Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Gunnella leikkona er umhverfissinni: „Sjúklega mikið af grænmeti í plasti“

Gunnella leikkona er umhverfissinni: „Sjúklega mikið af grænmeti í plasti“
Gunnella Hólmars­dóttir

Neytandi vik­unnar, Gunnella Hólmars­dóttir, er gift tveggja barna móðir og hunda­eig­andi sem býr í Hafn­ar­firði. Hún er sjálf­stætt starf­andi leik­kona, leik­stjóri og hand­rits­höf­undur og kennir einnig yoga þegar tími gefst til. Hún er umhverf­is­sinni og heldur úti instagram reikn­ing sem heitir Hreinsum jörð­ina.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Þegar ég versla í mat­inn þá reyni ég að hugsa um nýt­ing­una á matnum. Ég versla sjaldnar og meira í einu og því mik­il­vægt að vita hvað maður þarf yfir vik­una. Með góðu plani finnst mér ég ná að spara mest og mat­ar­sóun verður mun minni.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Fyrir mér er mjög mik­il­vægt að end­ur­nýta sem mest á heim­il­inu. Gömul slitin hand­klæði hef ég til dæmis nýtt sem fjöl­nota bóm­ull. Tann­bursta, sýð ég alltaf og nýti áfram í ýmsar hrein­gern­ingar. Krukkur nota ég áfram undir mat og sultur. Ef það er eitt­hvað sem ég get ekki nýtt þá reyni ég að gefa það áfram til vina og fjöl­skyldu eða koma því á rétta staði.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Í fyrsta lagi hvaðan kemur varan? Hvar er hún fram­leidd og undir hvaða kring­um­stæðum? Ég reyni að kaupa frekar vand­aðar og helst umhverf­is­vænni vörur en ekki. Ég hugsa mikið um pakkn­ing­arnar og reyni að öllum mætti að forð­ast plast og illa sam­settar pakkn­ingar sem flækja flokkun.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Grænmeti í plasti. Því miður er sjúk­lega mikið af græn­meti í plasti og því erfitt að kom­ast hjá því. Skyndi­bita­matur er líka alltaf í plasti eða pakkn­ingum og vildi ég óska að fleiri staðir biðu upp á að maður kæmi með fjöl­nota ílát.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Umhverf­is­vernd skiptir mig öllu máli. Ef við stöndum ekki saman og erum stöðugt á varð­bergi fer illa fyrir mann­kyn­inu. Fyrir mér er dæmið aug­ljóst. Við verðum öll að gera eitt­hvað í okkar málum. Best finnst mér að hugsa, ég þarf ekki að gera allt ég þarf bara að gera eitt­hvað. Þannig reyni ég að minna mig á dag­lega að gera eitt­hvað sem er umhverf­inu mínu í hag. Til dæmis með því að vera með bíl­lausan dag, fara út að plokka eða minnka kjöt­neyslu.

Annað sem þú vilt taka fram?
Ef við viljum breyt­ingu, sama hver hún er. Þá verðum við sjálf að byrja breyt­ing­una hjá okkur.

Á instagram reikn­ingi mínum Hreinsum jörð­ina má sjá hvernig ég geri fal­lega gjafa­poka úr morg­un­korn­skössum, gömlum ónýtum bókum og öðru sem fellur til á heim­il­inu. Það er svo gaman að hugsa í lausnum og vera skap­andi. Það er líka frá­bær fjöl­skyldu skemmtun og ég mæli með að þið prófið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð