Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Guðrún Sóley hatar að henda mat og er meðvituð um umhverfisvernd: Vill ekki „vera neyslugrís“

Guðrún Sóley hatar að henda mat og er meðvituð um umhverfisvernd: Vill ekki „vera neyslugrís“
Guðrún Sóley Gests­dóttir. Mynd úr einka­safni.

Neytandi vik­unnar, Guðrún Sóley Gests­dóttir, er einn umsjón­ar­manna Kast­ljóss­ins á RÚV og fjallar þar helst um menn­ingu, við­burði og listir. Hún býr í Vest­ur­bænum með hund­inum Jakobínu og ver næstum öllum sínum frí­tíma utandyra – þá helst á fjöllum eða kajak.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Ég versla oftar og minna í einu – hrein­lega hata að henda mat svo ég vil frekar kaupa oftar og hafa þá nákvæm­ari til­finn­ingu fyrir hvað vantar og nýt­ist. Ef eitt­hvað hrá­efni er til heima í miklu magni legg ég við­leitni í að finna fjöl­breyttar upp­skriftir til að nýta það, hægt að búa til svo gjör­ó­líkar mál­tíðir með því að varí­era kryddum, sósum og með­læti. Og auð­vitað eld­un­ar­að­ferð. Svo mætti kalla það sparn­að­ar­að­ferð að vera vegan – oft er kjöt það dýrasta í mat­ar­körfu fólks auk nokk­urra ann­arra dýra­af­urða. Vita­skuld er allur gangur á því en minn mat­ar­kostn­aður lækk­aði alla­vega veru­lega eftir að ég varð vegan. 

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Ég end­ur­nýti eins og ég get – skola umbúðir og ílát og nota aftur, flokka pappa, plast og flöskur en þarf að gera betur með líf­rænan úrgang. Geymi þó alltaf lúna ban­ana í fyrsti fyrir nicecream og hýði og græn­met­is­af­ganga fyrir soð og súpur. Þá reyni ég að versla sífellt meira af not­uðum fötum, þá helst í Rauða­kross­búð­unum og Hringekj­unni. Ég læt gera við föt og jafn­vel breyta þeim á sauma­stofum – mæli með því, það er eins og að eign­ast nýja flík í hvert sinn! Eins hugsa ég vel um skó og auka­hluti og fer með þá til skó­smiðs frekar en að kaupa alltaf nýtt. Pakka gjöfum inn í dag­blaða­pappír og nýti fal­legar flöskur sem blóma­vasa og kerta­stjaka. 

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Með hverju ári eykst til­finn­ing mín fyrir því hvað pláss er verð­mætt og vil með öllum ráðum koma í veg fyrir að heim­ilið mitt (og til­vera almennt) fyllist af dóti og drasli. Ofhlaðin íbúð krefst auk þess meiri þrifa, skipu­lags og til­tektar og ef eitt­hvað er verð­mæt­ara en pláss þá er það tími – vil frekar eiga minna og spara þannig hvort tveggja; pláss og tíma. Mig langar rosa­lega að vera svona Búddam­únks-minima­listi með ein­lita staka hörflík í fata­skápnum, smá­vegis mis­osúpu í eld­hús­skápnum og lifa á loft­inu og þögn­inni en það er ennþá óra­langt í það land. En þið vitið, ég er að reyna.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Föð­ur­landi. Ég er gjör­sam­lega sjúk í föð­ur­lönd (innsta lag/stillongs), má hrein­lega ekki sjá föð­ur­land í verslun, þá er ég búin að kaupa það. Á ein­hver 11, 12 sett og hef sett sjálfa mig í strangt föð­ur­lands­kaupa­bann. Þetta er bara svo ynd­is­legur fatn­aður: hlýr, mjúkur og praktískur. Lífs­nauð­syn­legur á vet­urna og töff á sumrin. Virkar líka sem kósý­föt heima og í raun nátt­föt. Hér er ég að skrifa mig inn á að kaupa eitt sett í við­bót.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Sann­ar­lega. Ég er í stöðugri bar­áttu við að vera ekki fávís neyslu­grís – reyni að finna nýja og nýja mögu­leika til að skilja sem minnst eftir mig og til­einka mér lifn­að­ar­hætti sem menga hvorki né skaða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ