Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Gunnar segist ekki gráðugur en biðst afsökunar á bréfinu

Gunnar segist ekki gráðugur en biðst afsökunar á bréfinu

Gunnar Þór Gíslason, for­maður stjórnar Ölmu leigu­fé­lags, segir það ekk­ert með græðgi að gera að félagið hafi hækkað leigu 65 ára konu um 75 þús­und krónur á mán­uði. Leigu­fé­lagið hefur verið gagn­rýnt harð­lega und­an­farið eftir að Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, vakti athygli á máli kon­unnar. Henni var til­kynnt skyndi­lega að leiga hennar myndi hækka úr 250 þús­und í 325 þús­und krónur á mán­uði um ára­mótin.

Gunnar Þór biðst afsök­unar í aðsendri grein sem birt­ist í Frétta­blað­inu í morgun hvernig kon­unni var til­kynnt um hækk­un­ina. Hann stendur þó fast á því að ekk­ert óeðli­legt sé við það að hækka leig­una. Leigu­verð kon­unnar hafi verið lágt vegna þess að samn­ingur hennar var stofn­aður í miðju COVID. Félagið hafi ein­ungis verið að leið­rétta það

Hér fyrir neðan má lesa pistil Gunnars í heild sinni.

Um allan heim ræðst fast­eigna­verð af bygg­ing­ar­kostn­aði ann­ars vegar og mark­aðs­verði hins vegar. Að koma sér upp þaki yfir höf­uðið er í raun ævi­starf hér á Íslandi fyrir flest fólk og leið­ang­ur­inn því miður mikil óvissu­ferð vegna verð­bólgu og vaxta­umhverfis. Nánast rús­sí­bana­reið. Enginn fettir samt fingur út í það að verð íbúð­ar­hús­næðis ráð­ist af mark­aðnum á hverjum tíma – og þar geta sveifl­urnar verið býsna miklar.

Sumum vex þessi óvissa í augum og kjósa frekar að vera á leigu­mark­aði. Aðrir velja leigu­mark­að­inn af því þeir vilja ekki festa sig niður og enn aðrir hafa ekki fjár­hags­legar aðstæður til þess að ráð­ast í íbúða­kaup og fara þannig til­neyddir á leigu­mark­að­inn. Á honum gilda eðli­lega sömu lög­mál og við fast­eigna­kaup. Leigu­verð hlýtur alltaf að fylgja kostn­aði og mark­aði. Rétt eins og kaup­verð íbúða. Þegar grannt er skoðað er annað óhugs­andi. Og hefur ekk­ert með græðgi að gera heldur eðli­lega fram­legð af því fjár­magni sem bundið er í rekstr­inum.

Íbúða­fé­lagið Alma rataði í fjöl­miðla í síð­ustu viku vegna 30% hækk­unar á húsa­leigu til eins við­skipta­vinar. Sumir, jafn­vel fjöl­miðlar, hafa talað um þessa hækkun í fleir­tölu og gefið þannig í skyn að Alma hafi hækkað húsa­leigu til allra við­skipta­vina sinna um 30%. Það er alrangt. Þær hækk­anir sem hluta af leigj­endum okkar var til­kynnt um að kæmu til fram­kvæmda í upp­hafi næsta árs voru að með­al­tali innan við tíu pró­sent. Þetta til­tekna til­felli kom upp vegna þess að verið var að upp­reikna og end­ur­nýja samn­ing sem upp­haf­lega var stofnað til þegar leigu­verð í mið­bænum var lágt í miðjum kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Sá veru­leiki er allt annar í dag.

Enda þótt breyt­ingin hafi verið full­kom­lega eðli­leg aðlögun að gjör­breyttu mark­aðs­verði í mið­borg­inni skal, eftir nán­ari skoðun, fús­lega við­ur­kennt að standa hefði mátt með nær­gætn­ari hætti að til­kynn­ing­unni um nýtt leigu­verð þegar hækkun var jafn mikil og raun bar vitni. Á því er beðist afsök­unar. Um leið vil ég upp­lýsa að við höfum nú þegar brugð­ist við vegna þess­ara mis­taka og umræð­unnar sem skap­að­ist í kjöl­farið. Við höfum end­ur­skoðað verk­ferla okkar þannig að við munum héðan í frá setja hækk­unum leigu­verðs við end­ur­nýjun samn­inga ákveðin mörk, bæta upp­lýs­inga­gjöf okkar og sam­skipti við við­skipta­vini og auka sveigj­an­leika þeirra leigu­taka okkar sem vilja leita á önnur mið.

Samfélag okkar hefur byggt upp sterkt félags­legt kerfi til þess að tryggja þeim húsa­skjól sem ekki ráða við ríkj­andi mark­aðs­að­stæður. Til staðar eru líka óhagn­að­ar­drifin leigu­fé­lög sem njóta stuðn­ings ríkis og sveit­ar­fé­laga og geta því boðið hús­næði á lægra verði en ella. Alma starfar hins vegar á frjálsum mark­aði og þarf að vera á sam­keppn­is­hæfu verði sam­hliða því að grund­valla rekstur sinn á eðli­legri afkomu. Það hefur reynst erf­iður línu­dans í því óstöðuga efna­hags­um­hverfi sem ríkt hefur á Íslandi um langt skeið.

Langstærsti hlut­inn af leigu­mark­aði íbúð­ar­hús­næðis á Íslandi er í höndum ein­stak­linga og verð­lagn­ing þeirra ræðst af hinu ein­falda lög­máli um fram­boð og eft­ir­spurn. Sér­stakar skyldur við leigu­taka eru oft­ast litlar sem engar og búsetu­réttur leigj­and­ans afar tak­mark­aður. Leigu­um­hverf­inu fylgir þannig mikil og stöðug óvissa. Alma býður hins vegar upp á leigu­samn­inga til allt að fimm ára á mark­aðs­kjörum. Það þýðir að leigu­takar geta gengið að því vísu að raun­verð leig­unnar hækkar ekki á þeim tíma.

Hlutverk fast­eigna­fé­laga á leigu­mark­aði er, og verður, að festa leigu­úr­ræðin í sessi sem öruggan val­kost þeirra sem af alls kyns ástæðum vilja ekki skuld­setja sig upp í rjáfur til þess að „eign­ast“ sitt eigið hús­næði. Það fólk á engu að síður að geta notið skjóls og skiln­ings, öryggis og áhyggju­leysis hvað heim­ili sitt varðar. Alma íbúða­fé­lag leggur sitt lóð á þær vog­ar­skálar af miklum metn­aði. Enn þá erum við ein­ungis með vel innan við 5% mark­aðs­hlut­deild á leigu­mark­aðnum en við höfum jafnt og þétt verið að fjölga leigu­í­búðum okkar og auka þannig fram­boð. Það er bjarg­föst sann­fær­ing mín að vönduð fast­eigna­fé­lög á leigu­mark­aði séu með fag­mennsku sinni dýr­mætur hluti af fram­tíð­ar­lausnum í hús­næð­is­málum þjóð­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ