Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hrefna Sigríður Reynisdóttir: „Ætlaði aldrei að gera börnunum mínum það að giftast sjómanni“

Hrefna Sigríður Reynisdóttir: „Ætlaði aldrei að gera börnunum mínum það að giftast sjómanni“
Hrefna Sigríður Reyn­is­dóttir er sjó­manns­kona.

„Það fór maður fyrir borð hjá þeim. Land­helg­is­gæslan sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu sem var orðuð þannig að þeir sem þekktu til vissu alveg um hvaða skip væri verið að tala. Ég las þessa frétta­til­kynn­ingu og hugs­aði með mér hvort þetta gæti verið mað­ur­inn minn. Var þetta augna­blikið sem ég var búin að ótt­ast í öll þessi ár og var ég orðin ekkja? Ég gat nátt­úr­lega ekki hringt í hann; það var allt á haus þarna um borð,“ segir Hrefna Sigríður Reyn­is­dóttir í við­tali við Guðjón Guð­jóns­son í Sjó­ar­anum. Guð­mundur Hallsson, eig­in­maður hennar hefur verið sjó­maður í um tvo ára­tugi.

Hann var mögulega í sjónum.

„Já, hann var mögu­lega í sjónum. Já, Jesús minn almátt­ugur. Ég gleymi því ekki hvað ég var hrædd. Þá vildi bara svona heppi­lega til að mágur minn heit­inn var ennþá með putt­ana eitt­hvað í stjórn­un­inni á þessum skipum – útgerðin var á hans vegum – og hann hringdi strax í mig. Þannig að þetta voru samt um 10 mín­útur í algjöru hel­víti.“

Ég hugs­aði að þetta væru búin að vera góð ár með besta vini mínum í hjóna­bandi og nú væri það búið.

Hvað fór í gegnum hug­ann í þessar 10 mín­útur?

„Ég fann hvernig allt blóðið ein­hvern veg­inn lak niður. Ég man að ég var með barn í fang­inu – ég man ekki einu sinni hvaða barn okkar það var. Ég hugs­aði að þetta væru búin að vera góð ár með besta vini mínum í hjóna­bandi og nú væri það búið.“

Þú ætl­aðir að þetta væri hann.

„Já, það gerð­ist vegna þess að í öll þessi ár hef ég orðið mjög auð­veld­lega hrædd um mann­inn minn úti á sjó. Það skiptir miklu máli að hann sé öruggur og í góðum höndum þannig lagað séð. Þetta var næstum því eins og að ég hefði vitað að þetta myndi ger­ast og að nú hefði það gerst.“

Það var hins vegar græn­lenskur maður sem fór fyrir borð og lést en eig­in­maður Hrefnu hefur í gegnum árin verið á græn­lenskum skipum.

Ég held að hann sé ekki búinn að gera upp þetta mál í koll­inum á sér.

Hvernig tók mað­ur­inn þinn því að skips­fé­lagi hans lést?

„Þetta var mjög erfitt fyrir hann. Hann var í að bjarga mann­inum upp úr sjónum og hann var stýri­maður um borð þegar þetta var og bar þess vegna ákveðna ábyrgð á heilsu áhafn­ar­með­lima. Þetta reynd­ist honum mjög erfitt. Hann er kannski ekki alveg sam­mála mér en ég held að hann sé ekki búinn að gera upp þetta mál í koll­inum á sér.“

Með prestinn og kirkjuna

Hrefna býr á Eski­firði en ólst upp á Flateyri og var faðir hennar sjó­maður. Hjónin eru búin að vera saman í 22 ár og gift í 20 ár. Og mað­ur­inn hennar er búinn að vera sjó­maður í 21 ár. Hjónin eiga fjögur börn, þrjá syni og eina dóttur.

„Ég var alltaf harð­á­kveðin í því þegar ég fór að full­orðn­ast að ég ætl­aði aldrei að gera börn­unum mínum það að gift­ast sjó­manni og eign­ast börn með honum. Aldrei. Þetta var um það bil það eina sem ég hafði á list­anum mínum yfir mögu­legan maka. Númer eitt: Ekki sjó­maður. Hann var reyndar ekki á sjónum þegar við kynnt­umst. Þetta hefur breyst svo­lítið mikið síðan ég var krakki. Pabbi var að koma heim einn dag í viku og þetta var ein­hver einn dagur sem ég upp­lifði sem barn bara sem truflun af því að heim­ilið var í ákveðnum gír; mamma sá um allt og svo kom pabbi heim og var að þykj­ast hafa eitt­hvað að segja. Og maður bara „fyr­ir­gefðu, gamli, ég þekki þig ekki neitt, nennir þú að fara bara aftur?“. Svo var ein eða tvær vikur á sumrin sem við fjöl­skyldan fórum saman í ferða­lög en þá var pabbi allan tím­ann að spá í hvort það væri að fiskast of mikið af því að hann var nátt­úr­lega launa­laus og hvort hann væri að missa af rosa­legum túr.

Þegar hann kemur heim þá dettur hann inn í rútín­una eins og hún er hjá okkur.

Ég held að börnin mín umgang­ist pabba sinn meira heldur en þau sem eiga pabba sem vinnur í landi og eru kannski á venju­legum vakta­tímum af því að hann er yfir­leitt heima í mánuð og þegar hann er heima í mánuð þá er hann bara heima. Hann er þá að umgang­ast börnin og sinna þeim og þau eru mjög tengd honum sem betur fer. Ég veit ekki hvort við höfum tekið með­vit­aða ákvörðun um það en þegar hann kemur heim þá dettur hann inn í rútín­una eins og hún er hjá okkur. Svo breytt­ist þetta eftir að það fór að verða auð­veld­ara að hafa sam­band við hann,“ segir Hrefna en nú er ekk­ert mál að hringja í hvert annað.

Ég sendi til hans hvort við ættum ekki bara að láta gifta okkur; við værum með prest­inn og kirkj­una.

„Fyrstu árin var þetta þannig að það var ekk­ert hægt að hringja í hann eða senda honum tölvu­póst. Við þurftum að senda skeyta­send­ingar á milli. Það var þannig að ég sendi honum skeyti og það prent­að­ist út í brúnni og svo gátu allir lesið það sem vildu og svo var hann lát­inn fá bréfið. Allt sam­talið prent­að­ist út. Ég man þegar við ákváðum að gifta okkur; við erum ekki mjög róm­an­tísk en þá sendi ég honum póst út á sjó en við vorum að fara að láta skíra næst elsta son okkar og ég sendi til hans hvort við ættum ekki bara að láta gifta okkur; við værum með prest­inn og kirkj­una. Og þetta prent­að­ist út uppi í brú hjá honum og hann sendi til baka „jú, er það ekki bara ágætt?“. Þá var öll áhöfnin „nei, stoppið núna, hvað eruð þið að hugsa?“. Það var ekki mikil róm­an­tík í þessu. En ég á öll þessi bréf núna sem er ótrú­lega skemmti­legt.“

Gratíneraðar kartöflur

Sjó­manns­konur sjá einar um heim­ilið á meðan menn­irnir eru á sjónum.

„Þegar börnin voru minni – þau fædd­ust fjögur á um sex árum – þá var ég ekki í vinnu heldur heima með þau. Það borg­aði sig ekki fyrir mig að hafa þau í dag­vistun sem var ótrú­lega þægi­legt og var hægt af því að mað­ur­inn minn var á góðum launum úti á sjó. Það eru nátt­úr­lega kostir og gallar við allt. Ókost­ur­inn er að það er eng­inn til að taka vakt­ina á móti þér; þú ert alltaf á vakt með þessi börn en það skiptir máli að ég gat leyft börn­unum mínum að fara út að leika og ég þurfti ekki að vera hrædd um þau.“ Hrefna talar um að hún hafi vitað að þótt hún myndi missa sjónar af son­unum í ein­hverjar mín­útur þá vissu bæj­ar­búar til dæmis að þeir máttu ekki vera í læknum í bænum.

Við vitum aldrei hvenær mán­uð­ur­inn byrjar eða endar.

Hvernig er að gera plön?

„Það er ekki hægt og það hefur ekk­ert breyst í gegnum tíð­ina. Hann er samt kom­inn á eitt­hvað skipti­kerfi núna þar sem hann á að vera einn mánuð úti og einn mánuð heima. En við vitum aldrei hvenær mán­uð­ur­inn byrjar eða endar. Ég var til dæmis í allt sumar ein með hjól­hýsið á flakki um landið og ég hef aldrei vitað þegar ég er að fara frá einum stað til ann­ars hvort hann verði kom­inn þegar ég fer af stað eða hvenær hann komi heim.

Ég er ótrú­lega lánsöm upp á það að gera að ég hef bara tvisvar sinnum verið ein á hátíðum. Í fyrra skiptið var það á páskum en vegna þess að þessi indæli maður sem ég er gift sér um alla mat­reiðslu á fínum dögum þá kann ég ekki að elda svona mat og þá kveikti ég í pur­u­steik og end­aði á því að við börnin borð­uðum gratíner­aðar, sætar kart­öflur sem voru reynar mjög góðar. Það bók­staf­lega kvikn­aði í pur­u­steik­inni í ofn­inum“

Eldur?

„Já.“

Og slökkvi­tæki og allur pakk­inn?

„Já.

Hann var úti á sjó á jól­unum.

Hitt skiptið var um síð­ustu jól. Það bjarg­aði jól­unum að ég hafði ein­hverjum vikum fyrir jól boðið mömmu minni og systk­inum mínum að koma og vera hjá okkur á jól­unum sem ég gerði af því að jólin þar á undan vorum við öll með Covid ein­hvers staðar lokuð inni og ég hugs­aði með mér að þetta yrðu jólin sem ég þyrfti að bæta upp fyrir síð­ustu jól. Þá kom í ljós að mann­garm­ur­inn komst ekk­ert heim. Hann var úti á sjó á jól­unum. En ég fékk að borða af því að mamma gerði mat. Þannig að það redd­að­ist.“

Kaflaskil

Hrefna segir að tveir son­anna hafi lýst yfir vilja sínum til að verða sjó­menn en hún heldur að annar þeirra sé hættur við. „Hann eign­að­ist nýlega barn og ég held hann sé búinn að átta sig á því hvað í raun­inni það kostar fjöl­skyldu­fólk að vera úti á sjó. Þetta kostar hell­ing og þá er ég alls ekki að tala um fjár­muni. Þegar þetta barna­barn fædd­ist þá var mað­ur­inn minn úti á sjó og það eina sem hann fékk voru myndir af barn­inu. Hann hitti ekki son­ar­dóttur sína fyrr en tveimur vikum eftir að hún fædd­ist. Ef ég fæ að snúa því upp á mitt egó þá fannst mér það mjög erfitt af því að það voru kafla­skil í lífi okkar; ég var að verða amma í fyrsta skipti, hann var að verða afi í fyrsta skipti og sonur okkar að verða pabbi og ég hefði svo mikið viljað gera það með hann með mér þannig að við hefðum getað gengið inn í þetta saman.“

Ég geng alltaf út frá því að ég sé að fara að gera þessa hluti ein.

Þú skipu­leggur ekk­ert.

„Ég lærði reyndar fljót­lega í sam­búð­inni okkar að ef ég ætl­aði að gera eitt­hvað yfir höfuð þá yrði ég að gera það og gera ráð fyrir því að ég gerði það ein en hafa það samt þannig að það væri hægt að bæta honum við ef hann myndi svo birt­ast heima. Ég geng alltaf út frá því að ég sé að fara að gera þessa hluti ein. Ég er að fara ein til Spánar og ég er að fara eitt­hvert ein með hjól­hýsið.“

Hrefna og Guð­mundur Hallsson, eig­in­maður hennar.

Hann gæti komið með og þá væri það gaman.

„Það væri stór­kost­legt. Við erum sem betur fer rosa­lega góðir vinir og eigum mjög gott sam­band þannig að okkur finnst gaman að gera hluti saman.“

Um heimsins höf

Hrefna er spurð hvort sú stað­reynd að hún „losnar við“ eig­in­mannin af og til hjálpi til eða skemmi fyrir.

Þetta hlýtur að hafa áhrif á sam­bandið okkar.

„Ég veit það ekki. Ég hef oft hugsað um þetta. Ég held að flestar sjó­manns­konur geti tengt við það þegar ég segi að það eru ákveðnir kostir við það að sitja ein að sjón­varp­inu til dæmis. Þetta má alls ekki skilj­ast þannig að ég sé ekki him­in­lif­andi þegar hann kemur heim en það er alltaf svo­lítið erfitt þegar hann kemur og ég þarf að venj­ast því aftur að sofa með ein­hvern við hlið­ina á mér sem er ekki bara hund­ur­inn minn. En svo er þetta aftur mjög erfitt þegar hann fer; þá þarf ég að venj­ast því aftur að það er bara hund­ur­inn minn við hlið­ina á mér en eng­inn maður. Þetta hlýtur að hafa áhrif á sam­bandið okkar. Það bara hlýtur að vera. En ég átti mig samt ekki almenni­lega á því hvort að áhrifin séu slæm eða góð. Og ég hugsa jafn­vel að í okkar til­felli sé þetta heppi­legra heldur en hitt af því að ég er bara þannig típa að ég á erfitt með að vera alltaf í sama umhverf­inu og gera sömu rútínu­blöndnu hlut­ina.“

Við ætlum að kaupa okkur skútu, selja húsið og fara að sigla um heims­ins höf.

Það kemur að því að eig­in­mað­ur­inn hættir á sjónum.

„Ég hlakka svo­lítið mikið til þess af því að við höfum rætt þetta svo­lítið mikið hvað við gerum þegar hann hættir til sjós. Hann er 12 árum eldri en ég þannig að ég verð senni­lega ennþá á vinnu­mark­aði þegar hann hættir en við erum búin að plana það að ég hætti líka í vinn­unni þegar þar að kemur og við ætlum að kaupa okkur skútu, selja húsið og fara að sigla um heims­ins höf.“

Sjórinn

Hrefna segir að þegar hún var krakki þá hafi það verið til siðs að börn fengju að fara með pöbbum sínum á sjó einu sinni á sumri.

„Mér fannst það æðis­legt. Bara geggjað,“ segir Hrefna sem seg­ist í dag vera manískur kajakræð­ari og fer hún oft út í um klukku­tíma.

Hún seg­ist elska sjó­inn. „Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki sjó­inn alltaf fyrir framan mig og gæti ekki reglu­lega farið út á kajak­inn minn eða segl­bát. Það er bara það besta sem ég veit.“

Þá er það bara núið fyrir mér.

Hvað er það við kajak­inn sem heillar?

„Fyrir mér er þetta senni­lega eins og þegar annað fólk sæk­ist í jóga. Þetta er þessi núvit­und og hug­leiðsla. Þegar ég er búin að róa út á fjörð­inn og sit þar og heyri bara öldu­gjálfur í kringum mig og í fugl­unum og finn salt­bragð á vör­unum þá er það bara núið fyrir mér.“

Kajakinn er líka not­aður á vet­urna.

„Kost­ur­inn við það að eiga mann sem er sjó­maður er að hann hugsar um öryggið og sér um að ég fari ekki út á sjó án þess að vera gölluð frá toppi til táar þannig að hann er búinn að kaupa fyrir mig ein­hverja þurrgalla og alls konar und­ir­föt og skó þannig að ég geti farið líka örugg á kajak á vet­urna.“

Horfa má á við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð