Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Vilhjálmur fjúkandi illur út í Stefán: „Ógeðfelldur blekkingarleikur sem forysta Eflingar ástundar“

Vilhjálmur fjúkandi illur út í Stefán: „Ógeðfelldur blekkingarleikur sem forysta Eflingar ástundar“
Vil­hjálmur Birg­is­son.

Verka­lýðs­for­kólf­ur­inn Vil­hjálmur Birg­is­son ritar langan pistil á Facebook-síðu sinni – þar sem meðal ann­ars þetta og margt annað kemur fram:

„Ég hef ítrekað spurt sjálfan mig að því á liðnum vikum hvort það sé þessi virði að vera að reyna að leið­rétta ítrek­aðar rang­færslur og vill­andi og afveiga­leið­andi athuga­semdir við kjara­samn­ing sem 18 aðild­ar­fé­lög Starfs­greina­sam­bands Íslands und­ir­rit­uðu 3. des­em­ber sl. Kjara­samn­ing sem í þokka­bót var sam­þykktur að með­al­tali með 86% greiddra atkvæða.“

Bætir við:

„Nið­ur­staða mín er ein­fald­lega sú að það er ekki hægt að sitja aðgerða­laus og horfa á allar þær rang­færslur sem for­svar­menn Eflingar með Stefán Ólafsson pró­fessor og fræði­mann í broddi fylk­ingar, setja fram. Rang­færslur sem byggja á því að rýra trú­verð­ug­leika 18 aðild­ar­fé­laga SGS vítt og breitt um landið. En förum yfir stað­reyndir og þær stór­kost­legu rang­færslur sem for­svars­menn Eflingar hafa haldið linnu­laust uppi.

Meðal ann­ars hefur því ítrekað verið haldið fram að nýgerður kjara­samn­ingur SGS kalli á kaup­mátt­ar­skerð­ingu og það þrátt fyrir að kaup­taxtar verka­fólks í þessum samn­ingi séu að hækka frá 10% upp í 13% eða að með­al­tali um 11,28% Það liggur fyrir að SGS, VR og iðn­að­ar­manna­fé­lögin unnu með verð­bólgu­spá Seðla­bank­ans í þessum við­ræðum sem gerir ráð fyrir tæp­lega 6% verð­bólgu sem þýðir að kaup­mátt­ar­aukn­ing yrði á kaup­töxtum SGS um 5,28% ef þessi verð­bólgu­spá gengur eftir.“

Vil­hjálmur nefnir að „í þætt­inum Sprengisandi í gær spurði ég Stefán Ólafsson pró­fessor og fræði­mann hví í ósköp­unum hann sé að ýja að því að kjara­samn­ingur SGS muni leiða til kaup­mátt­ar­skerð­ingar í ljósi þess að kjara­samn­ing­ur­inn sé að skila 11,28% með­al­tals­hækkun og verð­bólgu­spáin sé 6%. Svarið frá fræði­mann­inum var væg­ast sagt stór­und­ar­legt svo ekki sé fastar að orði kveðið en hann sagði orð­rétt:

„Hins vegar að taka verði rýrnun á kaup­mætti, sem hafi orðið á síð­ari hluta síð­asta árs, inn í mynd­ina.“

Hérna komum við að einum óheið­ar­leg­asta blekk­ing­ar­leik sem ég hef orðið vitni að, allt til að senda grafal­var­legar rang­færslur út til almenn­ings og afvega­leiða inni­hald kjara­samn­ings SGS.“

Vil­hjálmur segir að „það sem Stefán fræði­maður gerir ásamt for­ystu Eflingar er að taka hækkun á vísi­tölu neyslu­verðs frá 1. apríl 2022 til des­em­ber 2022 sem var hækkun upp á 4,8% og segja að þessa hækkun á vísi­tölu neyslu­verðs verði að draga frá 11,28% hækkun á kaup­töxtum sem SGS samdi um. En um hvað snýst þessi ógeð­felldi blekk­ing­ar­leikur fræði­manns­ins? Jú, hann sleppir 25.000 kr. launa­hækk­unum sem komu á kaup­taxta verka­fólks 1. jan­úar 2022 og 10.500 kr. hækkun vegna hag­vaxt­ar­auka sem kom til fram­kvæmda 1. apríl 2022. En þessar tvær launa­hækk­anir sam­tals að fjár­hæð 35.500 kr. skil­uðu 10,7% launa­hækkun. Forysta Eflingar með Stefán Ólafsson pró­fessor og fræði­mann í broddi fylk­ingar sleppir þess­ari 10,7% launa­hækkun sem kom til fram­kvæmda á fyrstu mán­uðum árs­ins 2022 og velur sér síðan að mæla hækkun á neyslu­vísi­töl­unni eftir að þessar launa­hækk­anir eru komnar til fram­kvæmda og segir að draga þurfi „kaup­mátt­arrýrnun“ á seinni hluta árs­ins frá!“

Vil­hjálmur seg­ist hafa „séð Samtök atvinnu­lífs­ins velja sér tíma­bil til að fá sem bestu nið­ur­stöðu máli sínu til stuðn­ings en skal fús­lega við­ur­kenna að svona grófan blekk­ing­ar­leik hef ég aldrei séð áður. Hvað skyldu t.d. full­trúar í kjara­töl­fræði­nefnd segja um svona blekk­inga­leik, að sleppa 10,7% launa­hækkun og byrja að mæla hækkun á neyslu­vísi­töl­unni um leið og launa­hækkun er komin til fram­kvæmda. Málið er að ætíð þegar verið er að skoða kaup­mátt­ar­aukn­ingu eða skerð­ingu kjara­samn­inga þá er miðað við þegar kjara­samn­ingar koma til fram­kvæmda og þar til þeir renna út. Ef kaup­mátt­ar­aukn­ing lægsta taxta verka­fólks í lífs­kjara­samn­ingum sem var frá jan­úar 2019 til októ­ber­loka 2022 er skoðuð þá hækk­aði lægsti taxti um 37,62% en neyslu­vísi­talan hækk­aði á sama tíma­bili um 20,5% Það þýðir að á samn­ings­tíma lífs­kjara­samn­ings­ins nam kaup­mátt­ar­aukn­ing 17 pró­sentu­stigum. Málið er að alltaf þegar samið er þá eru stétt­ar­fé­lögin að semja fram í tím­ann og á það eins við núna og eins og áður hefur komið fram þá er þessi skamm­tíma­samn­ingur að skila verka­fólki 11,28% launa­hækkun á kaup­töxtum í verð­bólgu­spá sem mið­ast við 6% en það mun ef sú spá gengur eftir skila 5,28% kaup­mátt­ar­aukn­ingu.“

Hann segir einnig að „þessi ógeð­felldi blekk­ing­ar­leikur sem for­ysta Eflingar ástundar til að koma vill­andi og röngum upp­lýs­ingum á fram­færi til að koma ógeð­felldu höggi á 18 aðild­ar­fé­lög SGS er afar óheið­ar­legur. Það er umhugs­un­ar­efni að fræði­maður eins og Stefán Ólafsson sem ætl­ast til þess að hann sé tek­inn alvar­lega skuli voga sér að ástunda svona óheið­ar­leg vinnu­brögð sem stand­ast ekki eina ein­ustu fræði­legu skoðun. Ég hef áður sagt að við erum að stíga þétt og jöfn skref í því að lag­færa kjör verka­fólks á hinum almenna vinnu­mark­aði og er þessi kjara­samn­ingur sem við und­ir­rit­uðum 3. des­em­ber einn áfangi í því enda fram­hald af lífs­kjara­samn­ingnum.“

Vil­hjálmur bendir á að „launa­taxtar verka­fólks eru að hækka frá 35.000 kr. upp í 52.000 kr. í þessum skamm­tíma­samn­ingi og laun stórra hópa eins og vakta­vinnu- og fisk­vinnslu­fólks eru að hækka um frá 50.000 upp í tæp­lega 70 þús­und krónur á mán­uði. Kjara­bar­áttu fyrir bættum kjörum verka­fólks lauk ekki í þessum kjara­samn­ingi né lýkur henni í kjara­samn­ingum fram­tíð­ar­innar enda er bar­átta fyrir bættum hag verka­fólks eilífð­ar­verk­efni.

Ég óska félags­fólki Eflingar svo sann­ar­lega vel­farn­aðar í sinni kjara­bar­áttu sem framundan er en mér sem for­manni SGS ber skylda til að upp­lýsa og verja þegar svona óheið­ar­legur blekk­ing­ar­leikur er ástund­aður. Það er alls ekki hægt að sitja undir hvaða óhróðri sem er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð