Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hundurinn sem hrapaði

Hundurinn sem hrapaði
Rakkinn Tinni. Mynd: Reynir Traustason

Það mátti heyra nið­ur­bælt skelf­ing­aróp frá göngu­fólk­inu sem horfði á hund­inn hrapa um 10 metra fram af hamri. Dýrið lenti á bak­inu með dynk og kastað­ist örlítið upp aftur eins og hálf­vind­laus bolti.

Rakkinn Tinni hefur fylgt mér í flestum ferðum mínum um fjöll á Íslandi. Laus­legur útreikn­ingur leiðir í ljós að hann hafi fylgt mér í 1.500 fjall­göngum. Tinni er af teg­und­inni American Cocker Spaniel sem þykir ekk­ert sér­lega gerð fyrir fjall­göngur. Þessi teg­und er frekar smá­vaxin og lágt undir kvið. Það er því fátt sem gefur til kynna að hann búi yfir getu á þessu sviði. En reynslan er önnur. Hann hefur farið allra sinna ferð um fjöll og að mestu án utan­að­kom­andi hjálpar. Und­an­tekn­ingin er lokakafl­inn upp á Þver­fells­horn Esjunnar. Þar er að finna áltröppu sem hjálpar göngu­mönnum að klöngr­ast upp ham­ar­inn. Þar þarf að lyfta undir Tinna.

Um miðja nótt vakn­aði ég við hviss­hljóð

Við félag­arnir höfum þvælst um allar koppa­grundir. Í lífi hunds­ins er það gjarnan hápunktur vik­unnar þegar við förum með Ferða­fé­lags­fólki í helg­ar­göngur. Þegar hann sér að ég tek til bak­pok­ann lifnar hann við og sest við úti­dyrnar og bíður. Dagana sem ég fer ekki á fjöll notar hann til að hvíl­ast og sofa. Svona hefur þetta verið síðan þessi átta ára rakki var fjög­urra mán­aða.

Rakkinn Tinni í slökun með bangsa.

Erf­ið­asta ferð hunds­ins var þegar við gengum á Krák, það fjall sem var hvað lengst úr alfara­leið. Krákur er um 25 kíló­metra frá Hvera­völlum, útvörður Arn­ar­vatns­heiðar í austri. Við félag­arnir úr göngu­klúbbnum Sófistum ákváðum að tjalda miðri leið að fjall­inu. Veður var ekki með besta móti. Það var súld og kalt. Vætan smaug í gegnum hlífð­ar­fötin. Tinni var orð­inn hund­blautur og í hvert skipti sem við stopp­uðum leit­aði hvolp­ur­inn skjóls. Við stopp­uðum stutt á hæsta tindi Kráks og héldum strax til baka og í tjald­búð­irnar. Ég gaf hund­inum kjöt­bita, fékk mér kakó­bolla, og skreið örþreyttur inn í tjaldið og hund­ur­inn á eftir mér. Til að ein­angra okkur frá jörðu hafði ég álteppi í botn­inn. Ég steinsofn­aði á auga­bragði. Um miðja nótt vakn­aði ég við hviss­hljóð og upp­götv­aði mér til ógleði að örþreyttur hund­ur­inn var að hafa þvag­lát. Það varð handa­gangur í öskj­unni þegar ég skutl­aði mér út úr tjald­inu og hóf hreinsi­starfið. Ég hafði ekki brjóst í mér til að skamma hvolp­inn fyrir að pissa undir eftir að þá þrekraun sem hann gekk í gegnum á tuga kíló­metra göngu.

Háski í Bakkaskarði

Tinni örmagna eftir göng­una á Krák.

Tinni komst einu sinni í lífs­háska. Þá vorum við að koma niður snar­bratt Bakka­skarð í Skálavík á heim­leið frá Galt­ar­vita ásamt hópi fólks frá Ferða­fé­lagi Íslands sem var að koma frá því að njóta þess að vera í vit­anum í Keflavík í algjörri ein­angrun við ysta haf. Frá brún liggur göngu­leiðin um snar­bratta skriðu. Leiðin klofnar neðar þar sem göngu­fólk getur valið milli þess að fara hinum megin við klett sem klýfur skrið­una. Sumir göngu­manna tóku þá ákvörðun að fara upp fyrir klett­inn en aðrir fikruðu sig með­fram honum. Það var þá sem Tinni missti áttir. Hann tók á sprett og ætl­aði að fylgja þeim sem tóku krók­inn en hætti við og anaði beint af augum, fram af klett­inum. Ég sá í sjón­hend­ingu hvar hund­ur­inn féll til jarðar. Mér sortn­aði fyrir augum. Þetta gat varla orðið annað en bani hans. Ég sá hvernig Tinni skall á jörð­inni á grastó neðan við klett­inn og kastað­ist aftur á loft. Mér virt­ist ein­sýnt að rakk­inn væri allur og hrað­aði mér til hans.

Í nokkrar sek­úndur lá hund­ur­inn hreyf­ing­ar­laus á bak­inu með lapp­irnar upp í loftið. Áhorf­endur voru sem stjarfir vegna örlaga dýrs­ins. Um það leyti sem ég kom að hund­inum sá ég hreyf­ingu á honum, mér til ofboðs­legs léttis. Svo velti hann sér með erf­ið­leikum á fæt­urna og stóð upp. Í smá­tíma var sem hann héldi ekki jafn­vægi og hann skjögraði. Ég sett­ist hjá honum og grand­skoð­aði hann. Hrygg­ur­inn var heill og hann stóð í fæt­urna. Við héldum áfram niður í Skálavík. Ég fylgd­ist grannt með dýr­inu. Hund­ur­inn bar ekki nein ein­kenni þess að fallið hefði skaðað hann. Tinni hafði kom­ist upp með að hrapa 10 metra. Þetta var ekk­ert nema krafta­verk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ