Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Sara furðar sig á fullyrðingum Skúla læknis: „Hún upplifði mjög mikla þjáningu þar til hún lést“

Sara furðar sig á fullyrðingum Skúla læknis: „Hún upplifði mjög mikla þjáningu þar til hún lést“
Sara Páls­dóttir Mynd: Aðsend

Eins og Mannlíf hefur fjallað um þá hefur lækn­ir­inn Skúli Tómas Gunn­laugs­son sætt lög­reglu­rann­sókn vegna ásak­ana um að hafa sett sjúk­linga sína í til­efn­is­lausar lífsloka­með­ferðir á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja.

Rannsókn máls­ins er við það að ljúka; sex málum verður vísað til hér­aðs­sak­sókn­ara.

Lækn­ir­inn Skúli tjáði sig í fyrsta sinn um málið eða málin í færslu á Facebook fyrir helgi; þar lýsti hann yfir sak­leysi sínu og sagði skýrslur dóm­kvaddra mats­manna stað­festa að sjúk­ling­arnir sex hefðu lát­ist af nátt­úru­legum orsökum.

Skúli Tómas Gunn­laugs­son hefur stöðu grun­aðs í mál­inu.

Sara Páls­dóttir er rétt­ar­gæslu­maður fjöl­skyldu konu sem lést 73 ára gömul á HSS, og segir Sara í sam­tali við ruv.is að sér hafi brugðið við að lesa færslu Skúla, því gögn sem hún hefur í höndum benda til ann­arrar nið­ur­stöðu:

„Í mats­gerð­inni kemur hvergi fram að sjúk­ling­ur­inn hafi lát­ist af nátt­úru­legum orsökum. Þvert á móti kemur fram í mats­gerð­inni að sjúk­lingur hafi, án þess að vera með lífsógn­andi sjúk­dóm, verið sett á lífsloka­með­ferð og í henni fólst að sjúk­lingur var settur í svo­kall­aða lyfja­fjötra. Það þýðir að lyfja­með­ferð er svo þung að sjúk­lingur getur hvorki tjáð sig, nærst eða hreyft sig með eðli­legum hætti,“ segir Sara.

Sara segir að konan hafi komið inn til hvíld­ar­legu á HSS; engar for­sendur hafi verið fyrir lífsloka­með­ferð­inni sem hafi staðið yfir sleitu­laust í ell­efu vikur; einnig hafi lyfja­gjöf ekki verið for­svar­an­leg:

„Hún hafi verið fram­kvæmd nán­ast allan þennan tíma, þessa 79 daga sem hún lá inni á HSS, með þeim afleið­ingum að hún nærð­ist ekki, fékk legu­sár sem var mjög erfitt að með­höndla og hafi upp­lifað mjög mikla þján­ingu þar til hún lést.“

Sara furðar sig á full­yrð­ingum lækn­is­ins á Facebook; segir að nið­ur­stöður mats­manna stað­festi það sem fram komi í svartri skýrslu emb­ættis lands­læknis:

„Þetta emb­ætti fer lögum sam­kvæmt með eft­ir­lits­hlut­verk með heil­brigð­is­starfs­fólki og fram­kvæmd heil­brigð­is­þjón­ustu á Íslandi. Þannig að það hefur alveg mjög þungt vægi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ