Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Uppljóstranir Gunnars Hrafns: Synir Jóhönnu fjarlægðu verk Hannesar Hólmsteins úr ráðherrabústaðnum

Uppljóstranir Gunnars Hrafns: Synir Jóhönnu fjarlægðu verk Hannesar Hólmsteins úr ráðherrabústaðnum

Gunnar Hrafn Jónsson segir frá spaugi­legri bústaða­ferð með móður sinni og konu hennar, Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur í glæ­nýju við­tali Mannlífs.

Jónína Leós­dóttir rit­höf­undur og móðir Gunnars Hrafns Jóns­sonar, fjöl­miðla­manns, fyrrum þing­manns og fyrrum fyndn­asta manns Íslands, er gift Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, fyrrum for­sæt­is­ráð­herra lands­ins. Í spá­nýju við­tali Mannlífs segir Gunnar Hrafn frá tveimur fyndnum sögum úr ráð­herra­bú­staðnum á Þing­völlum.

Dorrit niðurlægir Ólaf Ragnar

„Bústað­ur­inn á Þing­völlum er mjög skemmti­legur staður. Þar sem var áður bara kirkja en núna er meira en helm­ing­ur­inn af þessu bústaður fyrir for­sæt­is­ráð­herra til að bjóða þjóð­höfð­ingjum og svona. Þetta var allt markerað af valda­tíð Davíðs Odds­sonar. Það hafði mjög litlu verið breytt síðan. Það hengu þar uppi ein­hver plögg, við­ur­kenn­ing­arplögg um hann og alls staðar, í öllum stærstu hill­unum og þar sem maður tók mest eftir, voru doðrantar eftir Hannes Hólm­stein Giss­ur­ar­son. Og synir Jóhönnu, mega eiga það að þeir eru skemmti­legri en hún. Þeir fóru að ganga um húsið og leita uppi þessar bækur og földu inn í ein­hverri geymslu. Þeir sóttu svo sínar eigin bækur um sós­í­al­isma og settu upp til að fylla í götin. Síðan koma Dorrit og Ólafur Ragnar í heim­sókn en ég var nú ekki við­staddur þá heim­sókn. Og Dorrit elskar pleisið, finnst þetta bara það fal­leg­asta sem hún hefur séð, svona sveita­setur. En þau töl­uð­ust varla við á þessum tíma, Ólafur og Jóhanna. En þetta var svona form­leg heim­sókn. Þá segir Dorrit þessi gullnu orð: „Ólafur, þetta er svo flottur staður, af hverju þú aldrei takast vera for­sæt­is­ráð­herra?“ Og svip­ur­inn sem kom á Ólaf Ragnar, haf­andi alla ævi verið að reyna að verða for­sæt­is­ráð­herra, var bara „not­hing to talk about Dorrit,“ sagði Gunnar Hrafn hlæj­andi.

Dalai Lama bankar á dyrnar

En þetta er ekki eina gam­ansagan úr ráð­herra­búð­staðnum á Þing­völlum.

Dalai Lama, aðal­leið­togi tíbetskra búddista og for­svars­maður tíbet­sku útlaga­stjórn­ar­innar í Dhara­m­sala, var eitt sinn staddur á Íslandi en Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra átti erfitt með að hitta hann vegna and­stöðu kín­verskra yfir­valda við heim­sókn­inni. „Kín­verjarnir bara stræk­uðu á það. Þannig að hún og mamma fara á Þing­velli. Þing­vellir eru reyndar ekki mest prí­vat staður í heimi því túristar eru sífellt að banka og biðja um að fá að fara á kló­settið. Og það er ekk­ert annað kló­sett þarna. Mamma öskr­aði alltaf á eftir mér þegar ég kom inn „Læstu hurð­inni, ann­ars koma túrist­arnir inn!“, af því að kló­settið er við dyrnar. Og menn opn­uðu bara dyrnar og fóru inn og út af kló­sett­inu. Þarna var engin örygg­is­gæsla. Þannig að Jóhanna bað um að sett yrði upp grind­verk. Þá var sett upp ekki nema met­ershá keðja sem ég gat klofað yfir. Þá birt­ist frétt að ég held í DV þar sem stóð „Búið er að víg­girða ráð­herra­bú­stað­inn á Þing­völlum,“ sagði Gunnar Helgi og hló. En aftur að Dalai Lama hinum fjórt­ánda.

„Það sem ger­ist er að þær telja sig vera alveg safe,“ segir Gunnar Hrafn og á þá við að þær hafi farið í sveit­ina til að forð­ast Dalai Lama. „Og þær eru bara þar að slappa af, með girt fyrir glugga svo það sjá­ist ekki að ein­hver sé heima. En svo bara „bank, bank“ og gert ráð fyrir að þetta sé bara enn einn túrist­inn sem þurfi að pissa. Og mamma fer fram og dregur glugga­tjöldin frá og sér eitt­hvað um 20 app­el­sínugula klædda munka í lög­reglu­fylgd, með íslensku lög­regl­unni. Og þeir eru að banka og banka og mamma er fljót að loka aftur og snýr sér að Jóhönnu og segir þessi fleygu orð sem hefur verið sagt frá reyndar áður í fjöl­miðlum: „Holy shit, Dalai Lama er kom­inn!“, sem er yfir­leitt ekki við­brögð fólks þegar Dalai Lama bankar á dyrnar.“

Viðtalið mun birt­ast í heild sinni klukkan 20 í kvöld á vef Mannlífs en þar lætur Gunnar Hrafn allt flakka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð