Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Maðurinn sem giftist dóttur eiginkonu sinnar og eignaðist með henni fimm börn

Maðurinn sem giftist dóttur eiginkonu sinnar og eignaðist með henni fimm börn
Lydía, Guð­mundur og Theresia um 1930. Ljós­mynd­ari: Óþekktur

Guð­mundur Ein­ars­son frá Miðdal í Mos­fells­sveit (1895-1963) var íslenskur lista­maður sem var allt í senn: teikn­ari, graf­ík­lista­maður, mál­ari, mynd­höggv­ari, ljós­mynd­ari, kvik­mynda­gerð­ar­maður, rit­höf­undur og fjall­göngu­maður. Hann var oft­ast kall­aður Guð­mundur frá Miðdal og tal­inn einn af merk­ustu lista­mönnum Íslands. Seinni kona Guð­mundar hét Lydíu Páls­dóttir og var hún dóttir fyrr­ver­andi eig­in­konu hans.

Guð­mundur Ein­ars­son frá Miðdal var tví­giftur. Árið 1926 flutt­ist hann frá Þýska­landi með Therese Zeitner, fyr­ir­sætu og bóhem til Íslands. Therese fædd­ist árið 1888 og var þar af leið­andi sjö árum eldri en Guð­mundur. Hún átti eina dóttur fyrir með efna­fræð­ingnum Paul Stern­berg í München árið 1911 en þau giftu sig aldrei. Þremur árum eftir komu hjón­anna til Íslands fengu þau Lydíu dóttur Theresu til sín en hún var þá nýbúin að ljúka námi í leir­muna­gerð.

Árið 1929 urðu miklar breyt­ingar í lífi Lydiu þegar hún flytur til móður sinnar og Guðmunds til hrjóstugrar eyju í norðri sem hún vissi lítið sem ekk­ert um. Lydía var ung stúlka þegar hún flutt­ist til Íslands til móður sinnar sem þá var gift Guðmundi frá Miðdal. Stuttu eftir komu sína til Íslands hófst ást­ar­sam­band þeirra Lydiu og Guð­mundar.

Guð­mundur, Lydía, Theresa, Auður, Egill og Ari Trausti í Lynghól, 1958.

Guð­mundur og Theresa skildu að lokum en hún bjó meira eða minna með Guðmundi, Lydiu og ömmu­börn­unum til dauða­dags. Guð­mundur og Lydia gift­ust síðar og áttu börnin; Yngva Örn, Auði Valdísi, Ara Trausta og Egil Má.

Lydía ötul og fær
Ást­ar­sam­band þeirra var umdeilt, en stóð til ævi­loka lista­manns­ins, það hneyksl­aði marga.

Lydia var mjög mik­il­væg per­sóna í lífi Guð­mundar. Hún var ötul og fær leir­kera­smíða­meist­ari List­vina­húss­ins, veiði­maður, ferða­fé­lagi, fjalla- og

Lydia situr við renni­bekk­inn. Hér sést vel hversu dökkur íslenski leir­inn var.

jöklafari og við heim­il­is­hald á stóru og umsvifa­miklu heim­ili ásamt Theresu móður sinni.

Árið 1932 eign­uð­ust Guð­mundur og Lydía fyrsta barnið sitt saman, Einar Steinólf, fáeinum vikum eftir að hann eign­að­ist Guðmund (Erró) með Soffíu Krist­ins­dóttur. Erró ólst ekki upp hjá Guðmundi heldur með móður sinni sem flutt­ist til Kirkju­bæj­ar­klaust­urs og gift­ist þar.

Guð­mundur var mennt­aður í mynd­list hér heima (1911–13 hjá Stefáni Eiríks­syni og 1916 hjá Ríkarði Jónssyni og Þórarni B. Þor­láks­syni), í Kaup­manna­höfn (1919–20) og loks í München (1920–25).

Viðhorf hans byggð­ust meðal ann­ars á klassíkri mynd­list, róm­an­tík, virð­ingu fyrir þjóð­legum gildum, áhuga á fram­andi þjóðum, and­legum hefðum og hlut­bundnum verkum en ekki abstrakt list þó svo að hann hafi hneigst í þá átt á síð­ari árum.

Við­horfin þóttu umdeild og mála­fylgni hans öflug; sér­stak­lega eftir að módern­ism­inn vann á hér­lendis upp úr síð­ari heims­styrj­öld.

Guð­mundur var umdeildur meðan hans naut við. Um skeið var hans sjaldan minnst á

Hópur starfs­fólks í verk­stæð­inu Funa

fræði­legum vett­vangi en und­an­far­inn ár hefur áhugi á verkum hans, fjöl­hæfni og afstöðu vaxið.

Eftir Guðmund liggja þús­undir verka; olíu­mál­verk, skúlp­t­úrar, gler­l­ist­ar­verk, vatns­lita­myndir, grafík og ker­amik (í þeim greinum var hann braut­ryðj­andi), teikn­ingar, hús­gögn sem hann hann­aði, ásamt skart­gripum, kopar- og silf­ur­munum, görðum, stökum húsum og veggskreyt­ingum. Enn fremur liggja eftir hann bækur, ljós­myndir og kvik­myndir.

Guð­mundur var einn frum­herja fjalla­mennsku á Íslandi, land­könn­uður, ötull nátt­úru­vernd­ar­maður, skóg­rækt­ar­maður, ferða­langur og ferða­fröm­uður, auk þess að vera meðal slyng­ari veiði­manna lands­ins.

Heimild.

Guð­mundur frá Miðdal. 2021, 02. nóv­em­ber.  Slóðin er: https://www.mithdalur.com/hver-var-hann

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð