Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Gústaf óendanlega hryggur vegna „hvarfs“ Gulla bróður: „Hann er bara farinn, það er svo sorglegt“

Gústaf óendanlega hryggur vegna „hvarfs“ Gulla bróður: „Hann er bara farinn, það er svo sorglegt“

Gústaf Níelsson sagn­fræð­ingur segir það óbæri­legt að horfa upp á bróður sinn Guðlaug hverfa inn í algleymi Alzheimers-sjúk­dóms­ins. Hann gerir sér grein fyrir því að stríðið sé nú tapað þó Gulli, líkt og yngri bróðir hans er kall­aður, sé enn glaður og kátur og þekki oft­ast sína nán­ustu. Guð­laugur er aðeins 66 ára gam­all.

Gústaf hitti yngri bróður sinn í fyrra­dag og var það afar erfið heim­sókn. Aðspurður hvort hann finni sig lít­inn og van­mátt­ugan að geta ekki hjálpað litla bróður sínum svarar Gústaf því ját­andi. „Það er þung­bært að horfa á lif­andi dáinn mann, sem alltaf var hvers manns hug­ljúfi. Það er ekk­ert sem maður getur gert. Ekkert sem ég get gert. Þetta er alveg skelfi­legt upp á að horfa, hvernig þessi sjúk­dómur hefur tekið hann niður og hægt og bít­andi hefur hann end­aði í algleymi,“ segir Gústaf og heldur áfram:

Sjá einnig: Gústaf Níelsson horfir á bróður sinn hverfa: „Það er þung­bært að horfa á lif­andi dáinn mann“

„Það eru margir sem glíma við þetta auð­vitað og það er verst að lækn­is­fræðin hafi engin ráð fyrir þessu. Hann hefur notið bestu með­ferðar sem þekkt er en núna er hann kom­inn á það stig að hann er búinn að missa sam­bandið. Ég náði honum hér áður, t.d. með tón­leikum á svöl­unum þar sem ég spil­aði gamla tón­list. Gulli var að upp­lagi afar kátur maður, glað­sinna og mælskur, svo­lít­ill grín­ari svona. Góður heim að sækja. Allt í einu fór þetta bara að fjara út og núna nær maður engu sam­bandi, maður er bara talandi við lif­andi mann sem í reynd er bara far­inn. Það er það nöt­ur­leg­asta.

Gulli og Gústaf á góðri stundu fyrir tveimur árum.

Virðist ekki líða illa

Í dag seg­ist Gústaf ekki lengur eygja von fyrir hönd Gulla bróður síns. Hann segir ein­fald­lega nú svo komið að sætta sig við orð­inn hlut. „Þetta er ákaf­lega mikið álag fyrir fjöl­skyld­una, eig­in­konu og börnin hans fimm. Þetta er afar nöt­ur­legt. Honum virð­ist hins vegar ekki líða illa og það er afar vel um hann hugsað. Ég er þessum stofn­unum þakk­látur fyrir þeirra góða starf. En hann sjálfur áttar sig ekk­ert á því hvernig staðan er og er alveg horf­inn í algleymi þessa and­styggi­lega sjúk­dóms, sem nútíma­lækn­is­fræði kann engin ráð við. Ég eygi enga von fyrir Gulla og verð bara að sætta mig við þetta. Hvað svo sem er bak­við hornið í lækna­vís­ind­unum.

Þetta er í raun alveg skelfi­legt og afar dap­ur­legt. Og svo ætti hann kannski þess vegna eftir að lifa í 10, 20, 30 ár til við­bótar. Lífs­gæðin eru engin en hann er samt sáttur þar sem hann er og er enn glaður og kátur. Skapið er létt en ekki hægt að halda uppi neinum sam­ræðum,“ segir Gústaf.

Lömuð öðru meginn

Ofan á allt saman veikt­ist eig­in­kona Gústafs, Bergþóra Sig­ur­björns­dóttir illa sum­arið 2020 er hún fékk blóð­tappa og lam­að­ist á vinstri helm­ingi lík­am­ans. Hann ber engan kala til lækn­anna þó svo að góðar líkur hefðu átt að vera á grein­ingu veik­ind­anna fyrr.

Bergþóra og Gústaf á svöl­unum heima þar sem þau búa á Spáni.

„Hún lítur auð­vitað ekki út fyrir að vera eldri en sex­tug. Begga fór til læknis í febr­ú­ar­mán­uði og sagði að hún væri farin að fá blindu fyrir annað augað og höf­uð­verk. Þetta væri ekki eðli­legt sagði hún. Lækn­ir­inn horfði á hana og segir: „þetta er örugg­lega bara mígreni.“ Þrátt fyrir að Begga hafi stappað í gólfið þá var ekk­ert gert nema hún sett í ein­hverja bið­röð, og fékk svo heila­blóð­fallið í milli­tíð­inni. Þetta er nátt­úru­lega lyg­inni lík­ast.

Ef það hefði verið hlustað á hana, þá hefði þetta verið rann­sakað strax. Læknar segja mér það í dag og það hefði verið heppi­legt að glöggur læknir hefði komið auga á þetta strax og brugð­ist við. Það gerð­ist bara ekki því miður. En ég ber engan kala til kerf­is­ins, af hverju á maður að vera að ergja sig á ein­hverju slíku? Hún er núna að glíma við þessa lömun en henni hefur farið gríð­ar­lega fram,“ segir Gústaf og bætir við:

„Þetta er bara það sem að höndum ber og þessu ræður maður ekki. Aldurinn vinnur stundum gegn manni í þess­ari end­ur­hæf­ingu. Nútíma sam­skipta­tæknin hjálpar okkur hér úti að vera í góðu sam­bandi við okkar fólk. Við erum í raun og veru ekki fjar­ver­andi, heldur svo nálægt. Ég get hringt, sent bréf eða skila­boð á alla vini mína og maður fær svar strax. Við erum í raun og veru ekk­ert í burtu.“

Saknar alls ekki Íslands

Guð­laugur og Gústaf eru bræður Brynjar Níels­sonar, aðstoð­ar­manns dóms­mála­ráð­herra, og hafa þeir verið sam­rýndir í gegnum árin. Fjórði bróð­ir­inn upp­götv­að­ist svo fyrir til­viljun. „Við eigum einn auka bróður sem við upp­götv­uðum bara fyrir tveimur árum síðan. Hann er alveg fínn, já já, segir Gústaf.

Sjálfur hefur Gústaf svo verið að glíma við hjarta­vanda­mál um ára­tuga­skeið. Nú þegar hefur hann þurft að fara í einar þrjár þræð­ingar. „Ég er nú bara þokka­legur og kvarta ekki. Mér finnst verra að konan mín varð fyrir þessum alvar­lega heilsu­bresti. Þegar maður lendir í hremm­ingum þá er maður ekk­ert einn í þessu og tekur bara því sem að höndum ber. Ég vor­kenni ekki sjálfum mér, það þýðir ekk­ert,“ segir hann hvergi bang­inn:

„Ég er ekki líf­hræddur og ótt­ast heldur ekki lofts­lags­vánna sem nú er í svo mik­illi tísku og allir eru að drep­ast úr hræðslu yfir. Það er svo margt sem við vitum um þau mál sem passa ekki inn í mód­elið sem allir eru að tala um. Íslend­ingar voru að frjósa í nærri 500 ár. En þarna erum við nú komnir út í póli­tík­ina.“

Gústaf lætur afar vel af búset­unni á Spáni, þar sem þau hjónin hafa búið frá því árinu 2016 er þau keypti sér þar íbúð. „Við tókum bara ákvörðun um að færa okkur um set og Spán­verjar hafa tekið ákaf­lega vel á móti okkur. Við sjáum sko ekki eftir því og söknum ekki Íslands. Verð­lagið er gott og við lifum hér góðu lífi á eft­ir­laun­unum. Eftir að við hættum að vinna höfum við það miklu betra hér úti en á Íslandi. Hér á Spáni er mjög gott að vera.“

Og hún er ekki löng upp­taln­ingin þegar hann er spurður um hvort það er eitt­hvað sem hann sakni við Ísland.

„Þegar ég er á Íslandi fer ég aldrei í bað. Ég fer bara í laug­ina. Hið eina sem ég sakna er Árbæj­ar­laugin. Annað er það ekki.“

Þegar Össur Skarp­héð­ins­son sá þessa mynd af Gústafi á hann að hafa sagt: „Ekki rífa kjaft við þennan mann.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ