Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sólveig kveður mótmælendur í kút: „Fulltrúar skrifstofuvirkisins og háskólamenntaðar millistéttar“

Sólveig kveður mótmælendur í kút: „Fulltrúar skrifstofuvirkisins og háskólamenntaðar millistéttar“
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd: Skjáskot/RÚV

Hópur kvenna gekk út af jafn­rétt­is­þingi og virt­ust gefa Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, for­manni Eflingar, rauða spjaldið er hún hélt erindi sitt á ráð­stefn­unni í Hörpu í dag. Þessi hópur virð­ist ekki hafa þekkt Sólveigu Önnu betur en svo að rauða spjaldið minnti hana fremur á rauðan fána alþýð­unnar fremur en eitt­hvað íþrótta­tengt. Það segir Sólveig sjálf í það minnsta. Sólveig segir þennan hóp vera full­trúa háskóla­mennt­aðrar milli­stéttar meðan hún standi með lág­launa­konum Íslands.

Hér fyrir neðan má lesa færslu Sól­veigar um málið í heild sinni.

Full­trúar skrif­stofu­virk­is­ins og háskóla­mennt­aðar milli­stéttar voru mættar gal­vaskar á Jafn­rétt­is­þing þar sem að mér hafi náð­ar­sam­leg­ast verið boðið að tala fyrir hönd arð­rændra lág­launa­kvenna höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, til að sýna mér það sem kallað er Rauða spjaldið.

Nú er það svo að þekk­ing mín á skipu­lögðum íþróttum er því sem næst engin. Snemma í bernsku var ég orðin mik­ill and­stæð­ingur þeirra. Svo heit var and­staða mín að faðir minn, sem hafði mik­inn áhuga á því sem næst öllum íþróttum, sagði eitt sinn við mig fremur upp­gef­inn, eftir að ég hafði enn einu sinni reynt að efna til póli­tískra upp­þota á heim­il­inu vegna áhorfs á enn einn hand­bolta­leik­inn, að ég væri eins og vit­laus­ustu komm­ún­istar mann­kyns­sög­unnar, en þeir höfðu víst haft á stefnu­skrá sinni að banna allar keppn­is­í­þróttir. Ég auð­vitað lét mér ekki segj­ast við þessi orð heldur for­hert­ist bara í íþrótta-and­stöðu minni.

Ég hef einu sinni reynt að horfa á fót­bolta­leik, fyrir nokkrum árum síðan. Þá hafði ég frétt af því að maður að nafni Reynaldo ætl­aði að taka þátt, en fram að því hélt ég að Reynaldo þessi væri heims­frægt, mjög fram­bæri­legt nær­fata­módel. Þarna vakn­aði áhugi minn en aðeins í skamma stund; mér leidd­ist svo aga­lega að ég gafst upp í hálf­leik og flutti í höfði mér Reynaldo úr flokknum Fót­bolta­maður aftur í flokkin Nær­fata­módel. Áfram Reynaldo.

Ég hef á lífs­leið­inni lagt þónukkuð á mig til að reyna að eyði­leggja gleði fólks yfir skipu­lögðum íþróttum. Um tíma lagð­ist ég svo lágt að þegar ein­hver sak­laus íþrótta-unn­andi sagði eitt­hvað um „Strákana okkar“ flýtti ég mér að segja: „Þú átt við „Strák­arnir ykkar“; ég á bara einn strák og hann er sko ekki í fót­bolta“. Ég hef reynt að venja mig af þessu, það er jú mik­il­vægt að passa mörkin í mann­legum sam­skiptum…

Allavega. Ef að full­trúar skrif­stofu­virk­is­ins vissu eitt­hvað um mig hefðu þær kannski áttað sig á því að svona íþrótta-vís­anir eins og Rautt spjald gera nákvæm­lega ekk­ert annað en að æsa mig upp og gera mig enn for­hert­ari. Ég til­heyri ekki aðeins sí-minnk­andi hópi þeirra sem eitt sinn voru kall­aðir anti-sportistar (eða heims­ins leið­in­leg­ustu komm­ún­istar), ég  er einnig stoltur með­limur stéttar alþjóð­legs vinnu­afls. Því er það svo að þegar að rauðu klæði er veifað framan í mig vaknar engin blygð­un­ar­kennd eða til­finn­ing um að ég hafi gert eitt­hvað rangt; nei, sam­stundis kvikna eld­heitar bar­áttu-kenndir hinnar arð­rændu verka­konu, og ég fyllist enn meiri og dýpri löngun til að rísa upp ásamt félögum mínum í stétt verka og lág­launa­fólks, sækja fram og vinna stóra og magn­aða sigra á þeim eina keppnis-velli sem ég við­ur­kenni; keppnis-velli þeim þar sem að vinnu­aflið mætir arð­ræn­ingj­unum. Áfram vinnu­aflið!

Full­trúar skrif­stofu­virk­is­ins veif­uðu Rauða spjald­inu og hlupu svo út. Þær höfðu auð­vitað engan áhuga á að hlusta á mig ræða stöðu arð­rænds kven-vinnu­afls höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, enda skiptir hlut­skipti þess hóps þær engu máli og hefur aldrei gert. En það er allt í lagi; þær skipta mig og félaga mínu engu máli. Við erum á leið á völl­inn, mörg, sam­einuð og sterk. Og þau til­þrif sem við munum sína þar verða þannig að engum þarf að leið­ast. Ég lofa því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð