Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Simmi lætur stjórnmálamenn fá það óþvegið: „Þegjandi meirihlutinn sem bara er látinn borga brúsann“

Simmi lætur stjórnmálamenn fá það óþvegið: „Þegjandi meirihlutinn sem bara er látinn borga brúsann“
Sigmar Vil­hjálms­son.

Athafna­mað­ur­inn Sigmar Vil­hjálms­son, eða betur þekktur sem Simmi Vill, deilir á Facebook pistli þar sem hann lætur íslenska stjórn­mála­menn heyra það. Hann segir að atvinnu­rek­endur lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja greiði hlut­falls­lega hærri gjöld en stóru fyr­ir­tækin. Enn fremur segir Simmi að aðgerðir Seðla­bank­ans kosti þessa sömu aðila millj­arða króna.

Hér fyrir neðan má lesa pistil Simma í heild sinni.

Nýtt ár og stjórn­málin skála.

Nú þegar stjórn­mála­menn eru búnir að hrósa hvor öðrum í Krydd­síld­inni og við búin að halda uppá ára­mótin þá tekur raun­veru­leik­inn við. Verð­hækk­anir og skatta­hækk­anir á milli­stétt­ina í þessu landi blasir við. Lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki halda áfram að fá á sig verð­hækk­anir og launa­hækk­anir. Síðan eru þessir sömu aðilar beðnir um að sína ráð­deild og hækka ekki verð til að ýta ekki undir verð­bólgu, ferð­ast ekki erlendis og fara sér hægt í að njóta erf­ið­is­ins.

Nú veit ég ekki hvort að stjórn­mála­menn séu svo úr takti við raun­veru­leik­ann að þeir átta sig ekki á því að ekki er hægt að taka á sig hækkað verð aðfanga og hærri launa­greiðslur án þess að hækka verð eða hvort að þeir hafi hrein­lega enga þekk­ingu á því hvernig megin þorri atvinnu­lífs­ins virkar eða hvað það þýðir að reka fyr­ir­tæki.

Ég hef bent á það í tölu­vert langan tíma að atvinnu­rek­endur lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja eru að greiða hlut­falls­lega hærri gjöld og skatta til rík­is­ins en stóru fyr­ir­tækin. Eru þing­menn ekki að sjá það, hafa þing­menn ekki þekk­ingu eða er þing­mönnum  bara sama um það?

Það má segja að atvinnu­lífið sé eins og umhverfi heim­il­anna. Það er lág­stétt sem nær ekki endum saman, það er hástétt sem skilar gríð­ar­legum hagn­aði og síðan er það milli­stéttin sem er látin bera uppi allan kostnað, skatta og gjöld.

Þegjandi meiri­hlut­inn sem bara er lát­inn borga brús­ann og hætta að láta sig dreyma um að gera sér glaðan dag, vinna bara meira.

Ég hef bent fjár­mála­ráð­herra (Bjarni Bene­dikts­son) á þá stað­reynd að með hverjum 1.000kr sem laun hækka í nýj­ustu launa­hækk­unum, hækka skatt­tekjur Ríkisins um að lág­marki 314,5 kr. Það þýðir að með þeim launa­hækk­unum sem eru nú að ganga í garð þá hækka tekjur Ríksins gríð­ar­lega, hund­uðir millj­arða. Hvert á að setja þessa pen­inga?

Aðgerðir Seðla­bank­inn kosta lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki milj­arða á millj­arða ofan, en skuldir fyr­ir­tækja í land­inu eru um 5.000 millj­arðar og hvert 1% kostar fyr­ir­tækin í land­inu 50 millj­arða.

Seðla­banka­stjóri hefur bent á að þetta er eina tækið sem Seðla­bank­inn hefur til að sporna við verð­bólgu, en hefur einnig bent á að Ríkið hefur fullt af mögu­leikum í stöð­unni. En það hefur nákvæm­lega ekk­ert komið frá Ríkinu til þess að sporna við stöðu fyr­ir­tækja í þessu umhverfi.

Ég hef bent á það að til þess að sporna gegn verð­bólgu þá væri til­valið að horfa á Trygg­inga­gjaldið, gera það þrepa­skipt eins og Fram­sókna­flokk­ur­inn (Sigurður Ingi Jóhanns­son) setti fram í kosn­inga­lof­orðum síð­ustu kosn­inga. Það myndi jafna leik­inn í atvinnu­líf­inu. Enda algjör­lega galið að fyr­ir­tæki sem eru að greiða hátt hlut­fall launa skuli líka þurfa að borga hærra hlut­fall trygg­inga­gjalds. En fyrir þá sem ekki vita, þá eru lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki með hlut­falls­lega mun hærra launa­hlut­fall en stór­fyr­ir­tækin hér á landi.

Almennir borg­arar eiga í dag­legum við­skiptum við lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki, ef að við getum hækkað hér laun án þess að hækka vöru­verð, þá spornum við gegn verð­bólgu og um leið staðið vörð um þau störf sem er að finna í litlum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum. Með því að hlut­falla trygg­inga­gjald, jafn­vel miða hér við veltu en ekki laun, þá myndi það ekki bara jafna stöðu fyr­ir­tækja á Íslandi, heldur myndi það gera fyr­ir­tækjum kleift að hækka hér laun án þess að það skili sér beint inní verð­lagið.

Já, vel á minnst, rúm­lega 70% allra laun­þega á íslandi starfa hjá litlum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum.

Núna verða stjórn­málin að taka haus­inn uppúr sand­inum, atvinnu­lífið þarf á athygli að halda og þá er ég ekki að tala um Hluta­bréfa­mark­að­inn eða stór fyr­ir­tækin.

99% allra fyr­ir­tækja hér á landi eru lítil eða með­al­stór og þau fá alltof litla athygli stjórn­mál­anna, svo ekki sé talað um athygli Samtök atvinnu­lífs­ins.

Það eru til þús­und leiðir að flá gölt, kom­inn tími á að velja fleiri en eina

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð