Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Fór með sjúkraflugi frá Póllandi til Akureyrar eftir að hafa slasast illa í árshátíðarferð Samherja

Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint.

Samkvæmt vefsíðunni ruv.is þá slasaðist maður í árshátíðar­ferð Samherja, í pólsku skipasmíða­borginni Gdansk um helgina. Var maðurinn fluttur til Akureyrar með sjúkra­flugi.

Samkvæmt upplýsingum frá Samherja hlaut maðurinn slæmt beinbrot eftir óhapp og ljóst að hann hefði þurft að vera lengi á sjúkra­húsi í Póllandi.

Nokkur hundruð starfs­menn Samherja og makar þeirra, sem eiga maka, héldu um helgina til Póllands. Árshátíð fyrir­tækisins fór fram þar í landi að þessu sinni.

Á föstu­daginn síðasta varð einn úr hópnum fyrir því óláni að brotna illa á fæti.

Karl Eskil Pálsson, fyrr­verandi blaða­maður og núverandi upplýsinga­fulltrúi Samherja segir manninn hafa komist undir læknis­hendur á Akureyri strax daginn eftir slysið:

„Hann verður fyrir óhappi og brotnar illa og samkvæmt starfs­reglum fyrir­tækisins fer í gang ákveðið ferli. Það var ljóst að hann hefði þurft að dvelja lengi á sjúkra­húsi þarna úti og því var ákveðið að senda sjúkra­flugvél eftir honum,“ Karl segir manninn kominn undir læknis­hendur á spítalanum á Akureyri:

„Þetta gerðist ekki á árshátíðinni sjálfri heldur daginn áður. Þetta var ekkert lífs­hættulegt en gott að hann sé kominn á sjúkrahús heima á Íslandi þar sem hann fær aðhlynningu.“

Tveir flugmenn frá norð­lenska flug­félaginu Norlandair fóru í ferðina ásamt lækni. Flogið var á B200 King Air án þess að milli­lenda á leiðinni, en flugið er tæpir 2400 km og tekur tæplega sex klukku­tíma. Flug­stjóri vélarinnar sem frétta­stofa ræddi við segir flugið hafa gengið vel en aldrei áður hefur vél á vegum flug­félagsins farið í svo langt sjúkra­flug frá Akureyri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning