Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Þórdís Sigurgeirsdóttir: „Komst í gegnum sorgina með því að lifa lífinu“

Þórdís Sigurgeirsdóttir: „Komst í gegnum sorgina með því að lifa lífinu“
Þórdís Sig­ur­geirs­dóttir

„Það er bara svo skemmti­legt og gef­andi að hræra í sál­ar­tetr­inu og búa til karakt­era; það er gaman að skapa karakt­era frá grunni. Það er það sem er skemmti­leg­ast. Það er líka gott að fá smáút­rás og vera með fólki. Ég er frekar félags­lynd og það gefur mér mikið að vera innan um fólk,“ segir Þórdís Sig­ur­geirs­dóttir sem hefur um ára­bil leikið með Leik­fé­lagi Kópavogs sem hefur að und­an­förnu sýnt leik­ritið Þjófar og lík.

Þórdís er spurð hvort henni finn­ist vera þægi­legt að fara aðeins út fyrir rammann og vera þá ein­hver önnur en hún er sjálf. „Já, það er það svo­lítið. Það er áskorun að vera ein­hver annar en maður er sjálfur. Kannski er þetta líka sýni­þörf að ein­hverju leyti. Maður stendur á svið­inu og sýnir sig. Það sama geri ég í vinn­unni sem far­ar­stjóri; ég segi þá frá.“

Þórdís segir að leik­list­ar­á­hug­inn hafi kviknað snemma. „Ég var í leik­list í skóla og hef alltaf öðru hvoru verið við­riðin leik­list. Ég horfði mikið á leikið efni í sjón­varp­inu – íslensk leik­rit og myndir – og það var kannski það sem heill­aði.“

Hana dreymdi um að verða leik­kona og reyndi hún nokkrum sinnum í kringum tví­tugs­ald­ur­inn að kom­ast inn í Leik­list­ar­skóla Íslands. „Ég komst ekki í gegnum síuna frekar en margir aðrir sem hafa reynt við þá próf­raun.“

Hún lék með Stúd­enta­leik­hús­inu í nokkur ár og svo byrj­aði hún að æfa með Leik­fé­lagi Kópavogs árið 2006.

Æfinga­tíma­bil eru yfir­leitt sex til átta vikur og er þá æft flest kvöld og um helgar.

„Við setjum alltaf upp all­vega eina upp­færslu á hverju ári. Við byrj­uðum að und­ir­búa Þjófa og lík í fyrra og svo byrj­uðum við að æfa í lok ágúst. Æfinga­tíma­bil eru yfir­leitt sex til átta vikur og er þá æft flest kvöld og um helgar. Það er algengt að sýn­ingar séu átta til tíu. Leik­fé­lagið á hús en þar sem sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa ekki verið að styðja fjár­hags­lega við bakið á áhuga­leik­fé­lögum eins og var gert áður þá höfum við þurft að grípa til þess ráðs að leigja húsið út til að geta rekið það. Og það hefur þar af leið­andi áhrif á hve mik­illi starf­semi við getum haldið úti sjálf.“

Úr sýn­ing­unni Þjófar og lík.

Kyrrðin

Hún er með BA-próf í dönsku og kenn­ara­rétt­indi og fyrir utan að dreyma um að verða leik­kona dreymdi hana um að verða leið­sögu­maður. Það hefur hún gert í ára­tug.

„Ég hef bara gaman af að ferð­ast og ég hef gaman af nátt­úr­unni. Og ég hef áhuga á að segja frá. Það er það sem hefur dregið mig í þetta.“

Hún er spurð um upp­á­halds­göngu­leið­ina. Upp­á­halds­göngu­svæðið. „Þau eru mörg en ætli ég nefni ekki helst Heng­ils­svæðið.“

Úti­vistin/hreyf­ingin, fal­leg nátt­úra/útsýnið og svo félags­skap­ur­inn/það að kynn­ast fólki.

Hvað er það besta við göng­urnar? Hvað er það skemmti­leg­asta? Og hvað gefa göng­urnar henni?

„Það er eins og með leik­list­ina: Að vera með fólki. Það er oft­ast það skemmti­leg­asta við göng­urnar. Maður telur yfir­leitt upp þrennt: Það er úti­vistin/hreyf­ingin, fal­leg nátt­úra/útsýnið og svo félags­skap­ur­inn/það að kynn­ast fólki. Það á að að njóta en ekki þjóta. Njóta þess að vera úti í fal­legri nátt­úru með öðru fólki. Það er kannski það sem gefur manni mest.“ Hún nefnir líka að kom­ast úr skarka­l­anum og fara út í nátt­úr­una svo sem upp á fjall. „Það er róandi. Það kannski auð­veldar fólki að tæma hug­ann að vera í svo­leiðis aðstæðum.“

Besta hljóðið er nátt­úr­lega kyrrðin.

Hvert er upp­á­halds­blóm Þórdísar? Jú, það er þjóð­ar­blómið sjálft. Holta­sól­eyin.

Hvað með upp­á­halds­hljóðið? „Besta hljóðið er nátt­úr­lega kyrrðin. Það er ákveðið hljóð. Svo er það fugla­söng­ur­inn. Hann kryddar kyrrð­ina alltaf. Kannski er fugla­söng­ur­inn upp­á­halds­hljóðið.“

Með félögum í Veseni og ver­gangi.

Sorgin

Þórdís er ekkja og tveggja barna móðir. Talið berst að sorg­inni. Dauðanum. Fyrir utan að hafa misst mann­inn sinn hefur hún misst föður sinn og bróður. Hún segir að það sé mis­jafnt hvernig fólk tekst á við sorg­ina.

„Þetta hljómar svo­lítið klént en lífið hefur áfram og mér hefur tek­ist að kom­ast í gegnum sorg­ina með því að lifa líf­inu eins og ég gerði áður og minn­ast við­kom­andi með hlýju. Þegar ég missti mann­inn minn þá leið einn og hálfur mán­uður þar til ég var farin að æfa farsa með leik­fé­lag­inu. Ég held að það hafi haft svo­lítið að segja að þetta var farsi. Það hjálp­aði mér mjög mikið að aðeins að flippa út og lifa líf­inu lif­andi eins og fólk segir.“

Þórdís seg­ist horfa á lífið með öðrum augum en áður.

„Maður veit aldrei hvenær tím­inn kemur. Þetta kennir manni kannski það að njóta lífs­ins á meðan það er. Maður veit aldrei sjálfur hvenær maður fer.“

Hvenær kallið kemur.

Það er aldrei of seint að byrja.

„Ef fólk langar til að gera eitt­hað þá á það að kýla á það. Ef ein­hverjum dettur í hug að fara í kór, í leik­fé­lag eða út að ganga þá er bara um að gera að drífa sig. Það er aldrei of seint að byrja.“

Á Bald­heiði á Kili 2018.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð