Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heiða Rún er til fyrirmyndar: „Ótrúlega margt hægt að gera til að minnka kolefnissporið okkar“

Heiða Rún er til fyrirmyndar: „Ótrúlega margt hægt að gera til að minnka kolefnissporið okkar“
Heiða Rún Sveins­dóttir. Mynd úr einka­safni.

Neytandi vik­unnar, Heiða Rún Sveins­dóttir, býr á Selfossi ásamt Martin eig­in­manni sínum og tán­ing­unum, Gabríel Mána og Bryndísi Lilju. Einnig býr á heim­il­inu mini púðlan hún Ronja. Heiða Rún starfar sem fjöl­skyldu­fræð­ingur og ráð­gjafi hjá Vel­ferð­ar­þjón­ustu Árborgar.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Besta ráðið mitt hingað til hefur verið að senda mann­inn minn í búð­ar­ferð­irnar frekar en mig sjálfa. Hann er mik­ill ,,lista-maður’’ og verslar ein­ungis það sem er á inn­kaupa­list­anum hverju sinni á meðan ég virð­ist alltaf koma heim með mun meira en það sem var á list­anum. Annars þetta klass­íska, gera mat­seðil fyrir vik­una og versla sam­kvæmt honum. Á mínu heim­ili verslum við sirka 2x i viku, í byrjun viku og fyrir helg­arnar. Það hefur reynst okkur betur heldur en ein búð­ar­ferð fyrir alla vik­una því oft breyt­ast plön, það eru afgangar sem hægt er að nýta í aðra mál­tíð og því þarf að breyta mat­seðl­inum. Þegar ég versl­aði einu sinni í viku sat ég sat oft uppi með hell­ings mat í lok viku sem ekki var borð­aður og þurfti jafn­vel að henda, ég þoli fátt minna en að henda mat. Ég er dug­leg að elda úr því sem til er hverju sinni og ef afgangar hafa ekki verið borð­aðir dag­inn eftir smelli ég þeim í frysti í skammta­stærðum og tek með mér í vinnu í stað þess að kaupa mér hádeg­is­mat. Ég er farin að frysta nán­ast allt, og þá meina ég allt. Ef græn­meti hjá mér er að slapp­ast sker ég það niður og smelli í frysti­poka og á nán­ast alltaf hell­ing af græn­meti í súpur og kássur sem ann­ars hefði verið hent. Ég man eig­in­lega ekki eftir því hvenær ég keypti græn­meti í súpu síð­ast. Ég kaupi oft græn­meti á síð­asta séns, fullan poka á 50-99 kr. og sker niður í fryst­inn. Ég safna líka í poka í fryst­inum hýði, kjarna og afskurði af græn­meti- í raun allt það sem maður sker frá og hendir, og sýð svo niður og bý til dýr­indis soð og sleppi því öllum krafti. Ég frysti líka ávexti, það er geggjað að frysta t.d. lime, sítrónur og app­el­sínur í bátum og skella svo út í vatns­glasið, já eða í partý­drykk­inn og nota sem klaka. Aðra ávexti frysti ég og nota út í búst eða bökur. Ég frysti enda af ost­stykki og aðra osta og ríf svo niður á pizzur. Þegar ég hef farið erlendis tæmi ég yfir­leitt ísskáp­inn og frysti allt sem hægt er. Næsta skref verður að reyna að versla fisk og kjöt í magni beint frá sölu­að­ila þar sem fiskur og kjöt er orðin alger lúxus vara og brennir yfir­leitt gat á budd­una.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Já ég reyni að end­ur­nýta eins og hægt er en betur má en duga skal, ég get alger­lega gert
betur í þeim efnum. Þegar ég til dæmis fór að vera með­vituð um allt það plast sem maður er að kaupa á hverjum degi fékk ég nett sjokk. Ég var til dæmis með ham­borg­ara og franskar í mat­inn um dag­inn. Frönsk­urnar og ham­borg­ara­brauðið og sal­atið voru í plast­pokum, tómat­arnir í plast­dóstum, agúrkan í plast­vafn­ingi og sósan í plast­dós. Þetta er gríð­ar­legt magn af plasti og ein­ungis ein mál­tíð. Sem betur fer er plast þannig að hægt er að nýta það aftur og aftur og í þessu til­felli skol­aði ég allar plast­um­búðir og end­ur­nýti á heim­il­inu. Einnig skola ég t.d. álp­appír og bök­un­ar­pappír og nota aftur. Ónýt hand­klæði klippi ég niður og nota sem fjöl­nota bómull­ar­skífur eða tuskur. Ég nota gler­krukkur og önnur ílát undan mat­vöru fyrir afganga, nesti og boozt í stað þess að kaupa plast­í­lát. Ég skola mjólk­ur­fernur og nýti til dæmis sem bök­un­ar­form, sem sán­ing­ar­bakka eða sem und­ir­pott fyrir blóm. Ég safna endum og öllum afgöngum af brauði og öðru korni, þurrka og myl niður í rasp eða fugla­fóður. Um jól og afmæli safna ég pakka­borð­unum af jóla­pökkum og end­ur­nýti næsta ár. Ég hef líka notað litlu hvítu pok­ana undan lyfjum í apó­teki undir t.d. pen­inga­gjafir, tek lím­mið­ann af eða krassa yfir hann og bý svo til dúsk eða blóm úr serví­ettu og lími yfir. Ég er nýfarin að láta gera við föt og breyta þeim í stað þess að henda og kaupa ný. Fatnað og aðra hluti á heim­ili sem ekki er lengur í notkun gef ég áfram í stað þess að henda. Mitt ráð til ann­arra væri að byrja ein­hvers­staðar, t.d. með því að end­ur­nýta plast­um­búðir og smátt og smátt auka neyt­enda­vit­und­ina. Það er svo margt sem hægt er að gera til að end­ur­nýta og minnka kolefn­is­sporið okkar.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Yfir­leitt upp­runa, verð og gæði. Við kaup á mat hugsa ég einnig t.d. um magn og reyni frekar að kaupa magn­pakkn­ingar frekar en margar litlar og minnka þannig umbúðir. Þetta á einnig við um snyrti­vörur eins og krem, sjampó, sápur, tann­krem o.fl. Við kaup á fatn­aði tel ég mik­il­vægt að skoða gæði vör­unnar, vissu­lega er fatn­aður úr gæða­efnum oft dýr­ari en end­ist jafn­framt lengur og því bæði ódýr­ari og umhverf­is­vænni þegar uppi er staðið. Ég verð að við­ur­kenna að við kaup á gjöfum hef ég minna velt þessu fyrir mér, ég hef ég yfir­leitt keypt það sem ég veit að við­kom­andi langar í. Ég er þó farin að gefa upp­lif­anir og sam­veru­stundir t.d. miða á tón­leika eða í leik­hús í auknum mæli sem er bæði umhverf­is­vænna og end­ist lengur í minn­inga­bank­anum.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Þykkum, djúsí, síðum peysum, jökkum og kápum helst sem lit­ríkustum. Af ein­hverjum sökum þykja mér allar úlpur sem ég hef pru­fað óþægi­legar og nota því mikið peysur og jakka, ég virð­ist aldrei eiga nóg að slíkum fatn­aði. Síðustu kaup voru eit­ur­græn, síð kápa sem ég drösl­aði með heim frá Tenerife um jólin. Í þessum töl­uðu orðum er ég nán­ast búin að tala mig inn á nauð­syn þess að eign­ast bleika og app­el­sínugula mynstraða peysu sem liggur í inn­kaupa­kerru á ónefndri vef­síðu. Einnig er ég for­fall­inn vin­tage safn­ari og virð­ist alltaf hafa pláss á litla heim­il­inu mínu fyrir fal­lega hluti með sál. Maðurinn minn er nú ekki alltaf sam­mála kaup­unum en þá er ég svo heppin að eiga hana Sigrúnu vin­konu mína að sem deilir þessum áhuga mínum. Ég get alltaf treyst á hana við að styrkj­ast í trúnni um hversu sár­lega mig vanti til­tekin hlut. Ég er því lítið að elta nýj­ustu hönn­un­ar­tísku hverju sinni en get á móti þrætt nytja­mark­aði eða enda­laust ætt­leitt fal­lega hluti frá öðrum. Upp­á­halds­hlut­irnir mínir hér heima eru einmitt bollastell frá ömmu Fíu heit­inni og for­kunna­fagur vin­tage kuð­ungs­lampi frá ömmu Gígju heit­inni.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Mjög miklu máli. Það er mér eig­in­lega í blóð borið. Móður amma mín og afi bjuggu alla sína tíð á Ólafs­firði og hjá þeim lærði ég að bera virð­ingu fyrir nátt­úru­öfl­unum. Langafi minn í föð­ur­ætt hét Erlingur og var þekktur og virtur fyrir grasa­lækn­ingar. Föð­ur­amma sagði mér oft sögur af honum og um lækn­ing­ar­mátt grasa, jurta og nátt­úr­unnar og sjálfri líður mér hvergi betur en í óspilltri nátt­úr­unni. Einnig er pabbi minn mennsk alfræði­bók þegar kemur að íslenskri nátt­úru og þó ég hefði aldrei við­ur­kennt það sem barn þegar hann þuldi upp hverja ein­ustu þúfu sem við keyrðum fram­hjá á ferða­lögum þá hef ég smit­ast af áhuga hans á íslenskri nátt­úru. Ég vil því leggja mitt af mörkum og reyni það með því að draga úr kolefn­is­spori mínu og fjöl­skyld­unnar.

Það er svo ótrú­lega margt hægt að gera til að minnka kolefn­is­sporið okkar og stækka í leið­inni plássið í budd­unni. Þó það virð­ist lítið eða ekki skipta máli þá telur allt þegar uppi er staðið. Ég til dæmis nota mikið möndlu/hnetu/kókos/fræ mjólk en bý hana til sjálf. Í fyrstu hélt ég að það væri svo mikið vesen en það tekur mig yfir­leitt um 10 mín­útur. Oft virð­ast hlutir svo ofur flóknir en eru það alls ekki þegar uppi er staðið. Ég til dæmis bjó til marga lítra af fljót­andi sápu úr einu sápu­stykki. Í upp­skrift­inni var sápu­stykki, vatn og glys­erin. Þetta orð hefði áður verið nóg til að fæla mig frá, þetta er eitt­hvað sem ég veit ekk­ert um=of flókið. Með einu gúgli komst ég að því að þetta fæst í nán­ast hverju ein­asta apó­teki lands­ins. Með þessu hug­ar­fari hef ég einnig til dæmis búið til frá grunni krem, vara­salva, and­lits­tóner, salt­skrúbb, hár­nær­ingu, híbýlailm og svo mætti enda­laust lengi telja. Eina sem þarf til er áhugi og nenna. Mik­il­væg­ast að öllu að muna að margt smátt gerir eitt stórt, að gera eitt er betra en að gera ekki neitt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð