Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Brynjar um borgina: „Meirihlutinn í borginni hagar sér eins og átfíkill á hlaðborði“

Brynjar um borgina: „Meirihlutinn í borginni hagar sér eins og átfíkill á hlaðborði“
Brynjar Níelsson.

Brynjar Níelsson lætur gamm­inn geysa varð­andi rekstur Reykja­vík­ur­borgar, og segir:

„Nú eru menn loks­ins að átta sig á að óráðsía hefur verið lengi í rekstri borg­ar­innar. Borg­ar­búar munu finna veru­lega fyrir því næstu árin, því óráðsía er stund­ar­gaman og jafnan hluti af lýð­skrumi og kemur alltaf í bakið á okkur á end­anum,“ segir ákveð­inn Brynjar pg bætir við:

„Gömlu R lista flokk­arnir hafa verið svo upp­teknir af því að halda Sjálf­stæð­is­flokknum frá stjórn borg­ar­innar að þeim hefur tek­ist að finna nýjar hækjur eftir hverjar kosn­ingar til að halda völdum og taka þátt í þessu stund­ar­gamni. Það verður að telj­ast tals­vert afrek að geta safnað skuldum á sama tíma og tekjur hafi auk­ist til muna. Og ekki er það síður afrek að auka útgjöld veru­lega án þess að nokkur verði var við betri þjón­ustu eða aukin gæði. Frekar að þessi auknu útgjöld fari í það að gera borg­ar­búum erf­ið­ara fyrir og skapa leið­indi. Ekki ólíkir RÚV að þessu leyti.“

Hann segir að „stjórn­mála­mönnum mörgum virð­ist fyr­ir­munað að standa í lapp­irnar þegar kemur að útgjalda­kröfum. Síðast gerð­ist það með afger­andi hætti þegar fjár­mála­ráð­herra og meiri­hluti þings­ins ákvað að stöðu­leika­fram­lagið frá slita­bú­unum færi í að greiða niður skuldir í stað þess að láta undan útgjalda­kröfum stjórn­ar­and­stöð­unnar. Meiri­hlut­inn í borg­inni hagar sér eins og átfík­ill á hlað­borði. En óráðsía stjórn­mála­manna verður ekki löguð með maga­ermis­að­gerð.“

Brynjar vill að Reykja­vík­ur­borg taki almenni­lega til hjá sér:

„Í stað þess að taka á rekstr­inum og haga seglum eftir vindi eru skuldir auknar og skattar hækk­aðir sem og gjöld. Við viljum helst að kom­andi kyn­slóðir greiði fyrir gæði og vellíðan okkar. Held að ungt fólk ætti að stíga niður fæti og setja þessa stjórn­mála­menn í skammar­krók­inn. Með veru­legri verð­bólgu á mann­rétt­inda­hug­tak­inu hefur útgjalda­þörfin auk­ist. Nú eru það bein­línis mann­rétt­indi að hvaða útlend­ingur sem er eigi rétt á fram­færslu frá skatt­greið­endum og aðgang að almanna­trygg­ing­ar­kerf­inu svo lengi sem þeir kjósi og einnig þótt þeir séu ólög­lega í land­inu. Fatlaðir eigi rétt á þjón­ustu allan sól­ar­hring­inn heima hjá sér. Öll heil­brigð­is­þjón­usta og menntun á að vera gjald­frí, leik­skólar og matur í skólum ókeypis og svo fram­vegis.“

Segir að end­ingu:

„Topp­ur­inn í allri þess­ari vit­leysu er máls­höfðun Gráa hers­ins, sem telur það mann­rétt­indi að fá fulla greiðslu úr almanna­trygg­inga­kerf­inu óháð öðrum tekjum. Mér skilst að hann ætli að láta á það reyna hvort Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu sé ekki til­bú­inn að taka yfir fjár­veit­inga­valdið á Íslandi. Mér sýn­ist að öll þessi nútíma mann­rétt­inda­á­kvæði og hinir og þessir mann­rétt­inda­sátt­málar og við­aukar sem við skrifum undir í gríð og erg munu keyra vest­ræn lýð­ræð­is­ríki í þrot. Allavega safna þau skuldum sem aldrei fyrr. Ef ekki er gripið í taumana núna munum við enda í djúpri og langvar­andi kreppu. Þá munu öll mann­rétt­indi gleym­ast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð