Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Guðrún verður fyrir netníði eftir ósk um fjárhagsaðstoð: „Búið að taka mikið á mig og fjölskylduna“

Guðrún verður fyrir netníði eftir ósk um fjárhagsaðstoð: „Búið að taka mikið á mig og fjölskylduna“

Flestir lands­menn hafa fundið fyrir hækk­uðu verði neyslu­vöru, leigu og bens­íns. Fjöldi barna lifir undir fátækt­ar­mörkum og skortur er á úrræðum fyrir þennan hóp.

Guðrún Ósk er öryrki og ein­stæð móðir þriggja barna. Þegar seðlar voru af skornum skammti og allt annað brást, leit­aði hún á náðir sam­fé­lags­miðla. Hún setti færslu inn á Facebook þar sem hún óskaði eftir aðstoð. „Þetta var eina leiðin, sam­kvæmt kirkj­unni er ég of tekjuhá. Sér­stakar húsa­leigu­bætur í Reykja­nesbæ eru 4000 kall, það er varla fyrir einum poka í Bónus,“ sagði Guðrún í sam­tali við Mannlíf.

Nokkrir veittu Guðrúnu hjálp og náði hún endum saman út mán­uð­inn. Ekki voru allir til­búnir að láta frá sér pen­ing skilirð­is­laust og fékk hún þónokkur skila­boð þar sem menn buðu henni pen­ing fyrir kyn­lífs­þjón­ustu, ein­hverjir voru til­búnir að borga henni fyrir ást­ar­sam­band.

Fljótt fór Guðrún að sitja undir ásök­unum, bæði á Facebook og Twitter. „Ég er búin að fá alls­konar yfir mig. Ársgömul mynd sem tekin var í Sky Lagoon, af hverju ég ætti að geta farið í Sky Lagoon. Ég fékk þetta í þrí­tugs­af­mæl­is­gjöf. Ég má ekki ganga í neinu, ég er hrædd við að fara í Nike föt. Ég fékk Micheal Kors tösku í jóla­gjöf frá frænku minni, ég er hrædd að sjást með hana.“

Fyrir nokkrum dögum setti Guðrún inn færslu í hóp­inn Tenerife Tips á Facebook. Þar spyr hún ráða, hvar sé hægt að kaupa verkja­lyf fyrir börn og hvort versl­un­ina Primark sé að finna á Tenerife. Hún var þó fljót að taka fram í ummælum að hún væri ekki á leið í utan­lands­ferð heldur ætl­aði hún að fá kunn­ingja til að kaupa fyrir sig. Twitter not­endur tóku margir þátt í umræðum, þar sem skjá­skot var sett af færslu Guðrúnar, án þess þó að ummælin væru höfð með.

Arnar Arin­bjarn­ar­son er einn þeirra sem deildu færslu Guðrúnar en hann seg­ist hafa látið hana hafa pen­ing. Hann merkir þar annan mann sem styrkti Guðrúnu. „Við @ronniturbogonni erum aum­ingja­góðir og gáfum stúlku í neyð smá aur. Hún blokk­aði okkur í kjöl­farið. Við og aðrir sem sáu aumur á henni vorum að fjár­magna ferð hennar til Tenerife! Skil­grein­ingin á sið­blindu?,“ skrifar Arnar og bætir við, „Þessi kona er búin að rústa því að vel­viljað fólk hjálpi fólki í neyð. Hún er bara að hugsa um sjálfa sig og að fjár­magna eigin utan­lands­ferðir! Ég mun aldrei hjálpa fólki í „neyð“ aftur.“

Maðurinn sem merktur var við færsl­una, Aron Mímir, lét ekki á sínu standa. „Maður hefði betur lagt allt saman inn á píeta sam­tökin þegar allt kemur til alls, það er bara hrifsað 10k hér og þar og hent sér bara í fléttur á amer­ísku strönd­inni meðan ég vakna í frost­inu og skafa bíl­inn. Áfram gakk.“

Guðrún seg­ist ekki hafa lokað á menn­ina, eins og Arnar tók fram í færslu sinni, heldur hafi hún slökkt á Facebook til­kynn­ingum sem fylgja skila­boðum þeirra.

„Ég borg­aði öðrum þeirra í baka í dag. Ég er að reyna að fá hinn til að senda mér reikn­ings­núm­erið því ég vil bara borga þeim til baka, ég vil ekki að þeir geti notað þetta á mig. Þetta er búið að taka mjög mikið á mig og fjöl­skyldu mína,“ segir Guðrún. „Hann var voða passive aggressive, hann væri bara að hjálpa börn­unum mínum og að ég þyrfti ekki að borga þetta, ég sagði honum að ég vildi ekki sitja undir þess­ari net­níð.“

Guðrún seg­ist vita til þess að fleiri konur hafi setið undir ásök­unum frá sömu mönnum. „Það er önnur kona í nákvæm­lega sömu stöðu og ég og hefur orðið fyrir barð­inu á þeim.“

Guðrún er þó bjart­sýn á fram­haldið, hún er í námi og stefnir á að verða vinnu­fær á ný.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð