Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Paola Cardenas: „Allir hafa upplifað kvíða einhvern tímann á ævinni, jafnvel börn“

Paola Cardenas: „Allir hafa upplifað kvíða einhvern tímann á ævinni, jafnvel börn“
Paola Cardenas

Paola Cardenas er barna­sál­fræð­ingur, fjöl­skyldu­fræð­ingur og dokt­or­snemi í sál­fræði við HR og hún er auk þess for­maður inn­flyt­enda­ráðs. Hún hefur starfað í Barna­húsi sem og hjá Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja, Rauða krossi Íslands og á barna- og ung­linga­geð­deild Land­spít­al­ans.

Paola hefur í sam­vinnu við Soffíu Elínu Sig­urð­ar­dóttur, sem einnig er barna­sál­fræð­ingur, skrifað þrjár bækur. Í fyrra komu út bæk­urnar Súper Viðstödd sem er ætlað að kenna börnum um núvit­und og hug­ræna atferl­is­með­ferð og hin bókin var Súper Vitrænn sem á að kenna börnum hug­ræna atferl­is­með­ferð. Nýjasta bókin heitir Súper Vina­legur og fjallar um feim­inn dreng sem á svo­lítið erfitt með að kynn­ast nýjum krökkum og finnur fyrir kvíða. „Til­gangur bók­ar­innar er að kenna hvað er kvíði, hver eru algeng­ustu ein­kenni kvíða hjá börnum og svo aðferðir til þess að takast á við kvíða í félags­legum aðstæðum.“

Það er svo gott fyrir börn að vita að kvíði er eðli­leg til­finn­ing.

Paola segir allir upp­lifa kvíða og að kvíði sé eðli­leg til­finn­ing sem allir upp­lifa á ein­hverjum tíma­punkti í líf­inu. „Hann getur hjálpað og jafn­vel bjargað lífi okkar þegar við erum í hættu stödd. Vanda­málið er þegar kvíð­inn er lam­andi. Þegar fólk fer að upp­lifa kvíða stöðugt í sömu aðstæðum þá fer það að hræð­ast það meira og meira og getur þróað með sér fælni eins og félags­fælni. Það er svo gott fyrir börn að vita að kvíði er eðli­leg til­finn­ing og að það er gott að fara út úr þæg­inda­hringnum og prófa það sem þau eru hrædd við en það þarf stundum að hjálpa þeim að stíga fyrstu skrefin.“

Paola seg­ist hafa þurft að takast á við kvíða sem barn og fór henni að líða betur eftir að hún hitti sál­fræð­ing sem kenndi henni leiðir til að takast á við kvíða.

Í skól­anum var okkur kennt hvernig við ættum að bregð­ast við ef það kæmi sprengju­hótun.

Hún er frá Venezuela en ólst upp í nokkur ár í Kólumbíu, frá því hún var sex ára til 13 ára, þar sem faðir hennar, sem er verk­fræð­ingur, vann. „Það var svo mikið ofbeldi í Kólumbíu,“ segir hún og nefnir spreng­ingar í versl­un­ar­mið­stöðvum, þar sem hún fór stundum, og hún talar um myndir í dag­blöðum þar sem voru til dæmis myndir af mönnum sem höfðu verið afhöfð­aðir. „Besta vin­kona mín bjó ásamt fjöl­skyldu sinni í bygg­ingu þar sem banki var á jarð­hæð­inni og einn dag­inn varð spreng­ing í bank­anum og mamma vin­konu minnar missti fóstur í kjöl­farið. Í skól­anum var okkur kennt hvernig við ættum að bregð­ast við ef það kæmi sprengju­hótun en ég var í einka­skóla þar sem voru meðal ann­ars börn stjórn­mála­manna. Þetta var ofboðs­lega erfitt og þetta allt var ástæða fyrir því að fjöl­skyldan ákvað að flytja aftur til Venezuela. Ég var allltaf hrædd og ég upp­lifði kvíða, streitu og álag. Mér líður óþægi­lega bara með því að tala um þetta. Ég fann fyrir kvíða sem barn í Kólumbíu og þetta var stundum svo­lítið erfitt. Ég átti líka erfitt með að aðlag­ast nýjum aðstæðum og fór til sál­fræð­ings en fyrst var farið með mig til læknis af því að mér var alltaf illt í mag­anum og var flök­urt. Ég hélt það væri eitt­hvað að mér. En svo var þetta allt í hausnum á mér.“

Stuðningur vina mikilvægur

Árin liðu og Paola stund­aði sitt nám og fór síðan 17 ára sem skiptinemi til Banda­ríkj­ana þar sem hún kynnt­ist íslenskum stráki. Hún ákvað svo að koma til Íslands eftir skiptinema­árin og prófa að búa hér í tvö ár. Hún lauk stúd­ents­prófi frá Fjöl­brauta­skól­anum í Garðabæ og síðan fluttu hún til Boston þar sem hún stund­aði BSc nám í sál­fræði. Paola fluttu svo aftur til Íslands árið 2001 og lauk Cand.psych. nám í sál­fræði árið 2007.

Bak­grunnur þeirra er mjög ólíkur bak­grunni barna á Íslandi.

Paola vinnur sem barna­sál­fræð­ingur í Barna­húsi og við­ur­kennir að reynsla sín af kvíða á æsku­ár­unum hjálpi henni að skilja sjól­stæð­inga sína. „Ég tek til dæmis við­töl við börn sem sækja um alþjóð­lega vernd á Íslandi. Bak­grunnur þeirra er mjög ólíkur bak­grunni barna á Íslandi. Þau hafa upp­lifað ofboðs­lega erf­iða hluti þannig að þetta eru börn sem eru mjög ber­skjölduð og þurfa mikið utan­um­hald. Það er ekki nóg að þau fari inn í kerfið heldur þurfa þau líka auka­þjón­ustu að mínu mati. Það þarf að meta líðan þeirra og það þarf eitt­hvað pró­gramm að vera í gangi fyrir þau því ann­ars muna þau eiga erfitt með að aðagast og vera partur af sam­féag­inu.“

Paola er í dokt­ors­námi í HR og ein­blínir í rann­sókn sinni á börn og ung­menni sem sótt hafa um hæli á Íslandi. „Það sem hefur komið í ljós er að stuðn­ingur frá vinum er mjög mik­il­vægur fyrir líðan þeirra. Flest þeirra hafa upp­lifað áföll og þróað með sér ein­kenni þung­lyndis og áfallastreiturösk­unar. En stuðn­ingur frá vinum kemur í raun og veru í veg fyrir að þau þrói með sér áfallastreituröskun.“

Paola var fyrr á þessu ári kosin for­maður inn­flytj­enda­ráðs. „Það er til að vera ráð­herra til ráð­gjafar. Við vorum að aug­lýsa styrk – Þró­un­ar­sjóð inn­flytj­enda – en stofn­anir og sam­tök eru núna að sækja um og er umsókn­ar­frest­ur­inn 1. des­em­ber þannig að ég er spennt að fara að skoða allar umsókn­irnar. Áhersl­urnar á þessu ári er að hjálpa ung­mennum að aðlag­ast íslensku sam­fé­lagi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð