Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Staðfest að Bjarni fær mótframboð í formannsembættið: Guðlaugur Þór fundaði með hulduhernum í gær

Staðfest að Bjarni fær mótframboð í formannsembættið: Guðlaugur Þór fundaði með hulduhernum í gær

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son hefur ákveðið að bjóða sig fram til for­manns Sjálf­stæð­is­flokk­ins á lands­fundi sem fram fer í Laug­ar­dals­höll dag­ana 4. til 6.nóv­em­ber næst­kom­andi. Ákvörðun um fram­boðið var til­kynnt rétt áðan á heim­ili Guðlaugs Þórs í Foldunum í Reykja­vík. Þangað var innsti kjarni stuðn­ings­manna­hóps Guðlaugs Þórs boð­aður kl. 20 í kvöld. For­ingjar Huldu­hers­ins voru mættir til fund­ar­ins.

Verður Guð­laugur Þór Þórð­ar­son næsti for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins?

Ljóst hefur verið um langt skeið að litlir kær­leikar eru á milli Bjarna Bene­dikts­sonar for­manns Sjálf­stæð­is­flokkisns til síð­ustu 13 ára, og Guðlaugs Þórs.

Eftir sigur Guðlaugs Þórs gegn Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir einu og hálfu ári síðan varð flestum ljóst sem með fylgd­ust að staða Guðlaugs Þórs innan Val­hallar væri orðin afar sterk.

Tals­verður ótti hefur verið innan her­búða Bjarna for­manns um að Guð­laugur Þór myndi láta til skarar skríða á kom­andi lands­fundi og bjóða sig fram til for­manns flokks­ins; og nú er það komið í ljós að af því verður.

Svoköll­uðum Hulduher Guðlaugs Þórs hefur vaxið ásmegin að und­an­förnu, enda margt sem bendir til þess að styrkur hans sé ekki síðri en styrkur Bjarna for­manns – og jafn­vel meiri. Und­an­farið hafa menn Guðlaugs tryggt sér fjölda lands­fund­ar­full­trúa með yfir­ráðum í félögum flokks­ins.

Hefur mörgum þótt for­mann­s­tíð Bjarna hafa verið þung og upp í móti síð­ustu árin, þótt honum hafi tek­ist að koma flokknum í rík­is­stjórn aftur og aftur. Þrátt fyrir að fylgi flokks­ins sé smám saman að minnka og fátt sem bendir til þess að það sé eitt­hvað að breyt­ast til betri vegar

Hulduher Guðlaugs Þórs hefur þegar gert kosn­ing­ar­skrif­stofu hans til­búna á Suð­ur­lands­braut, en skrif­stofan hýsti áður Helgi Áss Grét­ars­son stór­meist­ara í skák, sem nýverið til­kynnti um fram­boð sitt til rit­ara Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Aukin harka, hefur verið að gera vart við sig í Valhöll fyrir lands­fund­inn; flokk­ur­inn er í dag ein­fald­lega búinn að skipta sér að mestu niður í tvær fylk­ingar, fylk­ingu Bjarna Bene­dikts­sonar og fylk­ingu Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar.

Hafa ýmsir gall­harðir stuðn­ings­menn Sjálf­stæð­is­flokkisns lýst yfir áhyggjum sínum í sam­tölum við Mannlíf vegna ástands­ins í flokknum nú, sem þykja um margt minna á það stríðs­á­stand sem ríkti árið 1991 þegar Davíð Oddsson þáver­andi borg­ar­stjóri Reykja­víkur og vara­for­maður Sjaĺf­stæð­is­flokks­ins bauð sig fram gegn sitj­andi for­manni flokks­ins, Þorstein Pálssyni.

Hafði Davíð nauman sigur gegn Þor­steini, en sárin sem fylgdu fram­boði og sigri Davíðs (og ósigri Þor­steins) voru lengi að gróa.

Stuðn­ings­menn­irnir sem Mannlíf ræddi við sögðu einnig að klárt mál væri að for­mann­s­tíð Bjarna hafi verið rysj­ótt; honum hafi engan veg­inn tek­ist að færa flokk­inn upp á við í kjör­fylgi svo nokkru nemi í langan tíma; sögðu nokkrir að þreyta væri komin upp í Valhöll og að margir vildu sjá breyt­ingar á for­ystu flokks­ins.

Verður for­vitni­legt að fylgj­ast með bar­áttu Guðlaugs Þórs og Bjarna um for­manns­sætið í byrjun nóv­em­ber.

Uppfært: Umræddur fundur var hald­inn í félags­heim­ili Sjálf­stæð­is­manna í Graf­ar­vogi en ekki á heim­ili hans eins og rang­hermt var í frétt­inni. Um var að ræða mis­skiln­ing í fund­ar­boði. Yfir 100 manns voru mættir. Heim­ildir innan úr innsta hring stuðn­ings­manna hans herma að ákvörðun um fram­boð hafi þegar verið tekin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi