Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Kristinn segist ranglega bendlaður við morðið á Tómasi: „Búið að vera stanslaust helvítis áreiti“

Kristinn segist ranglega bendlaður við morðið á Tómasi: „Búið að vera stanslaust helvítis áreiti“
Kristinn Krist­ins­son Mynd: Facebook

Kristinn Krist­ins­son seg­ist sak­laus af morð­inu á Tómasi Waagfjörð en mynd­band þar sem Kristinn sést hóta Tómasi líf­láti hefur farið eins og eldur í sinu um sam­fé­lags­miðla og fjöl­miðla und­an­far­inn sól­ar­hring.

Saklaus

„Ég er sak­laus. Þetta er búið að vera stans­laust hel­vítis áreiti með árásum á mig síðan ég fór suður til að sækja vin­konu mína,“ segir Kristinn Krist­ins­son í sam­tali við DV, en hann hefur að und­an­förnu, að virð­ist að ósekju, verið bendl­aður við dauðs­fall Tómasar Waagfjörð, sem stung­inn var til bana í íbúð á Ólafs­firði, á aðfara­nótt mánu­dags.

Hvergi hefur verið sagt í fjöl­miðlum að Kristinn teng­ist morð­inu sjálfu en hann var ekki á staðnum þegar það var framið. Þrjár mann­eskjur eru nú í gæslu­varð­haldi vegna rann­sóknar á mál­inu, tvær konur en önnur þeirra er eig­in­kona Tómasar og einn karl­maður, vinur eig­in­kon­unnar. Höfðu þeir Tómas átt í deilum vegna kon­unnar um nokk­urt skeið.

Sjá einnig: Tómasi heitnum barst morð­hótun í mars: „You are going to die really soon“

Tómas birti mynd­band síð­ast­lið­inn mars þar sem hann sagði Kristinn hóta sér og syni sínum morði. Eins og segir hér fyrir ofan hefur mynd­band­inu verið dreift manna á milli á sam­fé­lags­miðl­unum og hafa miðlar á borð við Mannlíf birt það. DV segir að les­endur hafi sent mynd­bandið á mið­il­inn og sagt Kristinn vera bana­mann Tómasar. Það er ekki rétt enda var hann ekki á staðnum þegar morðið var framið.

Ekkert leyndarmál

Kristinn, sem er íbúi í Ólafs­firði, segir það ekk­ert leynd­ar­mál að þeir Tómas hafi verið óvinir en hann ber Tómasi illa sög­una. Ofbeldi hafi verið í sam­band­inu og hann leit­ast við að vernda vin­konu sína, eig­in­konu Tómasar.

„Ég skoða ekki einu sinni fréttir en svo rak ég augun í þetta þá bara sprakk ég,“ sagði Kristinn um við­brögð sín við frétta­flutn­ingum er hann tal­aði við DV.

Segir Kristinn að lög­fræð­ingur sinn hafi bannað honum að tjá sig um málið en hann geti ekki þagað eftir að hafa verið rang­lega bendl­aður við morðið. Segist hann aldrei hafa verið hand­tek­inn vegna máls­ins.

Kristinn við­ur­kenndi í öðru sam­tali við DV árið 2021 að hann hafi sprengt heima­til­búna sprengju í Ólafs­fjarð­ar­göngum en spreng­ingin olli millj­óna­tjóni. Var hann í við­tali vegna þess að búið var að bera hann út úr leigu­í­búð sinni eftir bruna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ