Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gekk hrædd í gegnum FB: „Hann komst upp með nauðgun og byrjaði síðan að hrella mig“

Gekk hrædd í gegnum FB: „Hann komst upp með nauðgun og byrjaði síðan að hrella mig“
Myndin teng­ist frétt­inni ekki með beinum hætti.

„Að vera í skóla með ger­anda sínum er ekk­ert grín,“ segir ung stúlka, sem stígur hug­rökk fram á Twitter og segir sögu sína. Ekki aðeins þurfti hún að upp­lifa nauðgun af hálfu skóla­bróður síns í Fjöl­brauta­skól­anum í Breið­holti, FB, heldur byrj­aði hinn meinti ger­andi að hrella hana í kjöl­farið þegar hann sá að hann komst upp með brotið innan veggja skól­ans.

Stúlkan segir nauðg­un­ina hafa átt sér stað árið 2020 og enn sé hún með ger­anda sínum í FB. Því fylgi mikil van­líðan, „kvíða­köst hverja nótt fyrir skól­ann og kvíða­köst inná bað­her­bergi á milli tíma.“

Líkt og skóla­yf­ir­völd í MH eru þessa dag­ana gagn­rýnd fyrir þá segir stúlkan að stjórn­endur FB hafi ekk­ert gert til að hjálpa sér. „Skólinn gat ekki rekið hann því hann á „alveg jafn mik­inn rétt á námi” og ég. Ég var undir lög­aldri og sagði náms­ráð­gjaf­anum mínum hvað hafi gerst, hún átti strax að til­kynna þetta til barna­vernd­ar­nefndar því ég var ennþá barn en hún gerði það ekki,“ segir stúlkan og heldur áfram:

„Hjálpin sem ég fékk frá skól­anum var að fá stunda­skránna hans til að flýja gang­ana þar sem hann var. Þessa önn var ég með 108 fjar­vista­stig og ég náði 1 af 6 áföngum. Af því að hann komst upp með nauðgun þá byrj­aði hann að hrella mig í skól­anum því hann vissi að hann kæm­ist upp með það líka.“

Samkvæmt frá­sögn stúlkunnar ungu þurfti hún ekki aðeins á líða þján­ingar vegna nauðg­unar heldur hafi hinn meinti ger­andi farið að hrella hana í kjöl­farið, þar sem hann hafi séð að hann kæm­ist upp með allt innan veggja skól­ans.

„Í eitt skipti átti hann að vera í tíma. Vinir hans sáu mig og létu hann vita. Hann labbar fram­hjá mér, strýkur á mér hend­ina og starir á mig. Enn eitt fjar­vist­ar­stig komið því ég var grát­andi inná baði. Hann hékk fyrir utan stof­urnar sem ég var í og stóð hjá hurð­ar­gátt­inni til að hræða mig,“ segir hún og bætir við:

„Ég gat ekki tekið þátt í félags­lífi skól­ans því hann var alltaf þar. Ég hætti í nem­enda­ráði og alla daga þarf ég að sjá hann lifa sínu lífi áhyggju­laus á meðan ég þarf alltaf að vera á varð­bergi. Ætli hann sé í kring og hvað ger­ist næst? Á meðan hans mann­rétt­indi eru varin, er traðkað á mínum. Fjöl­braut­ar­skól­ann í Breið­holti eru ekki bara að sam­þykkja nauðgun, skóla­stjórn­endur gefa honum áfram leyfi til þess að fram­lengja ofbeld­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi