Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kristján Einar gerir upp fangelsisvistina á Spáni: „Mér var réttur hnífur og sagt að stinga mann“

Kristján Einar gerir upp fangelsisvistina á Spáni: „Mér var réttur hnífur og sagt að stinga mann“

„Það var að éta eða vera étinn. Til dæmis á fyrsta degi sat ég í mat­salnum með mat­ar­bakk­ann minn. Þá labb­aði til mín Spán­verji og byrj­aði að fikta í brauð­inu mínu. Ég þurfti að standa upp og lemja hann með bakk­anum til að sýna að ég yrði ekki beita strax. Þetta var bara gengi. Ég var útlend­ing­ur­inn. Það var reynt að drepa mig þarna inni,“ segir Kristján Einar Sig­ur­björns­son, sjó­maður og áhrifa­valdur, í ítar­legu við­tali við Sölva Tryggva­son en hann losn­aði fyrir nokkrum dögum úr fang­elsi á Spáni þar sem hann hafði setið í átta mán­uði. „Ég átt­aði mig á því að ef ég kæmi mér ekki í klíku þá hefði ég verið drep­inn þarna inni.“ Kristján Einar talar meðal ann­ars um nauðgun á 19 ára pilti og morði sem hann varð vitni að innan fang­els­is­veggj­anna.

Kristján Einar, eða Kleini eins og hann kall­ast, varð þjóð­þekktur þegar hann og söng­konan Svala Björg­vins tóku upp ást­ar­sam­band. Það var í mars sem Kristján Einar var hand­tek­inn á Spáni í kjöl­far slags­mála. „Ég var að labba með tveimur Norð­mönnum sem ég hafði kynnst um kvöldið og var búinn að þekkja þá í tvo til þrjá tíma. Þeir end­uðu í rifr­ildi við ein­hvern heima­mann og byrj­aði ein­hver ýtingur og tæt­ingur; engin slags­mál. Ég stökk inn í það og ýtti stráknum. Ekkert meira en það. Og hann kall­aði bara á lög­regl­una. Það var eins og lög­reglan hefði verið að bíða eftir þessu því hún var komin 10 sek­úndum seinna. Það var byrjað að tala við strák­inn og hann tal­aði ein­hverja spænsku og ég skildi ekki orð af því sem þeir voru að segja. Svo kom annar lög­reglu­maður yfir til mín og fór að spyrja mig á spænsku og ég tala ekki spænsku. Þá var ég settur upp við vegg og hand­járn­aður,“ segir Kristján Einar við Sölva Tryggva­son.

Það hefur komið fram að eng­inn hafi slasast alvar­lega.

„Þetta gerð­ist svo hratt,“ segir Kristján Einar. Hann segir að farið hafi verið með sig á lög­reglu­stöð. Fjórir dagar liðu.

Hann var síðar leiddur í dóms­sal og var með lög­fræð­ing sem tal­aði spænsku og seg­ist Kristján Einar ekki hafa skilið orð. „Svo þegar það var búið, þetta tók kannski 20 mín­útur, þá kom ein­hver túlkur inn, en lög­fræð­ing­ur­inn var far­inn, og var mér sagt að ég ætti að fara í fang­elsi.“

Hann segir að hann hafi ekki vitað fyrir hvað hann var settur inn. Hann hafi verið læstur inni í klefa og ekki fengið neinar upp­lýs­ingar. „Það eina sem ég hafði í hend­inni var vatns­glas, gaff­all og tann­krem. Ekki tann­bursti. Bara tann­krem.“

Svo var það sam­fé­lagið innan veggja fang­els­is­ins.

„Það var að éta eða vera étinn. Til dæmis á fyrsta degi sat ég í mat­salnum með mat­ar­bakk­ann minn. Þá labb­aði til mín Spán­verji og byrj­aði að fikta í brauð­inu mínu. Ég þurfti að standa upp og lemja hann með bakk­anum til að sýna að ég yrði ekki beita strax. Þetta var bara gengi. Ég var útlend­ing­ur­inn. Það var reynt að drepa mig þarna inni.“

Kristján Einar segir að hann hafi ekki mátt hringja fyrr en efir 10 til 12 daga og ein­ungis tala í 40 sek­úndur. „Ég hafði þessar 40 sek­úndur til að hringja í fjöl­skyld­una og segja að ég væri kom­inn í fang­elsi.“ Hann segir að fjöl­skylda sín hafi þurft að leita að sér þar sem þau vissu ekki hvar á Spáni hann var og hvað þá síður í hvaða fang­elsi. Móðir hans kom síðan út tveimur dögum eftir að hann hringdi. „Hún tók á leigu Airbnb-íbúð og var þarna alla átta mán­uð­ina. Fór ekki frá stráknum sínum. Það er ekki hægt að biðja um meira.“

Kristján Einar segir að það hafi svo tekið um mánuð að fá „síma­samn­ing“ þannig að þá fékk hann 15 sím­töl á viku og mátti tala í átta mín­útur í hvert skipti.

Hann er spurður hvort íslenska utan­rík­is­ráðu­neytið hafi ekk­ert gert. „Ég skipti þá engu máli. Það var ein mann­eskja sem hjálp­aði. Það var kona hjá íslenska sendi­ráð­inu á Spáni. Hún var sú eina sem tók þessu eins og mann­eskja.“

Dómur féll. Kristján Einar átti að sitja inni í sex ár.

Kristján Einar Sig­ur­björns­son

Verra en í bíómynd

Kristján Einar seg­ist hafa verið settur í ranga álmu þar sem han hafi verið fyrstu sex mán­uð­ina. „Ef þú ert erlendur þá áttu að vera settur í aðra álmu; þar eru Hol­lend­ingar, Norðmenn og allt þetta okkar fólk þannig séð. En þarna var ég settur með þeim alræmd­ustu.“ Hann segir að þarna hafi verið morð­ingjar og nauð­garar.

Svo voru það gengin. Klík­urnar. „Spán­verjar, Egyptar, Frakkar og Pól­verjar. Það voru klík­urnar. En þegar ég kom inn voru engir Pól­verjar komnir í þá álmu sem ég var í.“

Hann segir að þarna hafi verið um 200 manns. „Ég gat ekki tjáð mig við neinn. Það tal­aði ekki ein ein­asta sála þarna ensku. Þetta var bara ein­angrun,“ segir hann um tím­ann áður en Pól­verjarnir komu. „Það var stjóri í hverri klíku. Það er hann sem ákveður allt. Og þú skalt bara hlýða honum.“ Hann seg­ist ekki hafa getað verið í klíku með Spán­verj­unum og hann var ekki vel­kom­inn í frönsku klík­una.

Kristján Einar segir að ástandið hafi verið verra en í bíó­mynd. „Ég átt­aði mig á því strax á fyrsta degi að ég þyrfti að leggja mann­legu hlið­ina til hliðar. Ég þurfti bara að vera skepna til að lifa af. Á fyrstu dög­unum varð maður vitni að hlutum. Maður sá alveg hvernig þetta virk­aði. Ef þú sýndir veik­leika; það hafði gjald. Ekki eitt­hvað lítið gjald; ég hef horft á fullt af heim­ilda­myndum um fang­elsi sem kannski hjálp­aði mér að vita eitt­hvað. Það sem ég sá í myndum var titt­linga­skítur miðað við þetta. Það var hryll­ingur hvernig farið var með menn þarna inni.“ Hann segir að fanga­verð­irnir hafi tekið við mútum til að líta til hliðar. „Þeir sáu til dæmis um að smygla fíkni­efnum inn.“

Stunginn

Svo voru þrír Pól­verjar settir í sömu álmu. Og Kristján Einar fór í þá klíku.

„Ég þurfti að vinna verk­efni til að fá vernd hjá þeim.“

Og hvaða verk­efni var það?

„Má maður segja það?“

Ertu að tala um hræði­lega hluti?

„Já. Mér var réttur hnífur og mér var sagt að stinga mann ef ég vildi fá vernd hjá þeim. Það var það sem ég þurfti að gera.“

Sjálfur var Kristján Einar stung­inn.

„Ég var stung­inn í einu „rioti“. Það voru reyndar tvö „riot“ sem áttu sér stað en í því „rioti“ sem ég var stung­inn þá var ég kom­inn í klík­una með Pól­verj­unum. Þeir laum­uðu síma yfir til Spán­verj­anna og þeir voru með hann í einn eða tvo daga. Þegar þeir skil­uðu honum var kom­inn raki inn í skjá­inn og þá byrj­aði ein­hver tæt­ingur þar á milli. Svo voru þetta orðin hópslags­mál. Ef ég hefði ekki staðið með Pól­verj­unum þá hefðu þeir hent mér úr klíkunni. Ég þurfti að taka þátt og svo allt í einu fann ég tvö högg og átt­aði mig ekki alveg á því hvað þetta var. Svo sá ég blóð byrja að leka og þá átt­aði ég mig á að ég hafði verið stung­inn.“

Kristján Einar seg­ist ekki hafa fengið neina lækn­is­hjálp. „Þú bara felur þetta og harkar þetta af þér. Lætur eins og þetta hafi ekki gerst.“

Hvað með sýk­ing­ar­hættu?

„Þeir voru að brugga og ég þurfti bara að kaupa það til að sótt­hreinsa sárin. Og ég fékk aldrei sýk­ingu. En þetta skilur eftir sig risaör.“

Kleini var stung­inn tví­vegis á Spáni, eins og sést.

Kristján Einar talar um annað atvik sem hann segir að hafi kom­ist næst því að vera drep­inn. „Ég veit ekki nákvæm­lega hvað var í gangi. Pól­verjarnir voru eitt­hvað að þræta við Frakkana og ég stóð aft­ast til­bú­inn í hvað sem var. Svo var lagður hnífur að háls­inum á mér og ætl­aði við­kom­andi að skera en einn af mínum vinum í pólsku klíkunni náði að grípa í hend­ina á mann­inum og rífa af honum hníf­inn og síðan stakk hann mann­inn sem hafði ætlað að aflífa mig á staðnum. Ég veit ekki af hverju.“

19 ára nauðgað

Kristán Einar varð vitni að mörgu innan fang­els­is­veggj­anna og nefnir hann tvö verstu dæmin. Hann segir að það hafi ekki verið tekið vel í það ef menn klög­uðu. „Þarna var 19 ára piltur, ég end­ur­tek 19 ára, sem klag­aði klík­una. Í kjöl­farið var hann rif­inn úr öllu og allir látnir koma til að horfa á þar sem honum var nauðgað. Það var verið að senda skila­boð til okkar allra um að ef við klög­uðum þá myndi þetta ger­ast.

Svo var það morðið sem ég varð vitni að. Menn voru að ríf­ast á kló­setti þar sem engar mynda­vélar voru og tók einn upp heima­til­bú­inn hníf og stakk hinn rétt fyrir neðan nafl­ann og risti hann allan upp.“ Kristján Einar segir að allir hafi hlaupið út og svo voru menn yfir­heyrðir. „Enginn sagði orð af því að ef ein­hver hefði sagt frá þá hefði það sama verið gert við við­kom­andi eins og gert var við þennan 19 ára strák. Maðurinn var drep­inn þarna og það létu allir eins og ekk­ert hefði gerst.“

Kristján Einar við­ur­kennir að hann hafi haldið að hann kæm­ist aldrei lif­andi út úr fang­els­inu. „Ég sagði í lok hvers ein­asta sím­tals við móður mína að ég elskaði hana. Ég vissi aldrei hvort þetta yrði síð­asta sam­talið eða ekki.“

Kristján Einar segir að menn hafi ekki leyfi til að sýna til­finn­ingar þarna inni. „Þú ert ekki mann­legur þarna inni. Þú ert bara skepna. Þarft að vera skepna. Til­finn­ingar voru ekki í boði. Það var ekki í boði að vera mann­legur.“

Ástandið breytt­ist eitt­hvað þegar Kristján Einar var eftir sex mán­uði færður yfir í álm­una sem hann segir að hann hafi upp­haf­lega átt að fara í. „Hún var slæm líka en titt­linga­skítur miðað við þá fyrri. Ég hafði eftir létt slags­mál verið settur inn með raðmorð­ingjum og nauðgurum.“

Hvað gerir maður eftir svona?

Kristján Einar var skyndi­lega sleppt úr fang­els­inu fyrir um viku. Og hann segir að hann hafi ekki fundið fyrir neinu. „Ég var búinn að loka á til­finn­ingar. Mér fannst ég ekk­ert vera fráls.“

Hann seg­ist ekki ennþá vera búinn að kveikja á mann­legu hlið­inni. „Ég þurfti bara að slökkva á henni. Ég veit ekki hvernig mér líður. Ég veit ekki hvernig mér á að líða. Ég veit ekki hvernig ég á að haga mér. Hvað gerir maður eftir svona? Þetta verður aldrei tekið til baka.“

Hann segir að hann verði að leita sér hjálpar. „Það er alltaf í hug­anum það sem ég sá og þurfti að gera. Það verður ekk­ert lagað. Þetta er skaði sem er kom­inn til að vera held ég.“

Hann seg­ist lítið geta sofið. Hann losn­aði fyrir tæpri viku og seg­ist í heild­ina hafa sofið um átta tíma. Hann talar um sama draum­inn: Að hann sé kom­inn aftur í fang­elsið. „Ég er hræddur við að fara að sofa. Ég er að dæla í mig svefn­töflum til að sofna og fá ró en þegar ég sofna þá er það alltaf sami draum­ur­inn.“

Kristján Einar seg­ist vera búinn að vera á fullu síðan hann kom til lands­ins. „Ég þarf að kaupa íbúð og bíl. Það er allt á fullu. Ég er reyndar með svaka­legt ADHD. Það sem hefði átt að gera þegar ég kom hingað var að leggja mig beint inn á geð­deild.“

Viðtalið er í heild sinni í  podcasti Söðva Tryggva­sonar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð