Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Eldur Deville harðorður vegna translækninga fyrir börn: „Við leyfum ekki barni að fá sér sígarettu“

Eldur Deville, formaður Samtakanna 22
Eldur Deville, for­maður Sam­tak­anna 22

Eldur Deville talar meðal annars um transbörn og kynþroska­bælandi lyf og segir að þau stöðvi ekki einungis líkamlegan þroska heldur einnig andlegan þroska. Hann segir að meiri umræða sé nauðsynleg um þessi mál. „Við þróumst öll og þroskumst og döfnum á mismun­andi hraða og á mismun­andi vegu. En þegar þú ert farinn að tala um að sjúkdóms­væða þroska­skeið eins og kynþroska­skeið þá held ég að við séum komin út í vafasama tilrauna­starfsemi með líf og heilsu fólks.“ Eldur segist vilja sjá í þessu samhengi það sama og hefur verið að gerast sérstak­lega í Bretlandi. „Ég vil að transteymi BUGL verði hreinlega lagt niður og það þarf að styrkja barna- og unglinga­geðsviðið á annan hátt. Ég held að það sé ansi margt annað sem þessi börn sem skilgreina sig sem trans séu að glíma við. Það getur verið trauma, það getur verið einhverfa og það getur verið ýmislegt annað sem liggur þarna að baki og það sýna flestar rann­sóknir. Það er ekkert barn sem er bara með kynama til dæmis.“

„Ég fór fyrir nokkrum árum að taka eftir því að börn byrja að skilgreina sig sem trans allt niður í 10-11 ára og fór að hugsa með mér hvernig 10-11 ára gamalt barn geti farið að skilgreina sig á einhvern annan hátt og hvað liggur þar á bak við. Ég hef komist að þeirri niður­stöðu eftir að hafa kafað ofan í þetta dálítið lengi að börn sem eru að nálgast kynþroska­skeið eru kannski með hálf­skaðaða sjálfs­mynd út af því að þau eru kannski að uppgötva það að þau eru ekki alveg eins og hin börnin; að þau gætu verið að þróast í þá átt að verða samkyn­hneigð. Ég upplifði þetta sjálfur og vildi fara í stelpuföt og vildi leika við stelpur þegar ég var að uppgötva sjálfan mig,“ segir Eldur Deville í viðtali við Hörpu Mjöll Reynis­dóttur en hann býr ásamt eigin­manni sínum í Brighton á Englandi.

Síðustu ár hafa til dæmis Svíar og Finnar og núna síð­ast Bretar alfarið hætt notkun kyn­þroska­bælandi lyfja.

„Það eru hormóna­gjafir á ungum börnum sem hafa sett mig úr jafnvægi vegna þess að það eru ekki til neinar haldbærar rann­sóknir sem sýna fram á að þetta sé eitthvað sem hjálpi og að þetta sé aftur­kræft. Það er mjög algengt að bæði samtök hinsegin fólks og læknar sem eru að beita þessu segi að þetta sé aftur­kræft. Það virðist ekki vera. Það virðast ekki vera nein haldbær vísindaleg rök fyrir því. Og núna síðustu ár hafa til dæmis Svíar og Finnar og núna síðast Bretar alfarið hætt notkun kynþroska­bælandi lyfja því það sem kynþroska­bælandi lyf gera er að þau stöðva ekki einungis líkamlegan þroska heldur líka andlegan þroska. Þannig að það má alveg færa fyrir því rök að þú ert ekki aðeins að hefta líkamlegan þroska barns heldur ert þú kannski að búa til einstakling sem er ekki jafnvel í stakk búinn við kynþroska­skeiðið að verða ung, fullorðin manneskja.“

Eldur segir að til séu rann­sóknir sem styðja það að svona lyf hafi þau áhrif að börn staðni líka í andlegum þroska.

„Og það eru einmitt þær rann­sóknir sem hafa líka gert það að verkum að það er farið að horfa til þess að nota þessi lyf alls ekki. Svo má líka nefna það að börn sem fara á þessi lyf of snemma og þá sérstak­lega börn sem eru karlkyns þá hindrar þetta nátt­úrlega allan líkamlegan kynþroska og til þess að breyta kynfærum þessara drengja síðar meir þá þarf nátt­úrlega að vera til nógu mikil húð og efniviður í þessar breytingar. Og það gefur nátt­úrlega auga leið að ef þú ert að stöðva líkamlegan þroska drengs þá vex fólk ekki á eðlilegan máta þar sem þeir myndu þurfa til þess að þessar breytingar gætu verið vel lukkaðar. Það eru mörg dæmi til um slíkt.“

Þá verður að fá að eiga sér stað umræða um hvernig þessum mál­efnum skal háttað.

Eldur segist eiga vini, fullorðið fólk, sem séu trans og að það sé ekki á þessari sömu aktívista­línu og margir sem eru mjög áberandi. „Það transfólk sem ég þekki hefur bara viljað ganga í gegnum sitt ferli og svo bara lifað sínu lífi, stundað sína vinnu og verið í friði. Fullorðið fólk má gera nákvæmlega það sem það vill. Það er enginn að tala illa um transfólk eða gera lítið úr því þannig en þegar kemur að málefnum barna þá verður að fá að eiga sér stað umræða um hvernig þessum málefnum skal háttað.“

Transkonur eru karlar

Eldur segist vita í hvernig umhverfi börn eru í dag og hvað börn þurfa að glíma við sem er allt annar raun­veruleiki en þegar hann var barn. „Þá var ekkert internet og ekkert TikTok eða Snapchat. Þessi pressa á börn er orðin allt önnur og samskipti þeirra nátt­úrlega allt önnur heldur en þau voru. Þannig að ég held að foreldrar þurfi að fylgjast með hvað börnin þeirra eru að gera á netinu. Ef stúlka segist halda að hún sé strákur þá á að spyrja spurninga svo sem af hverju hún haldi það. Það verður að fá barnið til að tala. Og það verður að hlusta á barnið. Ef þetta er samþykkt strax og sagt er við barnið að það hafi bara fæðst eitthvað vitlaust þá er búið að staðfesta það fyrir barninu sem hefur ekki andlegan þroska til þess að skilja þetta. Það er ekki hægt að fæðast í röngum líkama. Við eru líkamar okkar. Það fæðist enginn vitlaust. En ef barni er talin trú um að það fæddist bara vitlaust þá er líka farið að brjóta niður sjálfs­mynd barnsins. „Já, ég fæddist vitlaust, það er eitthvað að mér.“ Í staðinn fyrir að leiðbeina barninu. Vertu foreldri barnsins og leið­beindu því og teldu því trú um að strákar geti gert hvað sem er. Stelpur geti gert hvað sem er. Þó að stelpur vilji fara í fótbolta og strákar vilji fara í ballett þá er það bara fínt. Markmiðið með jafnréttis­baráttu síðustu aldar var að brjóta niður staðalímyndir; ekki búa til fleiri og búa til enn minni kassa utan um fólk. Ég meina; trans­konur eru karlar. Við þurfum að læra sem karlkyns einstaklingar og karlar að samþykkja þá líka sem karlkyns einstaklinga því þeir eru af karlkyni. Sama með konur.

Það hefur gríð­ar­leg heilsu­fars­leg áhrif á börnin síðar.

Börnin þurfa nátt­úrlega umgjörð utan um sig, þau þurfa strúktúr og þau þurfa að vera í ákveðnum ramma en ekki í einhverjum ramma þar sem þú ert búin að ákveða eða einhverjir aðrir eru búnir að ákveða það að það sé eitthvað að barninu. Barnið þarf að fá að vaxa og þroskast án þess að það sé farið að kukla í hvað verður svo síðar meir. Við þróumst öll og þroskumst og döfnum á mismun­andi hraða og á mismun­andi vegu. En þegar þú ert farinn að tala um að sjúkdóms­væða þroska­skeið eins og kynþroska­skeið þá held ég að við séum komin út í vafasama tilrauna­starfsemi með líf og heilsu fólks. Því það hefur gríðarleg heilsufarsleg áhrif á börnin síðar og þá erum við að tala um bein­þynningar, við erum að tala um þroska­skerðingar og við erum að tala um alls konar kvilla. Það þarf umræðu og það þarf meiri fræðsla að eiga sér stað varðandi þessi mál.“

Lyfin hafa ekki verið notuð lengi og segir Eldur að langtíma­áhrif þeirra séu að koma æ betur í ljós. Þarf barn ekki að fara í sálfræði­meðferð áður en það fer á þessi lyf?

Hún mun alltaf hafa djúpa karl­manns­rödd en líta út eins og venju­leg kona.

„Það virðist vera voðalega mínímal að þess þurfi og það eru til þess dæmi að fólk hafi fengið kynþroska­bælandi lyf eftir eitt samtal við lækni. Í Bretlandi eru fjölmörg dæmi um það að fólk hafi fengið þessi lyf strax og jafnvel kross­hormón; það er þegar karlkyns einstaklingur fær estrogen og öfugt. Testósterón er nátt­úrlega súper sterkt og það er ekkert sem þú leikur þér að. Breytingarnar á konum gerast mjög hratt þegar þær fara á testósterón; bæði dýpkar röddin og hárvöxtur eykst og þessir hlutir eru óafturkræfir. Ég þekki nokkrar konur sem hafa farið einmitt í testósterón-meðferðir mjög ungar. Strax 18 ára. Ein góð vinkona mín er 22 ára og hún uppgötvaði svo að hún væri ekki trans. Hún hafði lent í trauma, var einhverf og glímdi við ýmis önnur vandamál. Hún mun aldrei fá sína kvenlegu rödd aftur og hún þarf að fara í leisermeðferð til þess að losna við skeggvöxt. Hún mun alltaf hafa djúpa karl­mannsrödd en líta út eins og venjuleg kona.“

Tilraunalækningar

Eldur segir að það eigi að leggja af trans­lækningar fyrir börn. „Ég veit að það mun valda einhverju fjarða­foki að ég segi þetta. Við leyfum ekki barni að fá sér sígarettu, við leyfum ekki barni að fá sér tattú og við leyfum ekki börnum að fá sér áfengi. Af hverju ættum við þá að leyfa börnum að fá einhver lyf sem við skiljum ekki hvaða áhrif hafa að fullu og sem eru að valda skaða? Það er ekkert eðlilegt við það að ung stelpa sem er 18 ára sé að glíma við bein­þynningu. Þannig að ég hvet heilbrigðis­starfsmenn á Íslandi til þess að taka ekki þátt í trans­lækningum.“

Svo er líka mikið um áhrifagirni.

Eldur segist vilja sjá í þessu samhengi það sama og hefur verið að gerast sérstak­lega í Bretlandi. „Ég vil að transteymi BUGL verði hreinlega lagt niður og það þarf að styrkja barna- og unglinga­geðsviðið á annan hátt. Ég held að það sé ansi margt annað sem þessi börn sem skilgreina sig sem trans séu að glíma við. Það getur verið trauma, það getur verið einhverfa og það getur verið ýmislegt annað sem liggur þarna að baki og það sýna flestar rann­sóknir. Það er ekkert barn sem er bara með kynama til dæmis. Ef það er til þá vil ég gjarnan fá einhvern til að benda mér á dæmi þar sem er bara kynami af því að það er alltaf eitthvað meira á bak við. Kynami er yfirleitt fylgi­kvilli einhvers annars. Og það þarf að styrkja barna- og unglinga­geðsviðið og fara að grúska í hvað það er sem veldur þessu.

Svo er líka mikið um áhrifa­girni. Þegar börn eru að skoða TikTok, Snapchat og annað þar sem konur eða stelpur eruu að láta að skera af sér brjóstin þá er því beinlínis fagnað. Og fólk er að monta sig af að vera með seríu af geðsjúk­dómum. Þetta á allt sér stað á TikTok.

Þetta er stórt og mikið mál og ég vil hvetja fólk til þess að þora að tala um þetta. Það verður að tala um þetta. Ég er ekkert að segja að ég hafi endilega rétt fyrir mér í öllu en til þess að fólk geti átt uppbyggilegar samræður þá verður nátt­úrlega að eiga sér stað samtal á milli fólks. Það á ekki að bæla niður alla umræðu sem kemur upp og umræðan á ekki að vera einsleit. Við verðum að fá að spyrja gagn­rýninna spurninga. Því þetta eru börnin okkar sem við erum að tala um. Þetta er framtíðin. Við getum ekki leyft okkur að eyði­leggja fleiri líf barna með einhverjum tilrauna­lækningum. Við eigum sem samfélag að vera sammála um að við stundum ekki tilrauna­lækningar á börnum.“

Gerð í gróðrarskyni

Eldur segir að fullorðið fólk megi gera nákvæmlega það sem það vill svo sem að fara í kynleiðréttingar­ferli en að börn verði að fá að njóta vafans.

„Lækna­eiðurinn segir að ekki eigi að gera neinn miska. Það er grundvallar­atriði í lækningum. Þetta hefur dálítið gleymst í þessari umræðu.“

Hann segir að svona lækningar fyrir transbörn séu iðnaður í Banda­ríkjunum. „Það hefur verið flett ofan af klíníkum bæði í Boston og svo í Nashville í Tennessee nýlega þar sem myndbönd láku á netið þar sem stjórn­endur spítalans voru að tala um að kynleiðréttingar­ferli fyrir börn og ungmenni væru mjög góð í gróðrar­skyni fyrir spítalann. Þannig að það þarf að hafa í huga að þetta er ekki allt bara af góðmennsku og þetta er ekki alltaf gert í tengslum við mann­réttinda­baráttu.“

Eldur segir að engin umræða hafi átt sér stað um transbörn en að samt virðist allir hafa tekið þetta í sátt allt í einu. „Við hommar og lesbíur þurftum að hafa fyrir okkar baráttu sem var frelsis­barátta og við höfðum hávaða. Við höfðum mikinn hávaða. Það hefur hins vegar verið meiri þöggun varðandi þetta mál. Þetta er risastórt mál og það þarf varkárni, alúð og skilning á báða vegu.

Þau eru öll komin í þetta með að vera barna­heim­ili fyrir svokölluð trans­börn.

Ef maður spyr spurninga þá er strax farið í vörn og maður kallaður ýmsum nöfnum. Þessi hegðun í samfélaginu verður að hætta. Ég er tilbúinn að ræða við hvern sem er innan Samtak­anna 78 og Trans Ísland. Ég boðaði þá margoft að ræða við mig. Það var þess vegna sem við vorum nokkur sem stofnuðum ný samtök. Fyrst kölluðum við okkur LGBT teymið. Núna köllum við okkur bara Samtökin 22. Við gerðum þau að samtökum 22. febrúar í ár. Þetta eru hagsmuna­samtök samkyn­hneigðra þannig að við erum varð­hundur fyrir mann­réttindi og virðingu samkyn­hneigðra. Og það er út af því að Samtökin 78 eru hætt að vinna fyrir samkyn­hneigða. Þau eru ekkert að vinna og sinna málefnum samkynhneigs fólks lengur. Þau eru öll komin í þetta með að vera barna­heimili fyrir svokölluð transbörn og vera í transakvívisma. Þannig að þá bara verða þau þar og það er bara fínt. En við ætlum að sinna okkar mann­réttinda­gæslu á annan hátt.“

Stuart og Eldur með hundan sína, Prince og Riley.

Eldur er spurður hvort honum finnist barátta trans­fólks vera farin að skyggja á baráttu samkyn­hneigðra.

„Ég held að hún sé farin að valda stórkost­legu tjóni vegna þess að núna er búið að kóa ansi lengi sérstak­lega með börn. Það er að koma flóð­bylgja af ungu fullorðnu fólki sem hefur verið sett í trans­ferli í misgripum og sem bara staðfesta það að það á ekkert að eiga sér stað neitt trans­ferli fyrir börn. Börn eiga að fá að vera börn og þroskast. Það er svo allt annað mál hvað kemur svo síðar meir þegar viðkomandi er orðinn fullvaxta og fullráða einstaklingur. Það verður að vera hægt að hjálpa börnum sem falla ekki að þessum klassísku staðalímyndum um hvernig kynin eru á annan hátt en að setja þau í einhverja enn fastari ramma og sjúkdóma­væða þau. Það er númer eitt, tvö og þrjú.‘

Gölluð lög

Eldur segir að þegar talað sé um réttindi kvenna og svo samkyn­hneigðra og barna þá séu ýmis atriði í kröfum trans­fólks sem stangist á við réttindi sérstak­lega kvenna, barna og svo samkyn­hneigðra. „Það er aðallega þátturinn sem snýr að konum og börnum sem gerir málin flókin. Ísland er frekar saklaust, lítið land vegna þess að hérna er nátt­úrlega fámenni þannig að þessi vandamál verða kannski ekki eins augljós hérna fljótt en Ísland má samt ekki setja sig í einhverja búbblu þar sem þau halda að ekkert geti komið fyrir hér. Nýlegt dæmi er kennari í Kanada sem er búinn að vera í fréttunum mikið unanfarnar vikur sem dúkkaði upp í skólanum í haust með sílíkon­brjóst frekar yfir meðallagi. Þetta er smíða­kennari. Skóla­yfirvöld geta ekkert gert í þessu í Kanada; þó þetta séu risastór sílíkon­brjóst með gerivörtum stingandi út og þröngur klæðnaður þá geta skóla­yfirvöld í Kanada ekki gert neitt. Og það er út af því að Kanada er búið að gera sama hlut og Íslendingar eru búnir að gera og sem Íslendingar hafa í raun og veru ekkert talað um og líklega kannski ekki einu sinni vitað um og það er að innleiða lög um kynrænt sjálfræði. Kanada gerði það sama með Ontorio Human Rights Code og Bill C-16 þar sem refsivert er að tala um fólk með röngum persónu­fornöfnum og það er bannað að mismuna eða hafa að háði kynvitund, kyngervi eða kyntjáningu fólks. Þannig að skóla­yfirvöld geta ekki gert neitt í þessu. Það þorir enginn að gera neitt því allir eru hræddir við að fremja refsivert athæfi við að gagnrýna þetta. Sama er uppi á teningnum með lögin hérna. Þetta er fræðilega hægt en ef þú skoðar lögin um kynrænt sjalfræði þá er kyntjáning, kynvitund og kyngeri orðin lögvernduð í þessum lögum þannig að þetta getur alveg gerst á Íslandi. Ég er ekki að segja að transfólk misnoti þessi lög en þessi lög eru svo gölluð að það er mjög auðvelt fyrir níðinga og pererta að misnota þau og koma sér þannig á framfæri og líka að koma sér í nálægð við fórnar­lömb.“

Þetta er fræði­legur mögu­leiki líka á Íslandi ef afbrota­maður byrjar að skil­greina sig sem konu.

Eldur talar um fangelsismál. „Það er nýbúið að dæma konu í Brighton í 20 ára fangelsi fyrir marg­vísleg kynferðis­brot gegn börnum og unglingum á 9. og 10. áratug síðustu aldar nema það að þetta er ekki kona. Þetta er karlmaður sem braut á þessum börnum og ungu konum en hann hefur skilgreint sig sem konu síðan 2004. Og þessi kynferðis­afbrota­maður, sem hefur ekki farið í kynleiðréttingu eða neitt en skilgreinir sig bara sem konu, er að fara í kvenna­fangelsi. Þetta er nátt­úrlega í raun og veru ef þú spáir í það mann­réttinda­brot gegn konum því það er bannað að beita bæði grimmum og óeðli­legum refsingum og það er í mann­réttinda­sáttmálanum. Hvað er það annað en grimm og óeðlilega refsing að setja konu í fangelsi með nauðgurum? Þetta er fræði­legur möguleiki líka á Íslandi ef afbrota­maður byrjar að skilgreina sig sem konu.“

Eldur segir að lögin frá 2019 rjúfi ákveðna samfélags­sátt. „Það var komin ákveðin sátt um málefni bæði kvenna og karla og þetta setur þessi mál í uppnám. Málið er að þetta fer ekki í uppnám fyrr en dæmin byrja að koma og rétt eftir að lögin gengu í gegn þá fórum við í gegnum heims­faraldur þannig að það er voðalega lítil reynsla komin á lögin vegna þess að það var nátt­úrlega allt lokað hérna meira og minna í hálft annað ár.“

Eldur segir að Reykja­víkurborg sé búin að gefa út bækling fyrir starfs­fólk íþrótta­mannvirkja um hvernig eigi að bregðast við varðandi kvörtun yfir því að karl með karlkyns kynfæri sé inni í kvenna­klefum borgarinnar. „Það verður að finna lausn þar sem allir geta verið sáttir. Það er ekki hægt að gera það þannig að segja að núna geti transfólk átt greiða leið í sund en svo veigra hinir sér frá því að fara út af því. Það verður að finna lausn á málinu sem allir geta unað við.

Þetta tímabil er liðið þar sem umræðan er þögguð niður. Við verðum að fá að tala um þessi mál. Lögin um kynrænt sjálfræði voru síðasta mál á þinginu í desember 2019 og þau fengu líklega ekki lengri umræðu en svona fimm til tíu mínútur þrátt fyrir að það voru umsagnir frá fagaðilum sem benda til þess að þetta mál hefði þurft lengri og ítarlegri þinglega meðferð og ekki bara þinglega meðferð heldur líka þjóð­félagslega umræðu. En hún hefur ekki átt sér stað og hún þarf að eiga sér stað áður en áfram er haldið.

Það er gam­alt orð og gömul skil­grein­ing að segja „kyn­skipt­ingur“.

Lögin um kynrænt sjálfræði eru þannig að ég gæti farið niður í Þjóðskrá í Borgar­túninu og skráð mig sem konu og skipt um nafn í sömu andrá og það kostar mig ekki eina einustu krónu út af því að ég væri að breyta kynskráningu. Þetta átti að kosta 9-10.000 krónur en þetta var kallað trans­skattur þegar þetta kom og það var barist fyrir því að þetta yrði lagt af þannig að það myndu ekki verða neinir varnaglar. Þannig að þú sérð að allir varnaglar frá því að karlmaður geti skilgrein sig sem konu og komist inn í kvenna­rými eru farnir. Þetta var í stökkum; þú þurftir að vera hjá sálfræðingi, lifa í ákveðnu kyngervi í ákveðinn tíma og þurftir að fá sálfræðimat áður en þú gast farið í kynleiðréttingar­ferli. Málið er að trans í dag þýðir ekki það sama og trans þýddi fyrir fimm til fimmtán árum. Það er gamalt orð og gömul skilgreining að segja „kynskipt­ingur“. En þegar fólk er að hugsa um trans í dag þá hugsar það „kynskipt­ingur“. En trans er orðið miklu stærra regnhlífar­hugtak þannig að allir sem eru ekki sáttir við að vera annaðhvork karl eða kona eru trans. Fólk sem skilgreinir sig að vera stelpu­strákur, tomboy, kynsegin og skynsegin; allt þetta fólk er orðið trans. En það eru bara til þrjár skilgreiningar eða þrjú kyn sem hægt er að skrá sig í. Það er karlkyn, kvenkyn eða hán eða hvorugkyn eða kynhlutlaust. Það eru engir varnaglar að skrá sig á milli þessara flokka. Þannig að núna þarftu ekki einu sinni að fara til fagaðila og fá sálfræðimat og ákveðið vottorð um að þú sért trans­manneskja. Það er nóg fyrir þig að fara upp í Borgartún og gera þeta og þeta kostar þig ekki neitt.

Varnaglarnir þarna eru allir farnir. Mér finnst dálítið sérstakt að kvenréttinahreyfingin hefur ekki tekið þetta almennilega fyrir. Kven­réttinda­félagið er nátt­úrlega búið að taka Trans Ísland til sín sem undir­félag líka þannig að Trans Ísland er ekki bara meðlimur að Samtökunum 78; þau eru líka undir­félag Kven­réttinda­félags Íslands.“ Eldur minnist á jafnréttis­sjónarmiðin „og hversu auðvelt það er að skipta um kyn og hvernig við höfum verið að reyna að rétta hlut kvenna bæði í stjórn­málum og í stjórnum stórra fyrir­tækja.“ Eldur bendir í þessu sambandi á að til að uppfylla jafnréttis­skilyrði þá þurfi að minnsta kosti 40% stjórenda að vera af öðru kyni; sem sagt konur. Hann tekur sem dæmi að þá gæti karl farið niður í Þjóðskrá og látið breyta nafninu sínu í kven­mannsnafn. „Tæknilega séð getur þú farið niður í Borgartún, látið breyta kynskráningunni þinni og tekið sæti konu á bæði fléttu­lista í stjórn­málum og í stjórnum fyrir­tækja. Lögin leyfa þetta. Og það eru engir varnaglar. Þannig að það er fullt af glufum í þessum lögum sem þarf að skoða. Lögin eru mein­gölluð. Þau eru skrifuð af aktívistum frá Samtökunum 78. Ég veit það vegna þess að ég heyrði Svandísi Svavars­dóttur, þáverandi heilbrigðis­ráðherra, segja það á málþingi með Samtökunum 78 fyrir tæpu hálfu öðru til tveimur árum síðan. Þannig að ég veit hver skrifaði lögin og þau skrifuðu þau sjálf og þeim var fleygt í gegnum þingið án nokkurrar þinglegrar umræðu út af því líka að Ísland er búið að marka sér stefnu að vilja vera efst á regnboga­korti ILGA.“

Hægt er að fylgjast með Eldi Deville á eftir­farandi samfélags­miðlum:

Twitter á @justgayice og Samtökunum 22 á Facebook og @samtokin22 á Twitter.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning