Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Var Borges besti Íslandsvinurinn?

Var Borges besti Íslandsvinurinn?
Borges og Bein­teins­son

Í dag erum við Íslend­ingar orðnir varnir því að land okkar sé vin­sæll áfanga­staður ferða­langa og að þjóðin búi við býsna góðan orð­s­týr. Íslend­ingar eru virtir á alþjóða­vett­vanig í listum og öðrum greinum. En á síð­ustu öld var ver­öldin frekar tóm­lát gagn­vart þess­ari eyju út í ball­ar­hafi en þó leynd­ust þar traustir vinir. Reyndar áttum við, á þessum vina­fáu tímum, aðdá­anda sem leit svo upp til þess­arar þjóðar að hann kom hingað til lands í, það sem hann kall­aði, píla­gríms­ferðir. Þetta var eng­inn annar en argent­ínski skál­djöf­ur­inn Jorge Luis Borges sem á engan sinn líkan í bók­mennta­sög­unni og er löngu kom­inn á bekk með mik­il­væg­ustu rit­höf­undum allra tíma. Hann lagði stund á íslensku­nám og það var einmitt í þeim kennslu­stundum sem hann og eig­in­kona hans, hinn jap­an­skætt­aði rit­höf­undur María Kodama, felldu hugi saman.

Jorge Luis Borges

Sagði hann frá því í við­tölum að hann hefði grátið af gleði þegar hann kom fyrst til lands­ins árið 1971. Það var ekki lands­lagið sem hreif hann en Borges var nán­ast alveg blindur á þessum árum. Hann komst hins­vegar við að heyra okkar ylhýru tungu, en íslensk­una kall­aði hann lat­ínu norð­urs­ins. Seinna sagði hann að það eitt að vera á þessu landi væri nóg til að fylla hann ham­ingju. „Þetta land er eins og fjar­sjóður sem heim­ur­inn á,“ sagði hann eitt sinn. Lýsti hann því líka yfir að hann dreymdi um að búa hér á landi.

Íslands­ást þessi hófst þegar hann var lít­ill drengur í les­her­berg­inu í föð­ur­húsum en þá réttir faðir hans honum Völs­unga­sögu. Hann heill­að­ist svo af sög­unni að allt frá þeirri stundu varð hann ein­lægur aðdá­andi íslenskra bók­mennta og sökkti hann sér í þau fræði. Orti hann síðar óð til Íslands sem er skýrt merki um þann ást­ar­hug sem hann bar til lands og þjóðar. Einnig orti hann um Snorra Sturlu­son, sem hann sagði að væri engin eft­ir­bátur Shakespe­ars, skrif­aði rit­gerðir um forn­bók­menntir okkar og hældi landi og þjóð á hvert reipi í ótal við­tölum. Þeir Íslend­ingar sem vilja síðan láta reyna á ágæti Borgesar geta kynnt sér bók­ina Suðrið en í henni eru margar af bestu sögum argent­ínska skálds­ins í snilld­ar­legri þýð­ingu Guðbergs Bergs­sonar.

Hann eign­að­ist marga vini hér á landi og reyndi að hafa upp á þeim þegar hann kom til lands­ins. Eitt sinn bar hins­vegar svo við að hann týndi tösku sinni þegar hann milli­lenti í Nýju Jórvík og þar með missti hann minn­is­bók sína með heim­il­is­föngum og síma­núm­erum íslensku vina sinna. Dó hann þó ekki ráða­laus og stigu þau hjón upp í leigu­bíl, þegar hingað var komið, og létu hann keyra sig um Borg­ar­fjörð. Síðan var tekið hús á alls­herj­ar­goð­anum Svein­birni Bein­teins­syni á Drag­hálsi. Þaðan var Borges leystur út með gjöfum og fékk meðal ann­ars snældu með kvæðum í flutn­ingi hús­bónd­ans.  

Jorge Luis Borges lést árið 1986, átta­tíu og sjö ára að aldri. Þó leið­toga­fundur Reagans og Gor­batsjevs hafi verið haldin hér það ár var Ísland and­stætt öllu því sem kalla mætti tísku. Það ár komu 113 þús­und erlendir ferða­menn til árs­ins en í venju­legu árferði nú á dögum eru þeir vel yfir tvær millj­ónir. Upplýst heims­fólk kann að hafa þekkt Vigdísi Finn­boga­dóttur og Halldór Laxness og fróð­ustu popp­unn­endur mundu eflaust eftir Mezzoforte. Íslenska lands­liðið í hand­bolta var að vinna sér sess meðal fremstu þjóða en ann­ars voru íþrótta­afrek á alþjóða­vett­vangi ekki tíð og íslensk nátt­úra var í hugum flestra sam­nefn­ari fyrir vont veður. En þrátt fyrir það áttum við þá Íslands­vin sem þráði þetta land okkar öðrum fremur. Það er að segja, við höfum átt fáa Íslands­vini jafn ein­læga og trausta og Jorge Luis Borges.

Hægt er að hlusta á nýjasta hlað­varps­þátt Jóns Sigurðar hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ