Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Hrollvekjandi dýraníð í Dölum: Alls 120 kindur og átta nautkálfar sultu til dauða vegna vanrækslu

Mynd úr myndabanka
Mynd úr mynda­banka

Dómsmál vegna hryllilegs dýraníðs á bænum Kringlu í Dalabyggð í Dalasýslu er nú rekið fyrir Héraðs­dómi Vestur­lands. Bóndanum, Arnari Frey Þorbjarnar­syni, er gefið að sök að hafa hætt að sinna dýrunum á bænum með þeim skelfi­legu afleiðingum að 120 kindur og átta naut­kálfar drápust.

Samkvæmt heimilda­mönnum Mannlífs var aðkoman að bænum í einu orði sagt hroll­vekjandi þegar nágrannar ákváðu að líta eftir skepnunum. Naut­kálfarnir höfðu verið dauðir svo lengi að þeir voru orðnir þurrir viðkomu og kindurnar lágu dauðar á víð og dreif. Einhverjar skepnur á bænum náðu að brjóta sér leið í hlöðuna og komast þannig fóður .

Eins og gefur að skilja var nágrönnum afar brugðið og var þá þegar tilkynnt til MAST, Matvæla­stofnunar, um hið hrotta­lega dýraníð á Dölum. Þar hefur málið farið sína leið og er nú fyrir héraðs­dómi eins og áður sagði. Athygli vekur hins vegar að stofnunin hefur nú veitt sambýlis­konu Arnars leyfi til að halda fram dýrahaldi á bænum en þau sinntu saman búskap áður en illa fór.

„Þú þarft í sjálfu sér ekk­ert leyfi til að vera með dýra­hald“

Þórður Pálsson, dýra­eftirlits­maður hjá MAST, segist í samtali við Mannlíf lítið geta tjáð sig efnislega um málið en að almennt þurfi ekki leyfi stofnunarinnar til að vera í sauðfjár­búskap. Aðspurður stað­festir hann að sambýlis­konan fái að halda áfram búskap og dýrahaldi á bænum. „Þú þarft í sjálfu sér ekkert leyfi til að vera með dýrahald. Þetta fólk er ekki gift og við lítum svo á að hún sé sér einstaklingur. Við lítum ekki þannig á málið að hún hafi verið í búskapnum þegar þetta var. Ég held að hún hafi ekki verið að svæðinu og það eru skepnur þarna núna. Okkar krafa er sú að hann komi ekki nálægt þessu,“ segir Þórður.

Snemma árs 2018 komu forseta­hjónin Guðni Th. og Eliza Reid í opinbera heimsókn í Dalabyggð. Þá heimsóttu þau meðal annars Arnar og sambýlis­konuna í Kringlu.

„Ungir bændur í Kringlu í Miðdölum, tóku á móti okkur með börnum sínum. Þar og víðar gátum við rætt um vanda sauðfjár­bænda og leiðir til lausna. Okkur fannst Dalamenn horfa björtum augum fram á veg en vera um leið raunsæir,“ sagði Guðni forseti þá í samtali við Skessu­horn. Nokkru eftir heim­sóknina fór allt á verri veg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning