Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Kannski er þetta svona í menntastofnunum sem ég hef aldrei komið í enda ómenntuð láglaunakona“

„Kannski er þetta svona í menntastofnunum sem ég hef aldrei komið í enda ómenntuð láglaunakona“
Sólveig Anna Jóns­dóttir.

Sólveig Anna Jóns­dóttir lætur móðan mása um atburði síð­ustu daga innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar:

„Ýmsir gáf­aðir menn með mörg háskóla­próf hafa stigið fram í við­tölum á síð­ustu dögum, til að tjá sig um átökin í Alþýðu­sam­band­inu. Þar eru þeir eru beðnir um að útskýra og greina atburð­ina fyrir okkur ves­al­ing­unum. Þessir gáf­uðu menn eru oft­ast sam­mála hinnu bitru valda­klíku ASÍ: eng­inn mál­efna­legur ágrein­ingur, deilur snú­ast bara um per­sónur og völd.“

Hún bætir við:

„Það væri kannski hægt að skilja þessa und­ar­legu vits­muna­fá­tækt hinna gáf­uðu manna ef að risa­vax­inn und­ir­liggj­andi hug­mynda­fræði­legur ágrein­ingur innan ASÍ hefði farið hljótt eða jafn­vel verið ein­hvers konar leynd­ar­mál. En svo er nú aldeilis ekki. Ég hef margoft tjáð mig um þennan ágrein­ing um mark­mið og leiðir, í greinum í blöð­unum og í Facebook-statusum. Allt er þetta efni aðgengi­legt fræði­mönnum, heim­ildir sem að þeir geta plokkað sem ávexti af trjánum og unnið úr með sínum fræði­legu vinnu­brögðum.

Í sumar gekk ég meira að segja svo langt að skrifa greina­flokk í fjórum pörtum þar sem ég rek í ítar­legu máli, með vísun í ótal dæmi, bæði rætur og birt­ing­ar­myndir þess hvernig ASÍ hefur mis­heppn­ast að laga sig að nýjum straumum í stærstu verka­lýðs­fé­lögum okkar lands. En eng­inn þess­ara gáf­uðu manna hefur svo mikið sem vikið einu orði að skrifum mínum um við­fangs­efnið, það er líkt og að þau séu ekki til í þeirra augum. Það er mjög áhuga­vert og vekur áhuga­verðar spurn­ingar.

Til dæmis um það hvers vegna svo gáf­aðir menn, vænt­an­lega með mikla gáfu­manna-sjálfs­virð­ingu, gera í sífellu nokkuð sem þeir myndu vænt­an­lega hneyksl­ast á hjá nem­anda sem væri í nám­skeiði hjá þeim til að læra hvernig á að vera gáf­aður: Að mæta algjör­lega óles­inn í próf, vera ekki búinn að lesa neitt heima, standa á gati og skila þar í stað svara ein­hverju babbli upp­hugs­uðu á staðnum. En hvað veit ég, kannski er þetta einmitt svona í hinum virðu­legu mennta­stofn­unum sem ég hef reyndar aldrei komið í enda ómenntuð lág­launa­kona.“

Sóveig Anna segir að „það gladdi mig þó að hlusta á Sigrúnu Ólafs­dóttur félags­fræð­ing í dag í Silfrinu. Hún benti á að hugs­an­lega gæti verið ein­hver und­ir­liggj­andi mál­efna-ágrein­ingur. Kannski gæti hann snú­ist um það hvernig við eigum að skipta auði í sam­fé­lag­inu og, eins og hún orð­aði það, hversu mik­inn ójöfnuð erum við til í að sam­þykkja. Sigrún vís­aði til umræð­unnar víða um um heim um það hvers vegna vinstri­flokkar hafa skilið eftir lág­launa­fólk og farið í stað­inn að hugsa mest­megnis um áhuga­mál milli­stétt­ar­innar.

Sigrún dirfð­ist að velta því upp hvort þetta væri kannski ein „und­ir­alda“ þess sem er að spil­ast út fyrir framan okkur. Og hér er ein til­vitnun í Sigrúnu úr Silfri dags­ins sem að mér fannst góð:

„Kannski erum við að reyna að husga um hvort að viljum bæta sam­fé­lagið fyrir alla.“

Og: „Erum við að tala um ein­hverja grund­vall­ar­bylt­ingu á hvernig við skiptum lífsæ­gæðum og hvernig við skiptum kök­unni. Og þurfum við að byrja upp á nýtt?““

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð