Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Jón birtir yfirlýsingu og segist ekki hafa hótað henni – Öll spjót beinast að Jóni í dag

Jón birtir yfirlýsingu og segist ekki hafa hótað henni – Öll spjót beinast að Jóni í dag
Jón Gunn­ars­son Mynd: Rúv-skjáskot

Jón Gunn­ars­son inn­an­rík­is­ráð­herra er ekki að eiga mjög góðan dag, má vænta, en öll spjót bein­ast að honum nú. Á sam­fé­lags­miðlum er honum úthúðað fyrir brott­vísun flótta­manna í nótt en það sem verra er fyrir hann, þá er sumir Sjálf­stæð­is­menn einnig ósáttir við hann. Þar á meðal er Unnur Berglind Frið­riks­dóttir, for­maður Sjálf­stæð­is­fé­lags­ins í Kópavogi, en hún segir hann hafa hótað sér.

Hér fyrir neðan má lesa yfir­lýs­ingu hans.

Í til­efni af fréttum sem hafa birst í dag um aðkomu mína að vali á lands­fund­ar­full­trúum í Kópavogi vil ég taka eft­ir­far­andi fram:

Allt þetta mál snýst um 4. tölul. 9. gr í lögum Sjálf­stæð­is­flokks­ins en þar segir m.a.:

„Kosning lands­fund­ar­full­trúa skal ávallt fara fram á almennum full­trúa­ráðs- eða félags­fundum og skal kosn­ing­anna getið í fund­ar­boði”.

Í því sveit­ar­fé­lagi sem ég bý, Kópavogi, var komin upp alvar­leg staða við val á lands­fund­ar­full­trúum. Í stað þess að sjálf­stæð­is­fé­lögin í Kópavogi hefðu haldið félags­fundi til þess að stað­festa val sitt á full­trúum, eins og ber að gera sam­kvæmt lögum flokks­ins, þá sam­þykkti stjórn full­trúa­ráðs­ins í Kópavogi listana. Að loknum stjórn­ar­fundi þess ágæta ráðs, en áður en list­inn var sendur til skrif­stofu Val­hallar, var þó fjölda aðila ein­hliða bætt á list­ann án þess að það hefði verið borið undir stjórn eða félags­fund. Ekki þarf að fjöl­yrða um lög­mæti þess­ara vinnu­bragða.

Í ljósi þess­ara vinnu­bragða var hætta á því að allur listi lands­fund­ar­full­trúa frá Kópavogi yrði úrskurð­aður ógildur af kjör­bréfa­nefnd lands­fundar. Sú nið­ur­staða hefði leitt til þess að það harð­dug­lega fólk sem myndar gras­rót­ina í flokks­starf­inu í Kópavogi hefði ekki fengið að taka þátt á Lands­fundi. Ég og margir aðrir í flokks­starf­inu í Kópavogi, þ.m.t. stjórn­ar­menn í sjálf­stæð­is­fé­lög­unum og full­trúa­ráð­inu – hvöttum því bæði for­mann Sjálf­stæð­is­fé­lags­ins og for­mann full­trúa­ráðs­ins í Kópavogi til að halda þar til bæra fundi til að afgreiða lög­mæta lista. Þannig væri hægt að tryggja breiða og lýð­ræð­is­lega aðkomu Kópa­vogs­búa að lands­fund­inum. Í mínum huga hefði það verið óhugs­an­legt að halda lands­fund án þess að eitt stærsta sveit­ar­fé­lag lands­ins hefði sína full­trúa á þar.

Kjör­bréfa­nefnd var skipuð lög­mönnum beggja fram­bjóð­enda og odda­manni, Brynjari Níels­syni, sem báðir fram­bjóð­endur sam­þykktu. Eftir fundi hennar með for­mönnum félag­anna í Kópavogi náð­ist nið­ur­staða i mál­inu.

Ég hafna því ein­dregið að hafa beitt nokkurn mann hót­unum í tengslum við fram­an­greint. Ég átti eitt stutt sím­tal við for­mann Sjálf­stæð­is­fé­lags­ins í Kópavogi sunnu­dag­inn 30. októ­ber þar sem ég benti henni á ólög­mæti list­anna. Ég lýsti áhyggjum mínum af því að ef ekki yrði brugð­ist við væri hætta á að fáir hefðu heim­ild til setu á lands­fundi fyrir hönd Kópavogs.

Mik­il­vægt er að nefna að stjórnir Týs félags ungra Sjálf­stæð­is­manna og Edda félag sjálf­stæð­iskvenna í Kópavogi boð­uðu til félags­funda, þegar þeim var vand­inn ljós, og gengu form­lega frá vali sinna full­trúa.

Lýð­ræð­is­leg vinnu­brögð eru horn­steinn öfl­ugs flokks­starfs og ég mun ætíð beita mér fyrir slíkum vinnu­brögðum. Að blanda saman stöðu minni sem dóms­mála­ráð­herra og því að ég sé í sím­tölum við flokks­menn að tala fyrir kjöri for­manns, sem ég styð, dæmir sig sjálft.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð