Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Bjarni Frímann: „Árni Heimir Ingólfsson braut á mér kynferðislega – var kærður fyrir nauðgun 2020“

Bjarni Frímann: „Árni Heimir Ingólfsson braut á mér kynferðislega – var kærður fyrir nauðgun 2020“
Bjarni Frímann Bjarna­son.

Bjarni Frímann Bjarna­son tón­list­ar­maður segir á Facebook-síðu sinni að „Árni Heimir Ing­ólfs­son braut á mér kyn­ferð­is­lega á heim­ili sínu þegar ég var nem­andi hans í Lista­há­skóla Íslands. Ég var 17 ára, hann var 35 ára.“

Árni Heimir Ing­ólfs­son.

Í færsl­unni ritar Bjarni að hann hafi reynt hvað hann gat til að halda mál­inu innan veggja hljóm­sveit­ar­innar; sem honum hefur alla tíð þótt vænt um.

Bjarni Frímann skrifar:

„Víti til varn­aðar:

Hin árlega ráð­stefna nor­rænna sin­fón­íu­hljóm­sveita sem haldin er í Hörpu þessa dag­ana hefur hina víð­tæku og mik­il­vægu yfir­skrift Susta­ina­bility eða sjálf­bærni. Vafa­lítið er nýliðun í hópi hljóð­færa­leik­ara og stjórn­enda veiga­mik­ill þáttur í þeirri umræðu. Þess vegna vil ég leggja orð í belg. Bæði fyrir sjálfan mig en ekki síður annað ungt tón­list­ar­fólk svo því verði eins og kostur er forðað frá því að verða fórn­ar­lömb kyn­ferð­is­legs ofbeldis eða áreitis sem jafn­vel geti leitt til útskúf­unar þess í heimi tón­list­ar­innar.“

Hann bætir við að „eins ósann­gjarnt og það nú er að þolend­unum sé refsað eins og ég hef því miður upp­lifað á eigin skinni. Ég hef, m.a. vegna þess hve vænt mér hefur alla tíð þótt – og þykir – um Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands, reynt að halda þess­ari ömur­legu lífs­reynslu minni innan veggja hljóm­sveit­ar­innar og þar af leið­andi án þess að bera hana opin­ber­lega á torg. Fálætið, og í raun yfir­hylm­ingin, sem ég hef mátt þola frá stjórn­endum hljóm­sveit­ar­innar hefur hins vegar verið þess eðlis að lengur verður ekki orða bund­ist; sér­stak­lega þegar á ráð­stefn­unni í Hörpu eru eflaust haldnar langar og hátíð­legar ræður um mik­il­vægi þess að hlúa vel að ungu og upp­renn­andi tón­list­ar­fólki með því að gefa þeim eins mörg tæki­færi og frekast er unnt til þess að þroskast og blómstra. Vit­neskjan um það sem ég er hér með að opin­bera hefur verið til staðar hjá Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands í mörg ár án þess að stjórn­endur hafi hirt um að gera neitt með hana.“

Bjarni Frímann segir að „full­reynt virð­ist vera að á því verði nokkur breyt­ing. Þess vegna finn ég mig knú­inn til þess að opin­bera málið og segja frá því að Árni Heimir Ing­ólfs­son braut á mér kyn­ferð­is­lega á heim­ili sínu þegar ég var nem­andi hans í Lista­há­skóla Íslands. Ég var 17 ára, hann var 35 ára. Hann var til langs tíma tón­list­ar­stjóri Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands og um leið for­maður verk­efna­vals­nefndar hennar. Árni Heimir hefur verið einn áhrifa­mesti ein­stak­lingur í tón­list­ar­lífi hér á landi í tvo ára­tugi. Hann hefur verið í algjörri lyk­il­stöðu í starfi sínu hjá Sin­fón­íu­hljóm­sveit­inni, verið mik­ils met­inn kenn­ari við LHÍ og einn virt­asti tón­list­ar­fræð­ingur okkar Íslend­inga. Hann hefur verið kvaddur til álits í flestum þeim nefndum sem úthluta styrkjum, verð­launum og tæki­færum í klass­ískri tón­list síð­ustu ára­tugi. Eðlilega hefur ungt tón­list­ar­fólk litið upp til hans og sömu­leiðis átt mikið undir honum.“

Hann segir:

Arna Kristín Ein­ars­dóttir.

„Ég hóf störf hjá Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands 2018. Mér varð snemma ljóst að Árni Heimir var við­rið­inn allar ákvarð­anir sem vörð­uðu minn starfs­frama og þroska­tæki­færi hjá hljóm­sveit­inni. Af aug­ljósum ástæðum forð­að­ist ég öll ónauð­syn­leg sam­skipti við hann eftir fremsta megni. Mér er nú orðið ljóst að fyrir það þurfti ég að líða á margan hátt. Ég greindi þáver­andi fram­kvæmda­stjóra SÍ, Örnu Kristínu Ein­ars­dóttur, frá því að Árni Heimir hefði brotið á mér. Það krafð­ist mik­ils hug­rekkis af minni hálfu að segja henni frá þessu enda hafði ég ekki opnað mig um þetta mál við aðra en mína allra nán­ustu á þeim tíma­punkti.

Lára Sóley Jóhanns­dóttir..

Hún aðhafð­ist ekk­ert annað í mál­inu en að stinga því undir stól. Ég greindi einnig Láru Sóleyju Jóhanns­dóttur, núver­andi fram­kvæmd­ar­stjóra, og Evu Oll­ikainen, núver­andi aðal­hljóm­sveit­ar­stjóra, frá mál­inu um leið og þær hófu störf hjá SÍ. Þær hafa heldur ekk­ert aðhafst.

Eva Oll­ikainen.

Auk þess veit ég að stjórn SÍ hefur haft vit­neskju um málið a.m.k. síðan í sept­em­ber 2021. Þrátt fyrir vit­neskju allra þess­ara aðila um málið þurfti ég að starfa áfram með Árna Heimi. Ég fann það skýrt að hann virt­ist alltaf eiga síð­asta orðið í öllum ákvörð­unum sem vörð­uðu störf mín fyrir hljóm­sveit­ina og ekki síst þegar um sjálfa hljóm­sveit­ar­stjórn­un­ina var að ræða.“

Bjarni Frímann skrifar að „því miður virð­ist Árni Heimir hafa nýtt sér yfir­burð­ar­stöðu sína gagn­vart ungu fólki í fleiri til­fellum en mínu. Ég veit að hann var kærður fyrir nauðgun á öðrum 17 ára pilti árið 2020. Ég hef einnig heyrt frá­sagnir – eða um frá­sagnir – fjöl­margra ungra tón­list­ar­manna sem telja sig hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­legu áreiti sem Árni Heimir beitti í krafti hlut­verks síns innan tón­list­ar­geirans og um leið valda­stöðu gagn­vart tæki­færum ungs fólks í klass­ískti tón­list.

Margar, en langt í frá allar, þess­ara frá­sagna tengj­ast sam­skiptum hans við kór Mennta­skól­ans við Hamra­hlíð. Það er eðli­legt að spyrja þeirrar spurn­ingar hvort koma hefði mátt í veg fyrir ein­hver atvik af þessum toga ef stjórn­endur hljóm­sveit­ar­innar hefðu haft kjark til þess að bregð­ast við í kjöl­far þess sem ég skýrði þeim frá fyrir mörgum árum síðan. Mitt mál hefur aldrei hlotið neina með­ferð hjá SÍ sem getur kall­ast fag­legt ferli. Yfir­lýs­ingar fram­kvæmda­stjóra í fjöl­miðlum um að til staðar séu „skýrt mót­að­aðir verk­ferlar“ eiga ein­fald­lega ekki við rök að styðj­ast. Að minnsta kosti hefur þessi mis­notkun sem mig varðar aldrei verið sett í neitt slíkt ferli.“

Hann bætir við að „ég til­heyri ungri kyn­slóð tón­list­ar­fólks. Kynslóð sem sættir sig ekki við ofríki, vald­beit­ingu og þöggun þeirra sem halda um stjórn­ar­tauma stórra stofn­ana í tón­list­ar­heim­inum. Við höfum ein­fald­lega ekk­ert umburð­ar­lyndi fyrir yfir­hylm­ingu og með­virkni þegar kyn­ferð­is­brot eru ann­ars vegar. Okkur dugar ekki fag­ur­gali og inn­an­tóm orð á ráð­stefnum og í opin­berum yfir­lýs­ingum. Við viljum raun­veru­legar aðgerðir á borði. Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands er í eigu fólks­ins í land­inu. Hún er ekki fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki sem getur látið eigin geð­þótta ráða för. Hún er flagg­skip íslenskrar tón­listar og hefur ríkar skyldur gagn­vart sam­fé­lag­inu og um leið gagn­vart tón­list­ar­fólki. Mér þykir vænt um Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands. Hún hefur verið minn drauma­vinnu­staður síðan ég var lít­ill drengur. Hljóð­færa­leik­arar hljóm­sveit­ar­innar hafa allir reynst mér vel og ég á ótelj­andi kærar minn­ingar með þeim. Ég sakna þess að starfa með þeim og vona að þessi löngu tíma­bæra frá­sögn mín útskýri fyrir þeim og öðrum hvers vegna ég sá mér ekki annað fært en að láta af störfum hjá SÍ vorið 2021.

Vonandi er að hljóm­sveitin opni faðm sinn og umvefji ungt og efni­legt tón­list­ar­fólk af meiri heil­indum en ég, og eflaust fleiri, hef fengið að upp­lifa á und­an­förnum árum.“

Segir að lokum í færslu sinni:

„Enda þótt Árni Heimir hafi fengið að láta líta svo út að hann tæki pok­ann sinn hjá SÍ til þess að hverfa til ann­arra starfa veit tón­list­ar­heim­ur­inn betur. Hann sá sæng sína upp­reidda og hrökkl­að­ist frá vegna end­ur­tek­ins ofbeldis gagn­vart ungu fólki í krafti valda­stöðu sinnar. Eftir stendur að Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands greip ekki tím­an­lega í taumana heldur skýldi honum og hlífði bæði meðan hann var við störf og þegar hann lét af þeim. Það hljóta að telj­ast alvar­leg mis­tök. Þau mega ekki end­ur­taka sig. Þess vegna eru þessar línur skrif­aðar. Bjarni Frímann Bjarna­son.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við