Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Syneta sökk á jóladag: „Þá nótt við dóum, drottinn minn góður, drukknuðum bjarglausir einn og einn“

Syneta sökk á jóladag: „Þá nótt við dóum, drottinn minn góður, drukknuðum bjarglausir einn og einn“

Breska tank­skipið Syneta var á leið til Eski­fjarðar að kvöldi jóla­dags árið 1986.

Skipið var að koma frá Liverpool á Englandi og átti að sigla til Vest­manna­eyja. Það var hins vegar ákveðið að breyta áætlun skips­ins og sigla því fyrst til Eski­fjarðar. Þar átti skipið að taka loðnu­lýsi, sem svo yrði flutt til Rott­er­dam í Hollandi og Dunkirk í Frakk­landi. Það varð þó aldrei. Í kringum mið­nætti, aðfara­nótt ann­ars dags jóla, strand­aði Syneta við Skrúð, hamra­eyju í mynni Fáskrúðs­fjarðar.

Röng staðsetning

Um leið og Syneta sendi út neyð­ar­kall voru björg­un­ar­sveitir ræstar út. Haft var sam­band við alla fiski­báta og tog­ara sem voru í nágrenn­inu og lögðu fyrstu skip af stað strax á mið­nætti.

Áhöfn Synetu hafði haldið að skipið væri strandað við Seley og sent út þær upp­lýs­ingar í neyð­ar­kall­inu. Hólma­tindur SU-220 komst hins vegar að því klukkan tíu mín­útur fyrir eitt eftir mið­nætti, að skipið hefði strandað við Skrúð, ekki Seley.

„Síðustu sam­töl við Synetu fóru fram rétt fyrir klukkan 01:00 aðfara­nótt ann­ars dags jóla,“ segir á vef Eski­fjarðar.

Þegar Syneta strand­aði í mynni Fáskrúðs­fjarðar var veður afar slæmt; élja­gangur og mik­ill straumur. Björg­un­ar­bátar komust aldrei að skip­inu sökum veð­urs og ölduróts. Fiski­bát­ur­inn Þorri frá Fáskrúðs­firði var fyrsta björg­un­ar­skipið á vett­vang klukkan hálf tvö um nótt­ina, en allt í allt urðu skipin 12. Þeirra á meðal var varð­skipið Týr.

Í gegnum óveðrið og bylj­andi él taldi áhöfnin á Þorra sig hafa séð upp­blás­inn björg­un­ar­bát við hlið Synetu. Skip­verjarnir sögðu hann þó hafa verið horf­inn skömmu síðar.

Mynd/skjá­skot: Morg­un­blaðið/tíma­rit.is

Einn með lífsmarki

Öll áhöfn Synetu, 12 manns, fórst í slys­inu. Alls fund­ust lík 9 skip­verja. Reyndar fannst þriðji stýri­maður skips­ins með lífs­marki, en hann var dreg­inn um borð í Sæljónið SU-104. Skip­verj­inn var með­vit­und­ar­laus og hel­blár þegar hann fannst, skömmu eftir að lík fyrsta skip­verj­ans fannst klukkan 02:40.

Læknir var kall­aður til en hann komst ekki um borð í Sæljónið fyrr en á fjórða tím­anum, vegna vél­ar­bil­unar í skipi sem hann átti að vera um borð í. Þegar lækn­ir­inn kom um borð í Sæljónið var þriðji stýri­mað­ur­inn enn með lífs­marki, en lífg­un­ar­til­raunir báru ekki árangur og hann lést skömmu síðar.

Líkin 9 sem fund­ust voru í björg­un­ar­vestum en illa klædd að öðru leyti. Þykir það til marks um að atburða­rásin hafi verið hröð. Tvö lík runnu úr vest­unum og sukku þegar verið var að draga þau um borð í björg­un­ar­skip.

Sex áhafn­ar­með­lima voru breskir og sex voru frá Græn­höfða­eyjum.

Syneta. Mynd/skjá­skot: Eski­fjörður.is

Bréf í vasa stýrimannsins

Svona er sagt frá slys­inu í DV, mánu­dag­inn 29. des­em­ber 1986:

„Um klukkan 23:20 á jóladagskvöld sendu skip­verjar Synetu út neyð­ar­kall og skýrðu frá því að skipið hefði strandað við Seley í mynni Reyð­ar­fjarðar. Óskuðu þeir eftir aðstoð og voru björgun­ar­sveitir þegar ræstar út og fyrstu skipin lögðu af stað laust fyrir klukkan 24:00.

Laust fyrir klukkan 00:50 kom í ljós að Syneta hafði strandað við Skrúð en ekki við Seley þegar skip­verjum á Hólmatindi tókst að stefnu­mæla fjar­skipti skips­ins við land. Skömmu síðar, eða um fimm mínútum fyrir klukkan 01:00, skutu skip­verjar á Synetu upp neyð­ar­flaug en nokkru áður átti Nesradíó síðustu samtölin við skip­verja.

Áður hafði orðið að sam­komu­lagi á milli Nesradíós og skip­verja á Synetu að þeir myndu skjóta upp neyð­ar­flaug klukkan 01:00 til að auð­velda stað­setn­ingu skips­ins en það að flaug­inni var skotið upp fimm mínútum fyrr en ráðgert hafði verið var talin vísbend­ing um að skipið væri að leggj­ast á hlið­ina.“

Ekki er vitað með vissu um til­drög slyss­ins. Bréf fannst þó í vasa stýri­manns­ins, sem hafði verið skrifað á aðfanga­dag. Í bréf­inu tal­aði stýri­mað­ur­inn um bilun í skip­inu. Hann sagði skipið hafa verið gang­lítið og að ekki hafi verið hægt að sigla því nema á fimm mílna hraða. Auk þess væri sjálfs­stýr­ing þess í ólagi.

Það er þó óvíst hvort þessi bilun sem stýri­mað­ur­inn lýsti gæti hafa haft eitt­hvað með slysið að gera. „Lík­leg­asta ástæðan er sú að skip­stjór­inn hafi farið fjarð­ar­villt og talið sig vera tölu­vert norðar eða fyrir mynni Reyð­ar­fjarðar, þegar hann tók stefn­una inn á Fáskrúðs­fjörð og sigldi beint í strand við Skrúð,“ segir á vef Eski­fjarðar.

„Það kom fram í plöggum eins skip­verj­ans að á leið­inni til Íslands hefði orðið vél­ar­bilun í skip­inu. Mér finnst ekki ólík­legt að það og svo ókunn­ug­leiki hafi valdið þessu hörmu­lega slysi,“ sagði Grétar Rögn­vars­son, skip­stjóri á Sæljón­inu, í við­tali við Morg­un­blaðið sunnu­dag­inn 28. des­em­ber árið 1986.

„Annars er ómögu­legt að segja til um hvað í raun­inni gerð­ist. Þetta hefur gerzt mjög snöggt og skip­verjar ekki átt mikla von um björgun. Ef þyrla hefði verið nær­stödd held ég að hún hefði verið eina von þeirra.“

Um björg­un­ar­að­gerð­irnar sagði Grétar: „Við byrj­uðum strax að leita hlé­megin við eyna og í átt til okkar rak alls konar brak, tunnur og slíkt. Við náðum gúmbát frá skip­inu og var rekakk­erið úti, hvort sem það þýðir að menn hafi kom­ist í bát­inn eða ekki. Tveir menn fund­ust fljót­lega og var sá sem við tókum um borð, brezkur stýri­maður, með lífs­marki. Hann dó skömmu síðar.

Síðan leið tæp klukku­stund áður en fimm lík til við­bótar náð­ust og voru þau tekin um borð í Esk­firð­ing, Geisla og Sæljónið. Menn­irnir voru illa búnir og greini­legt að þeir hafa ekki haft mik­inn tíma til að bjarga sér.“

Líkum skip­verja Synetu var siglt til Eski­fjarðar, en land­helg­is­gæslu­flug­vélin TF-SYN sótti þau svo og flaug með þau til Reykja­víkur. Lík fjög­urra breskra skip­verja voru send heim til Bret­lands, en þrír áhafn­ar­með­limir frá Græn­höfða­eyjum voru jarð­settir í kirkju­garð­inum í Gufunesi.

Syneta liggur ennþá við Skrúð, á 45 metra dýpi.

Mynd/skjá­skot: Morg­un­blaðið/tíma­rit.is

Með bláa vör eftir öldunnar koss

Tón­list­ar­mað­ur­inn Bubbi Morthens samdi texta um slysið við lag Martins Hoffman, sem í með­förum Bubba heitir Syneta. Textinn dregur upp raunsanna og nístandi dap­ur­lega mynd af slys­inu, en sagan er sögð frá sjón­ar­horni skip­verj­anna.

Milli jóla og nýárs um nótt við komum

í níst­ings­kulda, slyddu og él.

Syneta hét skipið sem skreið við landið

með skaddað stýri og laskaða vél.

Við aust­ur­strönd­ina stóðum á dekki

störðum í sort­ans kólgu­ský.

Drunur brims­ins bár­ust um loftið

og bæn mín drukkn­aði ótt­anum í.

Innst í firð­inum sáum við ljósin lýsa

ljósin sem komu þorp­inu frá.

Um síðir þau hurfu í hríð­ina dökku

um hjörtu okkar flæddi lífs­ins þrá.

Þessa nótt skipið á skrúðnum steytti

skelf­ing og ótti tóku öll völd.

Í bát­ana komumst við kaldir og þreyttir

í kol­svarta myrkri beið aldan köld.

Þá nótt við dóum Drottinn minn góður

drukkn­uðum bjarglausir einn og einn.

Himinn og haf sýnd­ist saman renna

okkar síð­asta tak var brim­sorf­inn steinn.

Í þangi við fund­umst og fimm ennþá vantar

í fjör­unni aldan skil­aði oss.

Í hús á börum við bornir vorum

með bláa vör eftir öld­unnar koss.

Ef þú siglir um sumar vinur

og sérð við Skrúðinn brim­sorfin sker.

Viltu biðja þeim fyrir er fór­ust

þeim fimm sem aldrei skil­uðu sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð