Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Aukið ofbeldi kemur Ólínu ekki á óvart: „Nú síðast í gær varð ég að slökkva á Ríkissjónvarpinu“

Aukið ofbeldi kemur Ólínu ekki á óvart: „Nú síðast í gær varð ég að slökkva á Ríkissjónvarpinu“
Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir

Ólína Kjerúlf Þor­varða­dóttir, fyrrum alþing­is­maður, segir sér ekki koma á óvart að ofbeldi á meðal ung­menna sé að aukast. Í færslu á Facebook síðu sinni segir Ólína börn verða fyrir skefja­lausu ofbeld­is­inn­ræt­ingu. Hún tekur sem dæmi, tölvu­leiki, kvik­myndir og sam­fé­lags­miðla á borð við TikTok. „Nú síð­ast í gær varð ég að slökkva á Rík­is­sjón­varp­inu þegar mér var boðið upp á að „skemmta“ mér yfir saka­mála­mynd þar sem verið var að búta fólk í sundur, plokka úr því augun og festa þau á band,“ segir Ólína í færsl­unni.

Færsluna er hægt að lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

„Í nótt voru tveir 14 ára ung­lingar hand­teknir eftir að hafa ráð­ist af handa­hófi á fólk í mið­borg­inni og veitt því áverka, svo flytja þurfti tvennt á bráða­mót­töku. Frétt­inni fylgdu þær upp­lýs­ingar að ofbeldi meðal ung­menna væri að aukast.

Ég er satt að segja ekki mjög undr­andi á þessu, svo óæski­legt sem það er og uggvekj­andi. Ef við lítum í kringum okkar á þá skefja­lausu ofbeld­is­inn­ræt­ingu sem börn og ung­menni verða fyrir hvar­vetna þar sem afþrey­ing er í boði, hvort sem litið er á kvik­myndir, tölvu­leiki eða það efni sem gengur á sam­fé­lags­miðlum eins og TikTok o.fl. Nú síð­ast í gær varð ég að slökkva á Rík­is­sjón­varp­inu þegar mér var boðið upp á að „skemmta“ mér yfir saka­mála­mynd þar sem verið var að búta fólk í sundur, plokka úr því augun og festa þau á band.

Ég er ein af þeim sem þoli ekki ofbeldi – mér verður lík­am­lega illt af því að horfa á gróft ofbeldi í kvik­myndum. Klisjan um að maður geti sjálfur valið sitt áhorf hefur oft dunið á mér, ég þurfi ekki að kveikja á sjón­varp­inu, þurfi ekki að fara í bíó frekar en ég vilji og þar fram eftir götum. Ekkert af þessu eru þó sann­gjörn mótrök, því þegar „menn­ingin“ hefur hreiðrað um sig gegn­sýrir hún allt sem fyrir verður og valið er ekki raun­veru­lega til staðar.

Börn og ung­lingar eru sér­stak­lega útsett fyrir dæg­ur­menn­ingu sem bein­ist að þeim sem ald­urs­hópi. Ofbeld­is­fullir tölvu­leikir sem bein­ast að þeim sem mark­hópi eru fram­leiddir eins og eng­inn sé morg­un­dag­ur­inn. Í lok­uðum kreðsum ung­linga­menn­ing­ar­innar vill verða lítið eft­ir­lit og þar getur orðið mög óæski­leg gerjun. Gömul saga og ný.

Mér er full alvara þegar ég segi að hér þurfi að reisa við skorður. Sér­stak­lega hef ég áhyggjur af eitr­uðum karl­mennsku­hug­myndum ungra manna sem mér sýn­ast standa í beinu sam­bandi við þann kynja­halla sem sjá má í skóla­kerf­inu, þar sem ungir menn eru orðnir í minni­hluta – jafn­vel orðnir færri en þriðj­ungur sum­staðar – og fækkar stöðugt.

Ég hef enga töfra­lausn, en held samt að það væri æski­legt ef stjórn­völd félags- menn­ingar- og mennta­mála settu af stað stefnu­mót­un­ar­vinnu til þess að sporna gegn ofbeld­is­menn­ingu og mennt­un­ar­skorti meðal ungra karl­manna. Eitt það fyrsta sem þyrfti að skoða í því sam­bandi væri það afþrey­ing­ar­efni sem ungu fólki stendur til boða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ