Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Uppnám í vél Flugleiða til Minneapolis: Dómari úr Hafnarfirði trylltist og varð flugdólgur

Uppnám í vél Flugleiða til Minneapolis: Dómari úr Hafnarfirði trylltist og varð flugdólgur

Uppnám varð um borð í vél Flug­leiða, FI-653, sem var á leið til Minn­ea­polis þegar dóm­ari við hér­aðs­dóm Reykja­ness missti stjórn á sér og veitt­ist að flug­freyjum með ofbeldi. FBI hand­tók mann­inn við kom­una til Banda­ríkj­anna og var flug­dólg­ur­inn sendur með lög­reglu­fylgd heim til Íslands. DV ræddi við hann eftir heim­kom­una. Hann bað um nafn­leynd en gerði lítið úr atvikum.

flug­freyju­mar voru óþarf­lega við­kvæmar

„Eftir 11. sept­em­ber gætir mik­illar við­kvæmni í flugi. Það hafa ekki færri en fjórir Íslend­ingar verið sendir heim frá Banda­ríkj­unum vegna ein­hvers sem kom upp á í flug­inu. Mitt mál er því ekk­ert eins­dæmi,“ sagði hann stuttu eftir heim­kom­una.

Dómarinn, sem starf­aði í Hafn­ar­firði, sagð­ist þó hafa skiln­ing á aðgerðum Flug­leiða gagn­vart sér enda sé félagið að halda uppi virð­ingu á alþjóð­legum flug­leiðum.
„En hitt er annað mál að flug­freyju­mar voru óþarf­lega við­kvæmar. Ég var bara leið­in­legur fullur maður sem var settur í rangt sæti. Vegna per­sónu­legra mis­taka móðg­aði ég flug­freyju. Það er fullur Íslend­ingur í hverri flug­vél sem fer til útlanda á vegum Flug­leiða svo ég var engin und­an­tekn­ing,“ sagði dóm­ar­inn og kvaðst hafa haft þá venju um ára­bil að
„ferð­ast fullur“ og hingað til hafl hann sloppið við vand­ræði.

Atvikin urðu með þeim hætti að dóm­ar­inn, sem var á ferða­lagi í per­sónu­legum erinda­gjörðum, varð ósáttur vegna þess að hann fékk ekki að sitja við hlið eig­in­konu sinnar. Hann sat í öft­ustu röð, drakk yfir sig og varð grip­inn ölæði. Hann veitt­ist að fólki og sló meðal ann­ars tvær flug­freyjur og að auki þann þriðja úr áhöfn­inni. Aðra flug­freyj­una sló hann í andiit en hina i hand­legg. Árni G. Sig­urðs­son flug­stjóri sem þekkti mann­inn reyndi að róa flug­dólg­inn. Úr varð að lög­reglu­maður, sem var í hópi far­þega, var settur við aðra hlið hans og fílefldur far­þegi við hina hlið­ina.

FBI mætti á svæðið

Flug­dólg­ur­inn róað­ist og lof­aði bót og betrun þegar hálfur annar timi var eftir af flug­inu til Minn­ea­polis. Eftir aö vélin var lent rann aftur æði á hann og banda­ríska alrík­is­lög­reglan, FBI, kölluð til. Dómarinn drukkni var hand­tek­inn og leiddur í jámum i gegnum hóp ferða­fé­laga sinna og fang­els­aður. Hann svaf úr sér vímuna. Við yfir­heyrslu ytra var honum til­kynnt að hann yrði sendur heim til Íslands með næstu flug­vél. Að þessu sinni í gæslu þriggja FBI-manna. Flug­leiðir þurftu að leggja til fímm sæti til að tryggja heim­fór hans því
ásamt lög­reglu­mönn­unum þremur ákvað eig­in­konan að fylgja manni sínum heim í stað þess að halda áfram ferða­lagi sínu ein.

Maðurinn þurfti að greiða kostn­að­inn sem hlaust af upp­nám­inu og að auki fékk hann ekki að fara til Banda­ríkj­anna næstu árin. Guðjón Amgríms­son, upp­lýs­inga­full­trúi Flug­leiða, sagði að félagið liti þetta mál alvar­legum augum. Hann sagði að félagið myndi funda með flug­lið­unum úr umræddu flugi og að farið yfír málið í heild sinni.

Við fengum okkur bara nokkra öll­ara

Eftir því sem næst verður kom­ist er það tann­læknir sem fyrstur hlaut þá „nafn­bót“ að vera flug­dólgur. Það var um alda­mótin. Eftir það hefur orðið kom­ist inn í íslenska tungu og nokkrir ein­stak­lingar hafa fengið það við­ur­nefni. Tveimur árum áður en dóm­ar­inn gerð­ist dólgur komst tann­lækn­ir­inn Ómar Kon­ráðs­soní frétt­irnar þegar honum var vísað úr vél Flug­leiða á leið til Minn­ea­polis. Sá var á ferða­lagi með vin­konu sinni og hjónum frá Vest­manna­eyjum.  Ómari og vin­konu hans var vísað úr vél­inni ásamt mann­inum frá Eyjum. Þótti fram­koma þeirra og drykkja í flug­vél­inni vera öðrum til ama. Tann­lækn­ir­inn þvertók fyrir það að hafa gengið of langt.

„Þetta eru ekk­ert annað en ofsóknir af hálfu Flug­leiða. Við fengum okkur bara nokkra öll­ara í vél­inni eins og ger­ist og gengur og fyrir bragðið á að banna mér að fljúga um aldur og ævi með Flug­leiðum. Ég á þetta ekki skilið,“ sagði hann í sam­tali við DV á þeim tíma og vildi ekki kann­ast við meint ólæti. Að vísu hefði Vest­manna­ey­ing­ur­inn reykt eins og strompur í vél­inni og slegið flug­freyju en sjálfur hefði hann verið til friðs þrátt fyrir „nokkra öll­ara.“
Hann sagði vin­konu sína hafa þurft að hreyfa sig í vél­inni vegna
æða­þrengsla. „Það þoldu far­þeg­arnir ekki enda voru þetta aðal­lega vist­menn af
elli­heim­il­inu Grund sem hafa ama af flestu.“

Í við­tal­inu sagð­ist meintur flug­dólgur ætla að kæra Flug­leiðir því hann hefði orðið fyrir tölu­verðu fjár­hags­legu tjóni vegna atviks­ins. Töluverð rann­sókn áttiu sér stað vegna máls­ins og um þrjá­tíu manns voru
yfir­heyrðir; þar á meðal áhöfn og ein­hverjir far­þegar. Tann­lækn­ir­inn var settur í flug­bann og í mars árið á eftir sagði DV frá því að hann yrði að fara sjó­leið­ina í sum­ar­fríið og
hafði þá þegar bókað sér far með Norrænu til þess að geta heim­sótt
dóttur sína erlendis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð