Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Óviðeigandi Víkingar í vandræðum: „Eiður er alltaf fullur“ og „Number 6 is a sex offender“

Óviðeigandi Víkingar í vandræðum: „Eiður er alltaf fullur“ og „Number 6 is a sex offender“

Eft­ir­lits­maður KSÍ á bik­ar­úr­slita­leik karla á milli Víkings og FH, Frosti Viðar Gunn­ars­son,  skrif­aði í skýrslu sína eftir leik­inn um níð­söngva sem aðdá­endur Víkinga sungu um þáver­andi þjálf­ara FH, Eið Smára Guðjohn­sen, og núver­andi leik­mann FH, Eggert Gunnþór Jónsson.

Kemur fram að úrskurður aga- og úrskurð­ar­nefndar frá 12. októ­ber þessa­mán­aðar um heima­leikja­bann Víkinga er fellt úr gildi; sekt Víkinga – sem nemur 200.000 krónum stendur var ekki felld niður.

Leik­ur­inn, sem end­aði með sigri Víkinga eftir fram­leng­ingu, fór fram þann 1. októ­ber síð­ast­lið­inn á Laug­ar­dals­velli.

Tveimur dögum síðar barst áður­nefnd skýrsla frá eft­ir­lits­manni KSÍ til aga- og úrskurð­ar­nefndar KSÍ.

Athygl­is­vert er að skoða í skýrsl­unni atvik er varða stuðn­ings­menn Víkings; og er lýst með þessum hætti:

„[…]Stuðn­ings­menn Víkinga voru aftur á móti með mun alvar­legri hegðun. Þá er ég hér að vísa til þess hóps sem var fremst í stúkunni, við grind­verkið. Þeir kveiktu alla­vega í þrí­gang á blysum. Í fyrsta skiptið eftir að þeir skor­uðu sitt fyrsta mark á mín 26. Einnig eftir annað mark sitt á mín 89. Og svo í þriðja skiptið að leik loknum. Nokkuð var um níð­söngva gagn­vart leik­mönnum og þjálf­ara FH sem voru sær­andi og með öllu óásætt­an­legir,“ segir í skýrslu Frosta:

Eggert Gunnþór Jónsson.

„Það sem ég heyrði varð­andi söngvana var:

„Eiður er alltaf fullur“ og „Number 6 is a sex off­ender.“

Eiður Smári hefur við­ur­kennt áfeng­is­vanda­mál sitt og hefur stigið til hliðar sem þjálf­ari FH. Eggert Gunnþór er leik­maður númer 6 hjá FH – hann var á síð­asta ári ákærður fyrir naugðun ásamt lands­liðs­mann­inum Aroni Einari Gunn­ars­syni.

Var málið fellt niður bæði hjá hér­aðs og rík­is­sak­sókn­ara.

Í skýrslu Viðars má einnig lesa þetta:

„Sýnileg ölvun var hjá stuðn­ings­mönnum Víkinga og einn stuðn­ings­maður hljóp inn á völl­inn úr gömlu stúkunni að ég held, en ég sá ekki almenni­lega hvar hann kom inn. Hann gat síðan valsað um völl­inn án afskipta í nokkurn tíma og ekki fyrr en hann var kom­inn fyrir framan stuðn­ings­menn Víkinga er hann stopp­aði sem gæslan tók að bregð­ast við.“

Viðar nefnir líka að „einnig tók ég eftir bjór­dósum í kringum gæslu sem stóð fyrir framan stuðn­ings­menn Víkinga, án þess að hafa séð þær fljúga þar inn, enda að fylgj­ast með leiknum sjálfum.“

Venju sam­kvæmt, og í sam­ræmi við reglu­gerð KSÍ um aga- og úrskurð­ar­mál, var skýrsla Viðars send til hlut­að­eig­andi félags þann 4. októ­ber; því gef­inn kostur á að koma að athuga­semdum vegna skýrsl­unnar fyrir næsta fund aga- og úrskurð­ar­nefndar.

Eins og áður sagði bar áfrýjun Víkings nokkurn árangur; í svari þeirra til áfrýj­un­ar­nefndar segir svo:

„Í skýrslu eft­ir­lits­manns leiks­ins segir að stuðn­ings­fólk Víkings hafi við­haft sær­andi ummæli gagn­vart leik­mönnum og þjálf­ara FH. Skýrslan er veru­lega ein­hliða og alls ekki í sam­ræmi við upp­lifun þeirra sem félagið hefur rætt við eftir leik­inn. Það hefur t.a.m. komið fram bæði í fjöl­miðlum og ann­ars staðar að það hafi verið ölvun beggja megin í stúkunni og aug­ljóst af myndefni frá RÚV að sóða­skapur var fyrir framan áhorf­enda­palla beggja stuðn­ings­liða,“ segir í and­svari Víkinga.

Þeir sem vilja lesa skýrsl­una í heild geta smellt hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð