Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Helga Möller styður tengdason sinn: „Þessi fárveiki, siðblindi maður …“

Kærasti Elísabetar Ormslev, Sindri Þór Kárason segist undan­farið hafa fengið á sig ásakanir frá aðstand­endum Péturs Arnar Guðmunds­sonar söngvara sem oft er kallaður Pétur Jesús.

Í nýlegri færslu á Facebook segir Sindri Þór frá áreiti og ásökunum sem hann hefur orðið fyrir frá aðstand­endum Péturs Arnar en kærasta Sindra, Elísabet Ormslev söngkona og dóttir Helgu Möller söngkonu, steig fram fyrr á árinu og sagði frá áralöngu eltihrellis­tilburðum Péturs Arnar en þau áttu í ástar­sambandi þegar Elísabet var einungis 16 ára gömul en Pétur 38 ára. Að sögn Elísabetar tók hana tíu ár að losna algjör­lega undan sambandinu sem einkenndist af ofbeldi og umsátur. Að hennar sögn notfærði Pétur sér ungan aldur Elísabetar sem auðveldaði honum að ná á henni valdi. Síðan Elísabet opnaði sig um málið hefur Pétur Örn verið útskúfaður úr íslensku tónlistar­lífi og samfélagi en hann var rekinn úr hljómsveitunum Buff og Dúndur­fréttum og hætti á öllum samfélags­miðlum.

Sindri Þór skrifaði færslu á Facebook þar sem hann fer yfir stöðuna en Pétur Örn snéri til baka á Facebook þar sem hann kvartaði yfir ljótum skila­boðum sem honum barst. Segist Sindri hafa orðið fyrir áreiti og ásökunum frá fjölskyldu­meðlimum Péturs Arnar en þau saki hann um að vera „hið umrædda nettröll sem sendi þessi skilaboð til hans.“ Helga Möller, tengda­móðir Sindra kallar Pétur Örn siðblindan og fárveikan í athugasemd við færsluna. Færslan er hér fyrir neðan í heild sinni:

„Ég hef ekkert tjáð mig um þetta mál á samfélags­miðlum, nema auðvitað með lýstum stuðningi til konunnar minnar þegar þetta mál bar fyrst upp í febrúar á þessu ári.

Nú hafa ásökunum verið beint að mér frá hans nánasta fólki að ég sé hið umrædda nettröll sem sendi þessi skilaboð til hans.Eina sem þau hafa fyrir sér í þeim efnum er að ég er kærasti Elísabetar og ætli það henti þeim ekki að ég sé vondi kallinn (því það liti illa út fyrir Elísabetu?).Mér bárust skilaboð frá einum fjölskyldu­meðlimi núna í fyrri nótt kl 03:08, youtube hlekk á lagið “Ráðið” með Bergþóru Árna­dóttur. Fyrir þau sem ekki þekkja til þá fjallar lagið um sakfellingu saklaus manns.Standa þau þá í þeirri trú að hann hafi ekki átt í samráði við og tælt 16 ára barn? (hann byrjaði að reyna ná athygli hennar 15 ára n.b).Beitti hann hana ekki andlegu ofbeldi í fjölda ára? (hún hefur sýnt mér ógrynni af skjáskotum).Var hann ekki liggjandi á glugganum okkar í febrúar síðastliðinn þegar við vorum varla búin að koma okkur fyrir í nýrri íbúð og hvergi skráð á þetta heimilis­fang? (Minni á að það er til myndband af manninum fyrir utan heimilið okkar).Í kjölfarið komu ásakanir um að ég stæði á bakvið skila­boðin sem honum bárust, sem ég neitaði og tjáði að mér þætti ósmekklegt.Ég hef lítinn áhuga á áreiti af þessu tagi og síst af öllu svona ásökunum. Svo skal ekki gleyma að umræddur maður er sérlegur sérfræðingur á “fake” aðgöngum til þess að fylgjast með konunni minni á samfélags­miðlum, eftir að hún blockaði hann á öllum miðlum. Ég hvet ykkur (aðstand­endur hans) að finna blóra­böggul annars staðar.Eitt skal vera á hreinu að ef ég ætti eitthvað vantalað við þennan fullorðna mann þá mun ég ekki fela mig á bakvið “leyni­aðgang”.“

Færslan vakti gríðar­lega athygli og hundruðir líkuðu við hana og fjölmargir skrifuðu stuðnings­skilaboð til Sindra Þórs. Ein af þeim var Helga Möller, móðir Elísabetar. Skrifaði hún: „Það var mikil gæfa að þú komst inn í líf dóttur minnar og fjöl­skyldunnar, Sindri minn.

Takk fyrir þinn stuðning og betri tengdason er ekki hægt að hugsa sér. Þessi fárveiki, siðblindi maður og fjöl­skylda hans, fær ekki tækifæri til að troða sér inn í hjörtun okkar en það væri óskandi að hans nánustu myndu aðstoða hann að leita sér hjálpar til að verða að betri manni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis