Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Frægir hnakkrífast um móðurmálið: „Þetta eru fárveikar forsendur!“

Frægir hnakkrífast um móðurmálið: „Þetta eru fárveikar forsendur!“

Frægir ríf­ast nú á sam­fé­lags­miðlum yfir kynja­notkun í íslenska tungu­mál­inu og sitt sýn­ist hverjum þegar kemur að breyt­ingum á tungu­mál­inu, sem sífellt hávær­ari krafa er um í sam­fé­lag­inu. Meðal þeirra sem segja skoð­una sína á mál­inu eru Egill Helgason sjón­varps­stjarna, Karen Kjart­ans­dóttir fjöl­miðla­kona, Eiríkur Rögn­valds­son, pró­fessor emeritus í íslenskri mál­fræði, og Jakob Bjarnar Grét­ar­son stjörnu­blaða­maður.

Ástæða rifr­ild­is­ins eru eft­ir­far­andi full­yrð­ing Hösk­uldar Þrá­ins­sonar, pró­fessor emeritus í íslensku nútíma­máli:

Það er ekki móð­ur­mál neins að segja öll vel­komin.“

Hösk­uldur segir jafn­framt að það sé ekki ein­falt verk að gera íslensk­una kyn­hlut­lausa og að vert sé að velta því fyrir sér hvort eitt­hvert gagn sé af því að venja sig á að segja „öll vel­komin“ ef karl­kynið er út um allt í tungu­mál­inu í almennri hlut­lausri merk­ingu.

„Þetta er ekki eins ein­falt og stundum er látið í veðri vaka, þetta er alls staðar í tungu­mál­inu, þessi notkun karl­kyns­ins,“ segir Hösk­uldur.

Karen er ekki hrifin af full­yrð­ingu Hösk­uldar og fann máli sínu til stuðn­ins gamlar blaða­greinar og aug­lýs­ingar þar sem „öll vel­komin“ kemur fyrir. „Pró­fessor í mál­fræði heldur því fram að það sé ekki móð­ur­mál neins að segja „öll vel­komin“. Forfeður okkar og for­mæður virð­ast þó ekki hafa átt í neinum vand­ræðum með það orða­lag. Alls ekki. Þessi íhalds­semi er ótta­leg nýj­ung,“ segir Karen.

Egill telur málið síður en svo ein­falt. „Það er svosem ein­falt að segja öll vel­komin. En að fara djúpt í málið með þessa breyt­ingu – það þarf mikla mál­verk­fræði til að það tak­ist. En kannski verður það hægt á ein­hverjum kyn­slóðum. Ekki einu sinni áköf­ustu tals­menn­irnir (sic!) ráða við þetta. En svo má auð­vitað segja að þetta komi gömlum körlum eins og mér ekki við – verðum hvort sem er dauðir,“ segir Egill.

Jakob Bjarnar virð­ist ekki mjög hrif­inn af þeirri hug­mynd að breyta mál­hefð­inni þannig að henti öllum kynjum. „Hösk­uldur vill vara við þeirri áráttu að lesa for­dóma í kyn orða. Mér finnst merki­legt hversu auð­velt þessum hópi aktí­vista, sem eru auð­vitað bara með­al­skussar í mál­fræði eins og gengur, veit­ist að hrifsa til sín kenni­valdið. Ein­fald­lega á alt­ari ein­hverra meintra for­dóma. Flestir virð­ast fá hland fyrir fugls­hjartað við það eitt að verða hugs­an­lega vændir um slíkt,“ segir Jakob.

Atli Steinn Guð­munds­son tekur í svip­aðan streng. „Ég skil ekki hvað þetta vefst fyrir fólki, ómark­aða kynið í íslensku, þar sem rætt er um óskil­greindan hóp beggja kynna, er karl­kyn. Það felur ekki í sér neitt kynja­mis­rétti, þetta er bara mál­fræði­leg regla, mætti eins vera kven­kyn. Hljómar hrylli­lega hall­æris­lega þegar stjórn­mála­menn (fyr­ir­gefðu, stjórn­mála­fólk) eru að slá um sig í ann­ars illa staf­settum blaða­greinum með þessu öll-rugli, þetta er ein­fald­lega röng mál­fræði,“ segir Atli ákveð­inn.

Þá tekur Egill aftur til máls og ítrekar þá skoðun sína að málið sé ekki ein­falt. „Það er nátt­úr­lega ekk­ert mál að segja „öll vel­komin“ en þegar við förum dýpra í tungu­málið er meiri vandi á höndum. Ég er ekki að and­mæla þessu – bara að benda á að þetta er ekki hægt – ja, nema þá kannski á mjög löngum tíma. En þá gæti líka verið að að áhug­inn sé horf­inn,“ bendir Egill á.

Eiríkur pró­fessor telur að ekki verði hægt að forð­ast þessa breyt­ingu á tungu­mál­inu. „En ég held að flestum sé ljóst að þetta er ekki ein­falt og ég held að engum detti í hug að þetta sé breyt­ing sem hægt sé eða skyn­sam­legt að keyra í gegn með ein­hverri stýr­ingu að ofan. Það er hins vegar ljóst að þetta er að breyt­ast og það býsna hratt. Vissu­lega getur það valdið alls konar ósam­ræmi – en það er nú ekki eins og tungu­málið sé full­kom­lega reglu­legt kerfi fyrir,“ segir Eiríkur.

Og Jakob á síð­asta orðið. „Það hljóta ein­hvers konar alhæf­ingar að búa að baki því að upp­lifun fólks sé með þeim hætti, vegna ein­hverra meintra for­dóma, að rétt sé að umturna heilu mál­kerfi og í raun rústa því. Og það sé rétt. Við erum komin býsna langt með að ráð­ast á sak­laus orð og útskúfa þeim úr mál­inu á for­sendum upp­lif­unar ein­hverra sem byggja á ein­hverjum ætl­uðum for­dómum. Þetta eru fár­veikar for­sendur,“ segir Jakob og bætir við:

„Þessar alhæf­ingar um heilu hópana og upp­lifun þeirra hljóta eðli máls sam­kvæmt að vera vafa­samar. Og upp­lifun hóps­ins, þar er engu hægt að slá föstu. Tökum idjó­tískt dæmi. 20 manna hópur Hafn­firð­inga stígur fram og heldur því fram að Hafn­ar­fjarð­ar­brand­arar séu niðr­andi, það sé þeirra upp­lifun og hóp­ur­inn fer fram á það, í nafni sinnar upp­lif­unar að þetta sé tekið út af sakra­ment­inu. Að Hafn­ar­fjarð­ar­brand­arar séu sagðir. Er þessi hópur þá, í nafni þess að vera ein­hvers konar þolendur, þar með komnir með kenni­valdið? Jafnvel þó á dag­inn komi að Hafn­firð­ingum upp til hópa þyki þessir brand­arar hreint ekk­ert sær­andi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð