Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Kolbrún Bergþórs spyr hvað verði á boðstólum á næstu Píkudögum: „Kannski píkusmakk?“

Kolbrún Bergþórs spyr hvað verði á boðstólum á næstu Píkudögum: „Kannski píkusmakk?“
Myndin er sam­sett.

Blaða­konan Kolbrún Berg­þórs­dóttir segir í grein á Vísi að „ein­hvern tím­ann var það yfir­lýst mark­mið Háskóla Íslands að verða einn af 100 bestu háskólum heims. Senni­lega er svo enn því háskóla­stofnun hlýtur ætíð að setja sér göfug mark­mið,“ og bætir þessu við:

„Hér skal þó ósagt látið hvort svo­kall­aðir Píku­dagar sem haldnir voru í háskól­anum fyrir nokkrum dögum séu þáttur í því háleita mark­miði þess­arar merku stofn­unar að kom­ast í hóp þeirra 100 bestu. Fram­takið hlýtur alla­vega að flokk­ast til akademískra skringi­leg­heita, þótt ekki sé lík­legt að háskóla­sam­fé­lagið hafi með­vitað stefnt að því.“

Kolbrún nefnir að „ekki skal dregið úr þeirri stað­reynd að karl­menn hafa stundum verið æði upp­teknir af typp­inu á sér. Sumir þeirra, dóna­karl­arnir alræmdu, hafa átt það til að senda kynn­ing­ar­myndir af typp­inu á sér til kvenna. Þeir lifa í þeim mis­skiln­ingi að þannig geti þeir unnið sig í álit meðan stað­reyndin er sú að karl­menn sem eru öllum stundum upp­teknir af typp­inu á sér þykja fremur hvim­leið fyr­ir­bæri. Í dag­legu tali eru þeir oft kall­aðir typpal­ingar.“

Bætir við:

„Á ýmsum tímum hafa svo verið reistar bygg­ingar af alls kyns tagi sem minna óneit­an­lega á reð­ur­tákn. Eitt slíkt, sem­ents­stromp­ur­inn vold­ugi, var nýlega fellt á Akranesi, og þótti mörgum það mik­ill óþarfi. Önnur standa þó enn í fullri reisn og þykja jafn­vel hin mestu augna­yndi. Þannig að typpin rata víða.“

Kolbrún segir að „ekki hefur þó enn frést af háskóla­ráð­stefnum með til­heyr­andi pall­borðsum­ræðum, mál­stofum og þátt­töku stjórn­mála­flokka þar sem áherslan er á þetta sér­staka líf­færi, typpið. Það myndi senni­lega heyr­ast hljóð úr horni yrði slík háskóla­ráð­stefna aug­lýst með alls kyns upp­á­komum eins og spurn­inga­keppnum um typpi, upp­lestri á runk­minn­ingum og veit­ingum á borð við typpa­kok­teila.“

Hún vill meina að „það þykir hins vegar hið mesta fram­fara­mál þegar konur efna til Píkudaga í Háskóla Íslands og ræða um heilsu píkunnar og segja sjálfs­fró­un­ar­sögur. Þetta er í fyrsta sinn sem Píku­dagar eru haldnir og af aug­lýs­ingum og fjöl­miðlaum­fjöllun mátti ráða að vonir stæðu til að þeir yrðu árlegur við­burður. Lands­menn hljóta að bíða spenntir eftir því hvað verður á boðstólum á næstu Píku­dögum. Kannski píkusmakk?“

Kolbrún er á því að „kven­frels­is­bar­áttan er komin upp á nýtt og fram­andi stig þegar ein­blínt er á píku­dýrkun sem svar við reð­ur­dýrkun karla.

Ætla mætti að kynin hafi sitt­hvað merki­legra við að iðja í háskólum en að ein­blína á kyn­færi sín og hefja þau upp á stall? Slíka upp­hafn­ingu getur fólk vissu­lega stundað af alefli heima hjá sér, og haft unun af, en háskóla­stofnun á ekki að vera must­eri slíkrar iðju.“

Kolbrún segir að end­ingu að „sitt­hvað er svo óunnið í jafn­rétt­is­bar­átt­unni, hér á landi eru til dæmis hópar lág­launa­kvenna sem engan veg­inn geta lifað af launum sínum. Í stað þess að fylkja sér um pík­una væri nær að slá skjald­borg um þessar lág­launa­konur og vinna að því að bæta kjör þeirra. Kvenna­bar­átta er mik­il­væg og merki­leg og á að fara fram í háskólum lands­ins, en það er sann­ar­lega ekki verið að gera henni hátt undir höfði með jafn skringi­legu og inni­halds­litlu fyr­ir­bæri og Píku­dögum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð