Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hleypur 2000 kílómetra þrátt fyrir krabbamein og hjartaáfall: „Sigmundur þú ert bara ruglaður“

Hleypur 2000 kílómetra þrátt fyrir krabbamein og hjartaáfall: „Sigmundur þú ert bara ruglaður“
Sig­mundur Stef­áns­son. Mynd: Facebook síða Hjartaheilla.

„Lækn­arnir sögðu mér bara að gleyma mara­þoni,“ segir Sig­mundur Stef­áns­son en þann 2. febr­úar næst­kom­andi mun hann, ásamt hlaupa­hópnum Frískir Flóamenn efna til áheita­hlaups. Sig­mundur ætlar sér að hlaupa 70 km í til­efni af 70 ára afmæli sínu sem ber upp á þann sama dag. Hlaupið er til styrktar Hjarta­heillar og/eða Krabba­meins­fé­lagi Árnes­sýslu og er hóp­ur­inn nú að safna áheitum. Með þessu vilja Sig­mundur og Frískir Flóamenn vekja athygli á mik­il­vægi hreyf­ingar, sér­stak­lega þegar áföll og veik­indi hafa herjað á. Hópurinn vill sýna fram á það að hægt sé að við­halda þeim lífs­stíl sem hvert og eitt hefur til­einkað sér, þrátt fyrir mót­læti, en Sig­mundur hefur bæði fengið hjarta­á­fall og verið greindur með krabba­mein.

Sig­mundur er fæddur og upp­al­inn á Selfossi og er flestum Sel­fyss­ingum kunn­ugur. Hann greind­ist með syk­ur­sýki tvö uppúr fer­tugu og fór í fram­haldi af því að stunda reglu­lega hreyf­ingu. Sig­mundur byrj­aði þá að hlaupa og var fljótt far­inn að stunda það reglu­lega.  Þegar hann var 47 ára var hann langt kom­inn í und­ir­bún­ingi á sínu fyrsta mara­þoni, þá fær hann hjarta­á­fall á miðri æfingu. Það kom síðar í ljós að ein æð hafði stífl­ast og myndað drep í hjarta­vöðva. Heppnin var þó með honum, drepið í hjart­anu gekk til baka. Þegar hann útskrif­ast var honum sagt að gleyma öllum draumum um mara­þon en Sig­mundur var ekki á þeim bux­unum. Hann sagði konu sinni að ef hann næði heilsu muni hann halda áfram að hlaupa og lifa þeim lífs­stíl sem þau voru orðin vön. Tveimur árum seinna var Sigurður kom­inn í gott lík­am­legt form, hann hleypur sitt fyrsta mara­þon 50 ára. Nú á hann að baki tæp­lega 40 mara­þon og yfir 50 hálf­mara­þon en auk þess hefur hann tekið þátt í þremur járn­kalla­mótum.

Þegar hjarta­læknir Sig­mundar heyrði af ósköp­unum spurði hann gjarnan frétta. Lækninum leyst ekki alltaf á blik­una og fékk hlaupa­garp­ur­inn að heyra það. „Sig­mundur, þú ert bara rugl­aður.“

Með árunum breytt­ust við­horf lækn­anna. Afrek Sig­mundar voru gjarnan notuð sem dæmi þess að vel sé hægt að ná góðum árangri, þrátt fyrir lík­am­leg áföll. Þegar tveir ára­tugir voru liðnir frá hjarta­á­falli Sig­mundar fór hann að finna fyrir eymslum en eftir þrjár til­raunir á hjarta­þræð­ingu var hann sendur í opna hjarta­að­gerð. Ekki var það allt sem Sig­mundur þurfti að þola en á meðan leitað var lausnar á hjarta­vanda­málum hans, greind­ist hann með krabba­mein í blöðru­háls­kirtli. Hjarta­að­gerð, geisla­með­ferð og rúmu ári síðar hefur Sig­mundur náð heilsu á ný.

Eftir aðgerð­ina í júní ákvað hann gefa sér góðan tíma til að vera í róleg­heitum, synti og fór í göngu­ferðir.  Hann byrj­aði að hlaupa aftur um miðjan febr­úar í fyrra og síðan hefur hann hlaupið um 2000 kíló­metra.

Sjá nán­ari upp­lýs­ingar hér að neðan, fyrir þá sem vilja heita á Sigmund:

Sjá frek­ari umfjöllun um Sigmund á dfs.is hér:

https://www.dfs.is/…/hleypur-sjotiu-kilometra-a-sjotiu…/

Hægt er að heita á Sigmund til styrktar Hjarta­heill með því að smella hér: https://hjartaheill.is/…/wc-donation-styrkadi…/

Facebook síða Frískra Flóa­manna er hér:

https://www.facebook.com/groups/135968469810840/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð