Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Bragi hefur bjargað þremur mannslífum: „Það er alltaf góð tilfinning“

Bragi hefur bjargað þremur mannslífum: „Það er alltaf góð tilfinning“
Bragi Ólafsson

Þú fórst í frægan stein­bíts­róður.

„Hann var athygl­is­verður,“ segi Bragi Ólafsson í við­tali við Reyni Trausta­son.

Það er mesta afla­verð­mæti sem línu­bátur hefur dregið á einum sól­ar­hring.

„Og sér­stak­lega á stein­bít. Við vorum að leggja af stað í róður aðfara­nótt mánu­dags,“ segir Bragi en þeir voru þrír frá Suð­ur­eyri. „Það var 250 tonna bátur frá Horna­firði sem var á loðnu út frá Vest­fjörðum og bil­aði út frá Kóp senni­lega. Var á reki.“ Það var kallað í nokkra frá þeim báti en ekk­ert gert og loks var kallað í Braga. „Mér fannst dálítið leið­in­legt að láta mann­inn vera þarna á reki,“ segir Bragi sem sagði við mann­inn að hann skyldi gera þetta ef hann fengi trygg­ing­arnar til að sam­þykkja að hann fengi sam­an­lagt afla­verð­mæti tveggja báta á svæð­inu. Og það var sam­þykkt. „Ég dró hann í land og var það tím­an­lega að ég gat laum­ast og lagt lín­una út á Kóp og var með átta tonn. Hinir voru með 24 tonn. Og leggið svo saman.“

Þeir héldu kannski að þeir fengju bara beitn­inga­hlut úr átta tonnum en þeir fengu aflatonn úr 54.

Beitn­inga­menn­irnir í landi voru ekk­ert kátir þegar þú komst.

„Nei, þeir voru óhressir þangað til ég sagði þeim að þessu yrði skipt eins og venju­legum afla­hlut. Það voru engir björg­un­ar­laun. Þeir héldu kannski að þeir fengju bara beitn­inga­hlut úr átta tonnum en þeir fengu aflatonn úr 54.“

Það var veisla þann mán­uð­inn.

„Þeir urðu mjög ánægðir.

Þetta er svo­lítið skrýtin aflasaga.“

14 ára á sjóinn

Bragi er frá Suð­ur­eyri og var á sjó í 44 ár. Frá 14 til 58 ára. Hann segir að það hafi ekk­ert annað verið í stöð­unni en að fara á sjó­inn. „Mér datt ekki í hug að fara að vinna í frysti­húsi. Ég gerði það samt þegar ég var 11 ára og 13 ára. 14 ára fór ég á sjó og fór aldrei í land eftir það þangað til ég hætti. Þá var ég á trillum á sumrin og í skól­anum á vet­urna. Á skaki og línu. Manni var kennt að vinna þarna. Það var ekk­ert gefið eftir.

Ég var alinn upp mikið hjá pabba sem var með stóru bát­ana. Freyj­urnar. Ólaf Frið­berts­son. Svo fór hann að kaupa trillur þegar við vorum að byrja að vaxa úr grasi til að hann hefði atvinnu fyrir strák­ana. Þannig byrj­aði þetta.“

Áhuga og láta ekki trufla þig. Þá gengur þetta.

Árin liðu og fór Bragi svo í Stýri­manna­skól­ann. Faðir hans lést árið 1972 og varð Bragi skip­stjóri á einum bát­anna.

„Það gekk rosa­lega vel á síld­inni fyrstu þrjú árin sem hún var og það bjarg­aði okkur að hann var mjög skuld­lít­ill bát­ur­inn þegar síld­ar­leys­is­árin komu og þessi erf­iðu ár, 1967-1969. Eftir það gekk þetta allt ágæt­lega.“

Jú, tím­inn leið og Bragi fór suður. „Mér bauðst til að taka við tog­ar­anum Júlí sem var 1000 tonna tog­ari í Hafn­ar­firði.“

Það er alvöru.

„Það er alvöru og þá byrj­aði mín alvöru­tog­ara­mennska.“

Bragi er spurður hvað menn þurfi að hafa sem sækja sjó­inn. „Áhuga og láta ekki trufla þig. Þá gengur þetta.“

Sjúkrakassi í björgunargjöf

Bragi hefur bjarg­aði fólki frá drukknun. Oftar en einu sinni.

„Ég hef bjargað tveimur strákum úr höfn­inni á Suð­ur­eyri og einum til við­bótar úr sund­laug á Mallorca. Það er alltaf góð til­finn­ing af því að ég veit að í tveimur til­fellum hefði þetta ekki endað vel ef ég hefði ekki verið á staðnum.

Í fyrsta skiptið var verið að byggja höfn­ina á Suð­ur­eyri og voru gröfur að grafa langt niður í sjó­inn. Fimm til sjö ára krakkar voru að leika sér og athuga hvað þeir gætu hlaupið nálægt kant­inum. Ég var með trill­una að botn­þrífa og var einn þarna og fylgd­ist með krökk­unum. Það end­aði með því eins og við var að búast – einn fór niður. Og krakk­arnir hlupu allir í burtu. Hann var kom­inn þrjá til fjóra metra og ég náði honum upp,“ segir Bragi en bát­ur­inn var um 10 metra frá. „Ég stakk mér á eftir honum og náði honum upp. Þetta var sonur lækn­is­ins og ég fékk veg­legan sjúkra­kassa í björg­un­ar­gjöf. Hann var alltaf um borð í trill­unum.“

Menn voru frammi á stefni og svo voru menn í landi en menn gláptu bara.

Bragi segir frá öðru björg­un­ara­freki. „Við vorum að koma úr róðri og leggja að bryggju og beitn­inga­menn­irnir voru komnir með balana og ég var kom­inn með stefnið þannig að það var á ská. Þá kom ungur drengur á hjóli, fór út í kant­inn, missti jafn­vægið og datt í sjó­inn milli skips og bryggju. Menn voru frammi á stefni og svo voru menn í landi en menn gláptu bara. Ég spark­aði af mér skónum, kúp­l­aði frá, stakk mér niður og náði í stráksa.“

Hann segir svo frá þriðju björg­un­inni.

„Þá var ég úti í sól­ar­löndum og sat um morgun á sund­laug­ar­kanti og fólk í kring á bekkjum. Þá tók ég eftir manni sem kom labbandi og stakk sér út í. Mér fannst vera merki­legt hvernig hann stakk sér. Hann fór ein­hvern veg­inn á bring­una og sökk svo niður og lét öllum illum látum. Ég skildi ekk­ert hvers lags æfingar þetta væru á mann­inum. Hann var lengi niðri. Svo kom hann upp á yfir­borðið í augna­blik. Ég heyrði eitt­hvað hljóð og svo sökk hann aftur. Þá sá ég að það þýddi ekk­ert annað en að ná í kall­inn.“

Og það gerði Bragi.

Hann var bara ósyndur.

Hann segir að hann hafi síðan fengið hjálp við að koma mann­inum upp á sund­laug­ar­kant­inn. „En það hafði eng­inn tekið eftir þessu. Hann hefði getað verið þarna áfram.“

Hvað kom fyrir?

„Hann var bara ósyndur. Við vorum að dæla upp úr honum og han var far­inn að geta staðið upp. Svo kom konan hans og talað um hvern fjand­ann hann hefði verið að gera þarna ósyndur og tók hann í burtu. Ég var alltaf að von­ast eftir að ég fengi bjór í verð­laun en ég sá hann aldrei meir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ