Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hjartalæknirinn sem gat ekki sofið

Hjartalæknirinn sem gat ekki sofið
Við Greifa­foss í Eyvind­ar­firði. Mynd: Reynir Traustason.

Í litlu tjald­borg­inni á Ófeigs­fjarð­ar­heiði færð­ist kyrrð öræf­anna smám saman yfir. Fátt rauf kyrrð­ina annað en brak í dýnum þegar þreytt göngu­fólkið velti sér til að finna rétta legu.En svo tóku svefn­hljóðin við og blönd­uð­ust kyrrð­inni. Takt­fastar hrotur bár­ust úr einu tjald­inu. Andvaka hjarta­skurð­læknir í næsta tjaldi. Skyndi­lega hættu hrot­urnar og lækn­inum kross­brá þrátt fyrir að vera vanur að glíma við líf og dauða. Hann hélt að nágranni hans í tjald­borg­inni væri kannski allur. En svo heyrð­ust hrot­urnar aftur. Hann róað­ist og festi svefn.

Með Fíflum

Ég var í göngu­ferð með Fíflunum, Félagi íslenskra fjalla­lækna, um heið­ina sem til stóð að sökkva í þágu risa­stórs upp­tök­u­lóns sem átti að verða grunn­ur­inn að virkjun við neð­an­verða Hvalá. Fyr­ir­liði hóps­ins var Tómas Guð­bjarts­son, hjarta­lækn­ir­inn hug­prúði. Við kynnt­umst í gegnum Ferða­fé­lag Íslands. Við vorum með allt á bak­inu. Sá ferða­máti gefur manni ein­staka sjálf­stæð­is­til­finn­ingu. Í bak­pok­anum var matur til nokk­urra daga og allt sem þarf til að leita skjóls fyrir vályndum veðrum vest­firsku heið­ar­innar.

Útsýni frá Ófeigs­fjarð­ar­heiði. Kálfatindar í fjarska.

Við lögðum upp frá Ófeigs­firði og tjöld­uðum á svæð­inu neðan við fyr­ir­hug­aða virkjun sem átti að tryggja birtu og yl og grjótnóga pen­inga fyrir eig­endur sína. Gjaldið var að ósnortnu víð­erni yrði sökkt undir risa­stórt lón. Vatns­miklar ár yrðu að sprænum og fossar ekki svipur hjá sjón. Þetta yrði í lagi vegna þess að skemmd­irnar sæj­ust ekki frá veg­inum, var haft eftir áhrifa­manni í hreppnum. Við sópum undir teppið. Einn eig­enda heið­ar­innar hafði sagt að þar væri engan gróður að finna, aðeins urð og grjót sem mætti hverfa.

Tjald­borgin við vatnið.

Eftir góðan næt­ur­svefn gengum við sem leið liggur upp með Hvalá í blíð­skap­ar­veðri. Ég var með 20 kíló á bak­inu en vand­ist fljót­lega þyngd­inni. Stíg­ur­inn fylgdi ánni framan af. Yfir­þyrm­andi feg­urð var við hvert fót­mál. Við okkur blasti hrika­legt gljúfrið við vatna­mót Rjúkanda og Hvalár. Við vissum að ófært var sein­asta legg­inn með fram ánni að foss­inum. Skyndi­lega blasti við und­ur­fagur, kraft­mik­ill, lágur foss. Það er ekki allt fengið með stærð­inni. Eftir að hafa notið návistar við nafn­lausa foss­inn héldum við upp í fjallið við norð­an­vert gljúfrið.

Grein­ar­höf­undur við foss­inn Drynj­anda.

Mesta spennan var að kom­ast í návígi við foss­inn Drynj­anda sem steyp­ist tugi metra fram af snar­brattri brún og niður í gljúfrið sem hefur orðið til í ald­anna rás. Aðkoman að foss­inum er ein­stök að því leyti, að foss­inn birt­ist ekki fyrr en göngu­mað­ur­inn er nán­ast kom­inn að honum. En þú gengur á hljóðið og heyrir takt­fastar drun­urnar löngu áður en nátt­úru­und­rið birt­ist í allri sinni dýrð.

Eftir að hafa notið návist­ar­innar við Drynj­anda var haldið áfram upp með Hvalá. Til­gang­ur­inn var að sjá og upp­lifa svæði sem hugs­an­lega var að hverfa. Veðrið lék við hóp­inn. Eftir að við komum upp á heið­ina tók við grýtt og gróð­ur­s­nautt land. Eftir nokkra leit ákváðum við að tjalda á mel við lítið stöðu­vatn, ofan við Dag­verð­ar­dal.

Hjarta­lækn­ir­inn Tómas og Dagný kona hans.

Yfir morg­un­verð­inum við speg­il­slétt vatnið á Ófeigs­fjarð­ar­heiði var óhljóðum næt­ur­innar lýst í léttum dúr. Und­ir­rit­aður var auð­vitað sá sem rauf þögn­ina í óbyggð­unum með þessum afger­andi hætti. Á sama tíma og mér sárn­aði nær­göngul lýs­ing hjarta­lækn­is­ins á hrotum mínum þótti mér vænt um að ein­hver bæri þá umhyggju fyrir mér að hrökkva við þegar lífs­mörkin dvín­uðu. Tómas hjarta­læknir hóf þegar grein­ingu vand­ans.Ég gerði honum grein fyrir því að árum saman hafði ég barist í gegnum dag­ana örþreyttur og þá gjarnan leyst málin með því að leggja mig um miðjan dag með til­heyr­andi skammar­til­finn­ingu. Smám saman hafði mið­deg­islúr orðið nauð­syn­legur. Tómas kvað upp úr um að lík­lega væri ég að glíma við kæfisvefn. Hann ráð­lagði svefn­rann­sókn til að úti­loka kæfisvefn.Eftir morg­un­verð við him­in­blátt vatnið tókum við tjöldin niður og pökk­uðum saman. Svo var haldið áleiðis í Eyvind­ar­fjörð. Við fylgdum Eyvind­ar­fjarð­ará eftir frá brúnum. Fjörð­ur­inn var inni í þeirri mynd að virkja við Hvalá. Til stóð að eitt þriggja uppi­stöðu­lóna Hval­ár­virkj­unar myndi inn­byrða Efra- og Neðra-Eyvind­ar­fjarð­ar­vatn. Áin yrði þar með ekki nema svipur hjá sjón á ákveðnum tímum árs­ins. Ítalskur greifi, Felix að nafni, hafði fyrir nokkrum árum keypt fjörð­inn á 25 millj­ónir króna eftir að hafa upp­lifað dýrð­ina á ferð sinni í blíð­viðri um Strandir. Hann hafði á orði að byggja þar hús og dvelja þar við hvert tæki­færi sem gæf­ist. Sagan segir að seinna hafi hann komið þar þegar kalt var og þoka. Eftir nokkra hrakn­inga komst hann suður í Ing­ólfs­fjörð og róm­an­tíkin við fjörð­inn var horfin. Seinna gaf hann frá sér vatns­rétt­indi svæð­is­ins í þágu Hval­ár­virkj­unar.

Stein­tröllin sem standa vörð um Ófeigs­fjörð og hálendið ofan hans.

Fegurðin var við hvert fót­mál á leið­inni niður með ánni. Foss­arnir birt­ust hver öðrum fal­legri. Þessar slóðir eru fáfarnar og foss­arnir hafa fæstir nöfn. Þegar sá stærsti blasti við okkur mátti heyra undr­un­aróp. Fólki þótti afleitt að foss­inn hefði ekk­ert nafn. Sú til­laga kom upp að nefna hann Greifa­foss eftir hinum hrif­næma Ítala sem var búinn að marka foss­inum þau örlög að verða að bunu. Skammt neðan við foss­inn er að finna eitt fal­leg­asta nátt­úru­lega tjald­stæði lands­ins.

Haldið heim­leiðis eftir ferð­ina um Ófeigs­fjarð­ar­heiði.

Hópurinn nálg­að­ist ós Eyvind­ar­fjarð­arár. Ákveðið hafði verið að Salómon Sig, bátur Strand­ferða, kæmi á til­settum tíma til að sækja hóp­inn. Göngubrú er yfir ána nokkru ofan við ósinn þar sem áin er gjarnan ill­fær neðra.Eftir nokkra bið birt­ist bát­ur­inn í fjarska. Skotið var út gúmmí­báti og hóp­ur­inn ferjaður um borð. Að baki var frá­bær ferð um nátt­úru sem er engu öðru lík. Við höfðum lært að feg­urðin liggur ekki síst í grjót­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ