Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hanna Björk greindist með brjóstakrabbamein: „Rosalega heppin, bara annað brjóstið tekið“

Hanna Björk greindist með brjóstakrabbamein: „Rosalega heppin, bara annað brjóstið tekið“

Fyrir rúmum 2 árum síðan fund­ust frumu­breyt­ingar hjá mér í öðru brjóst­inu. Í kjöl­farið fór ég í aðgerð þar sem það var fjar­lægt. Síðan þá hafa ýmsar breyt­ingar orðið á lífi mínu og flestar til góðs. Í gær flutti ég hug­leið­ingu í bleikri messu að beiðni séra Braga í Víði­staða­kirkju, en séra Stefán Már Gunn­laugs­son þjón­aði fyrir alt­ari. Ég ákvað að deila þessum hug­leið­ingum mínum með ykkur, segir söng­konan og söng­kenn­ar­inn Hanna Björk Guð­jóns­dóttir, og bætir við:

„Að vísu sagði Stefán Már að þetta hefði verið meira í átt að predikun og var bara ánægður með það. En alveg var það nú eftir mér að fara að predika yfir öllum. Jæja hér kemur þá „predik­unin“ mín fyrir þá sem hafa nennu til þess að lesa meira:

„Þegar séra Bragi sókn­ar­prestur hér í Víði­staða­kirkju hafði sam­band við mig, til þess að athuga hvort ég væri til í að halda erindi í til­efni bleik­rar messu, þá var ég var ekki alveg sann­færð um að ég væri réttan mann­eskjan. En honum tókst að sann­færa mig um að litla sagan mín ætti allt eins erindi til ykkar eins og hver önnur.

Ég bið ykkur um að taka eftir því að ég segi „litla“ saga mín.

Eftir sam­talið fór hugur minn á flug og dag­inn eftir fyrir klukkan sjö að morgni sett­ist ég niður og fór að skrifa. Þeir sem þekkja mig eiga bágt með að ímynda sér mig vakna fyrir klukkan sjö og hvað þá að rjúka fram úr svona snemma.

Samtalið við Braga setti eitt­hvað af stað sem hafði lúrað í mér. Allt í einu þurfti ég að fara að skil­greina til­finn­ingar mínar og hugs­anir og jafn­vel fara í gegnum ákvarð­anir sem ég hef tekið síð­ustu 2 til 3 ár. Sann­ar­lega hef ég upp­lifað frá eigin hendi að hafa farið í gegnum í brjósta­skimun þar sem allt var ekki eins og það átti að vera og eftir það ekki fund­ist ég ráða neinu um það sem á eftir kom.

En ég er mikil Pollý­anna í eðli mínu og þið sem þekkið ekki sög­una um Pollýönnu eða hafið séð mynd­ina þá er upp­á­halds setn­ing mín í mynd­inni: „I‘m so glad I didn‘t brake both my legs.“

Hún var svo heppin þessi elska að hún braut bara annan fót­inn.

Ég fór í aðgerð þar sem annað brjóstið var tekið í burtu. Ég sann­færði sjálfa mig um að ég væri rosa­lega heppin. Bara annað brjóstið var tekið. Ég þurfti ekki að fara í áfram­hald­andi með­ferð og verð BARA í sér­stöku eft­ir­liti næstu 5 árin.

Aðrir hafa þurft að ganga í gegnum miklu meira og þurft að þola tölu­vert erf­ið­ari aðstæður en ég. Með þetta hug­ar­far hef ég farið í gegnum síð­ustu tvö ár en ég finn samt fyrir því að orkan mín er ekki sú saman og áður. Ég hef heldur ekki verið laus við að hafa áhyggjur af því að það fari af stað krabba­mein í því brjósti sem eftir er. Hugsanir eins og „meinið gæti orðið verra og kannski yrði það ill­við­ráð­an­legt“ koma upp í hug­ann.

Þessar hugs­anir koma og fara en sem betur fer stoppa þær stutt. Það er samt sem áður gott að við­ur­kenna fyrir sjálfum sér að þessar hugs­anir séu til staðar og gera sér um leið grein fyrir því að þessar til­finn­ingar og hugs­anir eru eðli­legar. Að það sé hægt að upp­lifa van­líðan og hræðslu án þess að dvelja í því ástandi. Húmorinn hefur hjálpað mér mikið. Það er stundum gott að geta séð skop­legu hlið­ina á erf­iðum aðstæðum enda er oft sagt að sorg og gleði séu systur.

Hlátur er ein leið til þess að takast á við erf­iðar aðstæður en það þýðir ekki að maður taki öllu af léttúð og geri sér ekki grein fyrir alvar­leik­anum.

Ég fór í aðgerð haustið 2020 þar sem brjóstið var fjar­lægt. Veturinn þar á eftir fór í það að jafna sig og venj­ast því að vera bara með eitt brjóst.

Svo kom sum­arið.

Okkur hjón­unum þykir gott að skella okkur í sund, sér­stak­lega á sumrin. Þetta sumar þurfti ég að tala mig til áður en ég gat stigið það skref að hátta mig fyrir framan aðra en valda aðila og heil­brigð­is­starfs­fólkið sem hafði sinnt mér. Ég geri mér ekki grein fyrir hvort ástæðan var að mér fynd­ist óþægi­legt að fólk sem ég þekkti ekki sæi mig bara með eitt brjóst eða hvort ég hafði áhyggjur af því að öðrum fynd­ist óþægi­legt að sjá mig svona.

Hvort heldur sem er, þá þurfti ég minn tíma til þess að und­ir­búa mig fyrir þessar aðstæður. Svo kom að því. Ég valdi sund­laug í litlu bæj­ar­fé­lagi úti á landi og þetta var í miðri viku. Auðvitað var sund­laugin full af fólki á þessum sól­skins­degi en ekki hvað.

Sund­laug­ar­ferðin gekk vel framan af eða alveg þangað til ég fór upp úr laug­inni og þurfti að klæða mig aftur. Ég ein­beitti mér að því að reyna að „trufla“ ekki neinn á meðan ég þurrk­aði „sund­brjóstið“ mitt svo ég gæti troðið því þurru í brjósta­haldar­ann. Það fór ekki betur en svo að ég missti það út úr hönd­unum og þarna skopp­aði það frá mér í átt að mæðgum, þrjár kyn­slóðir.

„Afsakið“ sagði ég skömmustu­leg.

En þá fékk ég þetta dásam­lega svar „Iss, þetta gerir ekk­ert til, mamma er alveg eins“ sagði unga móð­irin og rétti mér brjóstið. Litla dóttir hennar hafði líka þörf fyrir að segja mér að þetta væri allt í lagi og sagð­ist elska brjóstið hennar ömmu sinnar, það væri svo mjúkt. Þar með var vígið fallið. Ég elska þessa sögu, mér finnst hún fyndin en jafn­framt lýsir hún svo miklum kær­leik. Kærleik náung­ans sem er ekki sama um þig og hvernig þér líður.

Við erum ekki ein.

Það sleppur eng­inn við áföll eða það að upp­lifa sorg ein­hvern tím­ann á lífs­leið­inni. Við því er ekk­ert að gera nema að sýna æðru­leysi þegar svo ber undir og gefa sér tíma til þess að takast á við það sem að höndum ber.

Stundum finnum við sam­svörun í því sem aðrir eru að upp­lifa á meðan við eigum erfitt með að setja okkur í ann­arra spor. En að setja sig í ann­arra spor er ekki alltaf nauð­syn­legt til þess hægt sé að sýna skiln­ing og kær­leika í garð ann­arra. Við þurfum stundum bara ein­hvern sem er til­bú­inn að hlusta.

Fyrir ykkur sem eruð að ganga í gegnum erf­iða tíma segi ég, gefið til­finn­ing­unum rými. Við þurfum ekki að fela van­líðan, sorg eða reiði. Leyfið ykkur einnig að finna fyrir gleði og jákvæðni. Best er að hafa húmor­inn ekki langt í burtu hann er ótrú­lega gott hjálp­ar­tæki til þess að takast á við erf­iðar aðstæður.

Allt það sem ég hef gengið í gegnum nýti ég sem lær­dóm til þess að skilja betur, öðl­ast ró og sýna æðru­leysi. Þó er lyk­il­orð mitt alltaf kær­leikur.

Kær­leik­ur­inn er bestur.

Í Fyrra Kor­in­tu­bréfi 13. kafla stendur m.a. Þótt ég tal­aði tungum manna og engla en hefði ekki kær­leika væri ég hljóm­andi málmur eða hvellandi bjalla. Og þótt ég hefði spá­dóms­gáfu og vissi alla leynd­ar­dóma og ætti alla þekk­ing og þótt ég hefði svo tak­marka­lausa trú að færa mætti fjöll úr stað en hefði ekki kær­leika, væri ég ekki neitt.

Að lokum langar mig að lesa upp fyrir ykkur sálm nr. 406 eftir Björn Hall­dórs­son frá Laufási.

Sál mín, hrind þú harmi‘ og kvíða, hvers kyns neyð sem fyrir er, heyr þú raust þíns herra blíða, hana segja láttu þér: Það ,sem horfir þyngst til móðs, þér skal verða mest til góðs. Hugg­ar­inn á himni bætir hvað, sem mæðir þig og grætir.

Takk fyrir!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð