pen­ing en ég veit ekki hversu há sú upp­hæð er en hún var stór. Og þessum pen­ing var hent. Það má alveg segja það. Þetta var alltaf í byrj­enda­fasa og komst ekk­ert upp úr honum. Ég held að það hafi verið mörgum okkar ljóst að svona 10 ár í við­bót hefði verið alveg nauð­syn­legur tími.“

Hægt er að lesa alla grein­ina í nýjasta tölu­blaði Mannlífs nákvæm­lega hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð