Slökkvilið Akraness og áhöfnin á varðskipinu Þór héldu sameiginlega æfingu um borð í Þór um helgina á meðan skipið var við bryggju á Akranesi.
Samkvæmt heimasíðu Landhelgisgæslunnar var fyrst gerð reykköfunaræfing sem fór fram í lest varðskipsins og að henni lokinni voru „slasaðir“ hífðir upp frá spildekki skipsins með stigabíl slökkviliðsins.

Hinn „slasaði“ hæst ánægður með “björgunina“
Alls tóku fjórtán þátt frá slökkviliðinu en í áhöfn Þórs eru 18 manns. Ku æfingin hafa tekist með eindæmum vel.
Að lokinni æfingu hélt Þór norður í land þar sem hún var til taks vegna veðurofsans sem fór yfir landið.

Babúbíll eins og yngsta fólkið kallar slökkvibíla.
Ljósmyndir: Guðmundur St. Valdimarsson.































Athugasemdir